Fréttablaðið - 01.09.2005, Blaðsíða 18
„Ég er á kafi við að skipuleggja Hönnunar-
daga sem verða í nóvember,“ segir Guð-
björg Gissurardóttir, grafískur hönnuður.
Þetta er í fyrsta skipti sem Hönnunardagar
verða haldnir en markmiðið er að gera
þetta að árlegum viðburði. „Við ætlum að
virkja hönnuði og verslanir til að sýna hvað
er í gangi og fáum líka margverðlaunaða
hönnunarstofu sem heitir Ideo til að kynna
aðferðarfræði sína. Svo halda bæði inn-
lendir og erlendir fyrirlesarar væntanlega
bæði fróðleg og skemmtileg erindi.“
Það er Hönnunarvettvangur sem stendur
að Hönnunardögum en Guðbjörg hefur
verið potturinn og pannan í skipulagning-
unni. „Það fer heilmikill tími í þetta. Ég hef
verið að meira eða minna síðan í maí og
geri í rauninni þetta allt ein og frá grunni.
Ég þarf bæði að stofna til sambanda sem
og virkja sem flesta og það reynir æði mikið
á.“
Fyrr í sumar gerði Guðbjörg þó svo vel við sig
að taka tveggja vikna launalaust sumarfrí í
fyrsta sinn á ævinni. „Þótt ég sé kominn vel
yfir þrítugt hef ég aldrei unnið það lengi á
einum stað að ég hafi átt rétt á sumafríi, en
mér fannst rétt að reyna slaka aðeins á.“ Frí-
inu varði hún í veiði og sér ekki eftir því þótt
ekki hafi bitið á. „Veðrið var frábært og einu
sinni stóð ég úti í miðri á í vöðlum og á bikini
einu saman. Það var dálítið sérstakt.“
Annars segist Guðbjörg ekki vera með mikið í
farvatninu enda er hún á hvolfi í undirbúning
og sér það í hillingum að geta slakað aðeins á
að Hönnunardögum loknum. „Ég hugsa að ég
skelli mér aðeins á heilsuhælið í Hveragerði,“
segir hún og hlær. Ætli það veiti nokkuð af því
að taka því dálítið rólega eftir þessa törn.“
18 1. september 2005 FIMMTUDAGUR
RJÚPNAVEIÐAR
SJÓNARHÓLL
Á haus vi› a› skipuleggja Hönnunardaga
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? GUÐBJÖRG GISSURARDÓTTIR, GRAFÍSKUR HÖNNUÐUR
nær og fjær
Af hverju flá a›
skjóta rjúpuna?
„Rjúpan er fallegur fugl og
ómissandi í íslenskri náttúru.
Hann er líka undirstaða fálka-
stofnsins og nauðsynlegur fyr-
ir viðgang hans.“
SIGRÍÐUR ANNA ÞÓRÐARDÓTTIR
UMHVERFISRÁÐHERRA Í GREIN UM
RJÚPUNA Í MORGUNBLAÐINU.
Sáu ekki skóginn
fyrir trjánum
„Þetta sýnir að Reykvíkingar
hafa kunnað betur að meta
hið góða starf Reykjavíkur-
listans síðustu tólf árin en
ýmsir þeirra sem að þeim
viðræðum komu.“
PÁLL HALLDÓRSSON SAMFYLKING-
ARMAÐUR UM SKOÐANAKÖNNUN
FRÉTTABLAÐSINS SEM SÝNIR AÐ R-
LISTINN HEFÐI HALDIÐ MEIRIHLUT-
ANUM HEFÐI HANN BOÐIÐ FRAM.
OR‹RÉTT„ “
www.urvalutsyn.is
ÍS
LE
NS
KA
A
UG
L†
SI
NG
AS
TO
FA
N/
SI
A.
IS
U
RV
2
94
14
0
8/
20
05
Lokaútkall í næstu viku
Bókaðu strax
á www.urvalutsyn.is
34.900 kr. í viku*
Verð á mann
*Netverð á mann á ofangreinda áfanga- og gististaði.
Verð er óháð fjölda í íbúð, en lágmarksfjöldi í íbúð er 2.
Innifalið: Flug, flugvallarskattar, gisting í 7 nætur og íslensk fararstjórn.
Ef bókað er á skrifstofu eða símleiðis bætist við 2.000 kr. bókunar- og
þjónustugjald á mann.
Brottfarir í næstu viku
Flug Til Brottför Hlið Ath.
FI 940 Portúgal, Brisa Sol 5., 12. sept. 4 Lokaútkall
FI 964 Krít, Helios 5. sept. 2 Lokaútkall
FUA 9808 Mallorca, Club Royal Beach 7. sept. 1 Lokaútkall
FUA 9806 Costa del Sol, Camino Real 8., 15. sept. 6 Lokaútkall
Takm
arka
ð
fram
boð
Fyrs
tur k
emu
r - fy
rstu
r fæ
r!
Gústaf Adolf Níelsson út-
varpsmaður gefur kost á
sér í áttunda sæti á lista
Sjálfstæðisflokksins fyrir
borgarstjórnarkosning-
arnar í vor. Hann er
hrifnari af Vilhjálmi en
Gísla Marteini.
„Áttunda sætið er það sæti sem
skiptir máli þegar upp er staðið,“
segir Gústaf Adolf Níelsson, út-
varpsmaður á Útvarpi
Sögu, sem ætlar að taka
þátt í prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins vegna
borgarstjórnarkosning-
anna í vor. Gústaf skil-
greinir sjálfan sig sem
sjálfstæðismann af
klassískum skóla en
hefur ekki áður tekið þátt í próf-
kjöri eða skipað sæti á framboðs-
lista. Hann starfaði þó í ungliða-
hreyfingu flokksins á sínum yngri
árum.
Gústaf stýrir tveimur dagleg-
um þáttum á Útvarpi Sögu, Blá-
horninu og Síðdegisspjallinu, og
hyggst reka kosningabaráttu sína
að mestu í gegnum þá. „Ég er
enginn auðmaður og hef ekki pen-
inga til að moka í þetta en nota
það sem hendi er næst. Ég er svo
blessunarlega heppinn að vinna á
frjálsum fjölmiðli en ekki á ríkis-
miðli,“ segir hann.
Gísli Marteinn Baldursson og
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson bítast
sem kunnugt er um fyrsta sætið.
Gústaf telur ágætt að tveir menn
takist á um oddvitaembættið en
segir um leið að tvímenningarnir
séu ekki sambærilegir. „Vilhjálm-
ur er reynslumikill og hefur leitt
þetta ágætlega. Ég þekki hann
betur en Gísla Martein og styð
hann en Gísli er gott efni, það
leikur enginn vafi á því.“ Gústaf
segir Sjálfstæðisflokkinn ekki á
flæðiskeri staddan þegar kemur
að ungu fólki og nefnir Kjartan
Magnússon sérstak-
lega til sögunnar.
„Kjartan hefur verið
lengi í þessu og ég skil
ekki hvers vegna
menn horfa ekki frek-
ar til hans þegar rætt
er um að það þurfi
ungt fólk í forystu-
sveitina í borginni. Svo höfum við
Hönnu Birnu Kristjánsdóttur og
Jórunni Frímannsdóttur.“
Gústaf hefur sterkar skoðanir
á frammistöðu R-listans og segir
árangur hans við stjórn borgar-
innar ekkert sérstakan. „Borgin
hefur misst það frumkvæði sem
hún hafði. Vöxturinn er annars
staðar og þar ræður lóðaskortur-
inn í borginni mestu. Ég held að
það yrði hreinasta óheppni ef
Sjálfstæðisflokkurinn myndi
ekki vinna kosningarnar,“ segir
hann.
bjorn@frettabladid.is Í LOFTINU Gústaf Níelsson ætlar að reka áróður fyrir sjálfum sér í þáttum sínum á Sögu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Kosningabaráttan há› á Bláhorninu
Hagyrðingar landsins eru
óðum að koma sér í réttar
stellingar fyrir landsmót-
ið á Hótel Sögu á laugar-
dag. Sigurður Sigurðar-
son, dýralæknir, kvæða-
maður og hagyrðingur,
hefur sótt tólf af sextán
landsmótum og
hlakkar mjög
til. Hann missti
af tveimur
fyrstu mótun-
um og var í út-
löndum við rannsóknir þegar tvö
síðustu voru haldin. „Ég hlakka
mjög til enda er þetta óborganleg
skemmtun,“ segir Sigurður. Vita-
skuld fljúga vísurnar milli manna
á landsmótinu og það var einmitt
við slíkt tækifæri sem meðfylgj-
andi vísa varð til. Karl og kona
stóðu saman og eins og gengur
spurði frúin um almennt heilsu-
far. Karl svarði því til að læknarn-
ir segðu að allt væri að bila,
bæði haus og fætur. Hann
væri hins vegar ekki
viss um að þetta væri
rétt, í það minnsta væri
miðjan enn í góðu lagi.
Varð henni þá umsvifa-
laust að orði:
Dunar fjör og
dans um nætur
dátt með hopp og
brun og svig.
Þótt hæpið sé
með haus og fætur
er helst að miðjan standi sig.
Svaraði hann þá um hæl:
Sú var tíð hún sveik mig ekki
sitt af hverju hefur reynt.
En alltaf stóðst hún Amors hrekki,
þótt örvum væri þangað beint.
- bþs
HÓTEL SAGA Kveðist verður á af kappi á landsmóti hagyrðinga á laugardaginn.
Landsmót hagyrðinga fer fram eftir tvo daga:
Óborganleg skemmtun
„Ég er ánægð með að sala á rjúp-
um verði bönnuð,“ segir Steinunn
Guðnadóttir, bæjarfulltrúi í
Hafnarfirði, spurð um skoðun
sína á nýjum reglum um rjúpna-
veiðar. Hún segist ekki hafa
forsendur til þess að meta hvort
yfirleitt hefði átt að heimila
rjúpnaveiðar á nýjan leik en er
almennt þeirrar skoðunar að
náttúran eigi að fá að njóta
vafans, þegar svo ber undir.
Rjúpnaveiðar verða heimilar
frá miðjum október til loka nóv-
ember og eru skyttur hvattar til
þess að gæta hófs í veiðum sínum.
„Svo er bara að treysta því og
trúa að sölubanninu verði fylgt
eftir og fólk sýni heiðarleika svo
ekki komi til ofveiði.“
Sjálf neytir Steinunn ekki
rjúpna og stundar þaðan af síður
rjúpnaveiðar.
STEINUNN GUÐNADÓTTIR
Hlynnt sölubanni