Fréttablaðið - 01.09.2005, Side 20
Á annað hundrað manns eru látn-
ir, New Orleans-borg marar í
hálfu kafi og ríflega milljón íbúa
Louisiana, Mississippi og Ala-
bama er án rafmagns. Fregnir
berast af líkum fljótandi í vötnum
sem myndast hafa á ham-
farasvæðunum og enn er fólk fast
á háaloftum og húsþökum.
Lögleysa hefur einnig gripið um
sig og eru gripdeildir orðnar
alvarlegt vandamál í New Orleans
og Biloxi. Heyrst hefur af fólki
stelandi byssum, skartgripum og
áfengi úr verslununum, jafnvel
beint fyrir framan nefið á
lögregluþjónum.
Óvíst er hvenær íbúar ham-
farasvæðanna fá að snúa aftur til
síns heima enda velta margir því
fyrir sér hvort nokkuð sé eftir til
að snúa aftur til. Óttast er að
flóðasvæðin séu orðin pestarbæli
vegna spilliefna sem farið hafa út
í umhverfið og skólpmengunar.
Sjúkdómar sem alla jafna eru
tengdir við hitabeltið, eins og
kólera, gætu breiðst út.
Ofan á þetta bætist svo
fjárhagstjónið sem fellibylurinn
hefur valdið. Talið er að það geti
numið 1.700 milljónum króna og
orðið þar með það mesta sem
fellibylur hefur valdið í sögu
Bandaríkjanna. Bandarískar hús-
eigendatryggingar ná sjaldnast
yfir tjón vegna flóða og því munu
margir húseigendur standa eftir
slyppir og snauðir nema hið opin-
bera komi þeim til hjálpar.
Áhrif olíunnar veigamest
Enda þótt fellibylurinn sé fyrst
og fremst persónulegur harmleik-
ur fólksins sem varð fyrir honum
er vitað mál að áhrif Katrínar á
þjóðarbúskapinn, og raunar efna-
hagskerfi heimsins, verða tals-
verð. Meðal annars vegna þess að
stór hluti inn- og útflutningsvara
Bandaríkjanna fer um hafnir
hamfarasvæðanna – einkum olía
og gas en einnig landbúnaðarvör-
ur – eru hagfræðingar þegar farn-
ir að endurskoða hagvaxtarspár
sínar fyrir þennan ársfjórðung.
Áhrifin á olíuiðnaðinn eru
sjálfsagt sá þáttur sem mest vægi
mun hafa í efnahagslegu tilliti.
Tíu prósent allrar olíu sem Banda-
ríkjamenn nota koma úr Mexíkó-
flóa enda voru verðhækkanir á
mörkuðum ekki lengi að koma
fram. Ekki virðist hafa orðið
mikið tjón á olíuborpöllum, höfn-
um og olíuhreinsistöðvum í óveðr-
inu en tafir á olíuflutningum hafa
hins vegar þýtt að framleiðsla
olíuhreinsistöðva hefur stöðvast.
Keðjuverkun
Þegar olíuverð er eins hátt og
nú er, í kringum sjötíu dali fatið,
minnkar kaupmáttur neytenda
verulega. Í grein á vefútgáfu The
Economist í gær um áhrif hamfar-
anna segir frá rannsókn þar sem
því er haldið fram að fyrir hvert
sent sem gallonið af bensíni
hækkar í Bandaríkjunum minnki
kaupgeta almennings um hundrað
milljarða króna. Þetta er sagt geta
valdið samdrætti í verslun sem
nemur rúmu prósenti, sem mun
aftur hafa veruleg áhrif á þjóðar-
framleiðslu ársins.
Áhrif slíks samdráttar ná langt
út fyrir landsteinana. Stærstu út-
flutningsmarkaðir margra ríkja
Asíu eru í Bandaríkjunum og
minnkandi spurn eftir vörum
þessara landa kemur ofan á tjónið
sem hækkandi olíuverð hefur
valdið. Áhrif olíuhækkananna
gætu orðið svipuð á ríki Evrópu,
sem þá að sama skapi munu vænt-
anlega draga úr innflutningi sín-
um. Þótt Ísland sé ekki eins háð
bandarískum fiskmörkuðum og
fyrir nokkrum árum má þannig
gera því skóna að hamfarirnar
hafi áhrif hér líka.
HULDA KATRÍN STEFÁNSDÓTTIR
Framkvæmdastjóri Iðnnemasambands
Íslands.
Engar undanflág-
ur frá nemaleyfi
HVAÐ ÞARF TIL ÞESS AÐ
NÁM SÉ RÉTTINDAHÆFT
TIL SVEINSPRÓFS?
SPURT & SVARAÐ
20 1. september 2005 FIMMTUDAGUR
Mikil umræða hefur átt sér stað um byggða-
kvóta undanfarin ár og hefur þá oft verið kveð-
ið fast að orði enda miklir hagsmunir í húfi
þegar kemur að því að úthluta honum. Oftast
hefur hart verið deilt um úthlutanir og forsend-
ur fyrir þeim. Nú síðast brugðust útgerðar-
menn í Vestmannaeyjum harkalega við þegar
þeim fannst þeir bera lítið úr býtum og sögðu
að um hreina eignaupptöku væri að ræða og
ætla með málið fyrir dómstóla.
Hvað er byggðakvóti?
Sjávarútvegsráðherra hefur heimild til að út-
hluta allt að tólf þúsund tonnum af botnfiski til
byggðarlaga sem háð eru veiðum og vinnslu á
botnfiski og lent hafa í vandræðum vegna
samdráttar í sjávarútvegi eða orðið fyrir
skakkaföllum vegna skerðingar á aflaheimild-
um.
Sjávarútvegsráðuneytið hefur samráð við
Byggðastofnun í mati sínu á þessum þáttum
en oftast er úthlutað til minni byggðarlaga.
Bæjarstjórn þess sveitarfélags sem fær byggða-
kvóta sér svo um að úthluta honum til útgerða
á staðnum.
Hvenær var byrjað að úthluta byggðakvóta?
Byggðakvóta sem hér er lýst hefur verið úthlut-
að frá árinu 2002 en sjávarútvegsráðherra
hefur haft heimild til að úthluta sérstaklega til
útgerða á stöðum sem lent hafa í skakkaföll-
um frá því kvótakerfið var tekið upp árið 1984.
Hverjir eru helstu ókostir hans?
Flestir eru sammála um það að aldrei geti
náðst full sátt um úthlutanir á byggðakvóta og
oft hafa menn dregið forsendurnar fyrir úthlut-
un í efa. Einnig hefur kastast í kekki milli
útgerðarmanna innan sama sveitarfélags vegna
ákvörðunar bæjaryfirvalda um það hver fær
hversu mikið af þeim kvóta sem sveitarfélagið
fékk í sinn hlut.
Hefur alltaf valdi› deilum
GREINING: BYGGÐAKVÓTI
fréttir og fró›leikur
SVONA ERUM VIÐ
VERÐMÆTI
ÚTFLUTTRA
SJÁVARAFURÐA
FRÁ JANÚAR TIL JÚLÍ.
Heimild: HAGSTOFAN
Til að nám sé réttindahæft til sveins-
prófs þarf námið að vera kennt inn-
an iðnskóla eða fjölbrautaskóla sem
annað hvort er opinber stofnun eða
einkarekinn skóli með starfsleyfi frá
menntamálaráðuneytinu. Ekki er
nóg að kenna eftir aðalnámskrá
heldur þarf að vera starfsleyfi frá
menntamálaráðuneytinu til að nemi
fái réttindi til töku sveinsprófs í lög-
giltri iðngrein.
Hvenær geta fyrirtæki tekið nema
á námssamning?
Til að fyrirtæki geti tekið nema á
námssamning í iðngreinum þarf við-
komandi fyrirtæki að hafa nema-
leyfi. Frá því eru engar undanþágur
og eru starfandi sérstakar nema-
leyfisnefndir sem sjá um úthlutun
nemaleyfa.
TJÓNIÐ ER GRÍÐARLEGT Lítið var eftir af heimili Madison James í Biloxi í Mississippi
þegar hún kom á vettvang eftir að óveðrinu slotaði.
SVEINN GUÐMARSSON
sveinng@frettabladid.is
FRÉTTASKÝRING
Hönd Katrínar teygir sig ví›a
Eftir flví sem dagarnir lí›a kemur tjóni› sem fellibylurinn Katrín olli á mánudaginn æ betur í ljós. Tala
látinna hækkar dag frá degi, gripdeildir fara vaxandi og óttast er a› smitsjúkdómar geti brei›st út.
Hagfræ›ingar reikna me› a› efnahagslegar aflei›ingar hörmunganna muni ná langt út fyrir Bandaríkin.
35
19 18
12
8 6 3
6
1
5
3
43
448
455
578
578
702 (á núvirði)
734 (á núvirði)
799 (á núvirði)
923
975
ÁR • STIG
*Að minnsta kosti 25 dóu í fellibylnum Dennis og þegar Katrín gekk yfir Flórída.
Tölurnar ná hins vegar ekki yfir mannfall af völdum Katrínar í þessari viku.
’05*
Einn versti fellibylur í sögu Bandaríkjanna
’85 ’86 ’87 ’88 ’89 ’90 ’91 ’92 ’93 ’94 ’95 ’96 ’97 ’98 ’99 ’00 ’01 ’02 ’03 ’04
Yfir 20
1-10
11-20
HEIMILD: National Oceanic and Atmospheric Administration; Insurance Information Institute - AP
Fellibylurinn Katrín er einn sá skaðlegasti í sögu Bandaríkjanna. Enn er ekki
nákvæmlega vitað hversu margir fórust í héruðunum sem verst urðu úti og er
jafnframt búist við því að tjónið af völdum veðursins sé meira en það sem
fellibylurinn Andrés olli á sínum tíma.
0
10
20
30
40
50
60
Andrés
Charley
Ívan
Húgó
Agnes
Betsy
Frances
Kamilla
Díana
Jeanne
Dauðsföll í Bandaríkjunum af völdum fellibylja
Fellibylur annars staðar en í Bandaríkjunum
Fellibylur sem gekk á land í Bandaríkjunum
Fjöldi fellibylja á Atlantshafi
’85 ’86 ’87 ’88 ’89 ’90 ’91 ’92 ’93 ’94 ’95 ’96 ’97 ’98 ’99 ’00 ’01 ’02 ’03 ’04 ’05
Stórir fellibylir
(3.-5. stigs), sem gengið hafa
á land 1851-2004
Aðeins
1.-2. stigs byljir
2.840 (á núvirði, 1.690 á sínum tíma)1992 • 5
2004 • 4
2004 • 3
1989 • 4
1972 • 1
1965 • 3
2004 • 2
1969 • 5
1955 • 1
2004 • 3
Þeir fellibyljir sem valdið hafa mestu tjóni í Bandaríkjunum, 1900-2004 í milljörðum króna
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
70
.0
45
M
IL
LJ
Ó
N
IR
66
.6
18
M
IL
LJ
Ó
N
IR
2005
2004