Fréttablaðið - 01.09.2005, Side 62
1. september 2005 FIMMTUDAGUR38
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
29 30 31 1 2 3 4
Fimmtudagur
SEPTEMBER
■ ■ LEIKIR
19.15 KR og Valur mætast í DHL-
Höllinni í Reykjavíkurmóti karla í
körfubolta.
19.15 ÍR og ÍS mætast í Seljaskóla í
Reykjavíkurmóti karla í körfubolta.
■ ■ SJÓNVARP
07.00 Olíssport á Sýn. Þátturinn er
endursýndur þrisvar sinnum til 9.00
og svo aftur klukkan 18.00.
14.00 Enskir leikir á Enska
boltanum. Leikir Man. City–Ports-
mouth, Fulham–Everton og Aston
Villa-Blackburn sýndir.
16.40 Formúlukvöld á RÚV.
18.30 Íslandsmótið í golfi 2005 á
Sýn.
19.45 Bandaríska mótaröðin í
golfi 2005 á Sýn.
20.00 Liðið mitt á Enska bolt-
anum. Stuðningsmannaklúbbar
ensku úrvalsdeildarliðanna njóta sín.
20.10 Suðurnesjatröllið 2005 á
Sýn.
20.40 Mike Tyson - Lennox Lewis
á Sýn.
21.00 Enskir leikir á Enska
boltanum. Leikir Newcastle–Man.
Utd., Middlesbrough–Charlton og
Wigan–Sunderland sýndir.
21.30 Breski bílaþátturinn Í
fimmta gír á Sýn.
22.00 Olíssport á Sýn.
22.30 Strandblak á Sýn.
Newcastle keypti Michael Owen á sautján milljónir punda frá Real Madrid:
FÓTBOLTI Michael Owen var í gær
kynntur sem nýr liðsmaður
Newcastle United en gengið var
frá kaupum á honum frá Real
Madrid í fyrrakvöld. Mikill fjöldi
lét sjá sig á St. James Park,
heimavelli Newcastle, en það
voru mest rúmlega 20 þúsund
áhorfendur á leikvanginum
þegar hann veifaði til áhorfenda
af palli sem komið hafði verið
komið fyrir á vellinum.
Owen sagði samtöl sín við
Alan Shearer, fyrirliða New-
castle, hafa ráðið úrslitum um
það að hann ákvað að fara til
Newcastle. „Shearer er búinn að
vera í stöðugu sambandi við mig
síðustu vikur. Eftir mörg löng
samtöl við hann ákvað ég að
koma hingað þar sem allir hjá
félaginu hafa mikinn metnað til
koma félaginu aftur í fremstu
röð. Það margir virkilega góðir
leikmenn hjá Newcastle og ég er
viss um að við náum að rétta úr
kútnum í næstu leikjum.“
Newcastle hefur byrjað leik-
tíðina illa og hefur leikmönnum
liðsins ekki enn tekist að skora
mark í deildinni. Owen vonast til
þess að geta skorað mörg mörk í
hvíta og svarta búningnum.
„Ég hef unnið við það í nokkur
ár að skora mörk. Ég fer ekki
fram á neitt annað en að fá að
spila og það er ástæðan fyrir því
að ég kom hingað. Staða mín hjá
Real Madrid var ekki nógu góð
og eftir mikla umhugsun ákvað
ég að fara til Newcastle. Núna
byrjar nýtt tímabil í mínu lífi og
ég hlakka til þess að takast á við
það.“
- mh
Michael Owen hylltur í Newcastle
HK gæti fengi› 20
milljónir fyrir Rúrik
Í anna› sinn á rúmu ári hefur HK grætt fúlgur fjár
á flví a› selja hinn stórefnilega Rúrik Gíslason.
FÓTBOLTI Lið HK í 1. deildinni, sem
í fyrradag gekk frá sölu á hinum
17 ára gamla Rúrik Gíslasyni til
Charlton, gæti fengið allt að 20
milljónir króna frá Charlton fari
svo að Rúrik verði fastamaður í
liðinu í framtíðinni. Ljóst er að
HK hefur hagnast vel á því að
selja Rúrik en hann kom til liðsins
síðasta haust eftir að hafa verið í
herbúðum Anderlecht í tæpt ár.
Þar náði Rúrik sér aldrei á strik
vegna meiðsla en hann er upp-
alinn hjá Kópavogsliðinu og sneri
því aftur á heimaslóðir.
Heildarkaupverðið á Rúrik er
háð því hvort hann nær að brjóta
sér leið inn í aðallið Charlton, en
þar á bæ hafa menn mikla trú á ís-
lenska leikmanninum og segir Pet-
er Varney, framkvæmdastjóri fé-
lagsins, að með kaupunum á Rúrik
hafi Charlton verið að tryggja sér
þjónustu eins eftirsóttasta unga
leikmanns Evrópu. Samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins var Rú-
rik gríðarlega eftirsóttur hjá lið-
um af Norðurlöndunum en hann
kaus sjálfur að fara til liðs í ensku
úrvalsdeildinni. Líklegt er að vera
Hermanns Hreiðarssonar hjá
Charlton hafi ráðið miklu um
ákvörðun Rúriks og þakkaði Varn-
ey íslenska varnarmanninum sér-
staklega fyrir aðstoðina. „Her-
mann átti stóran þátt í því að fá
Rúrik til okkar,“ sagði hann.
Í viðtali við opinbera heima-
síðu Charlton segir Steve Suther-
land, meðlimur í leikmannanefnd
félagsins, að koma Rúriks sé sem
hvalreki á fjörur félagsins. „Hann
á góða möguleika á að verða ein af
helstu stjörnum ensku úrvals-
deildarinnar í framtíðinni,“ segir
Sutherland.
- vig
RÚRIK GÍSLASON Vakti athygli stórliða á
borð við Bayern München, PSV og Ajax
eftir stórkostlega frammistöðu með u-17
ára landsliði Íslands. Hann valdi að fara til
Anderlecht á sínum tíma en er nú kominn
til Charlton. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Félagsskiptaglugginn í fótboltanum lokaðist í gær:
Miki› um kaup og sölur
HYLLTUR Á ST. JAMES PARK Owen er nú án efa vinsælasti maðurinn í Newcastle og
vonast stuðningsmenn félagsins eftir því að hann skori mikið af mörkum fyrir félagið.
FÓTBOLTI Enski landsliðsmaðurinn
Jermaine Jenas gekk í gær til liðs
við Tottenham Hotspurs frá
Newcastle United fyrir átta millj-
ónir punda. Jenas hefur verið óá-
nægður hjá Newcastle í langan
tíma en hann hefur ekki náð að
starfa vel með knattspyrnustjór-
anum Graeme Souness. Búast má
við því að Jenas styrki lið Totten-
ham mikið en hann þykir vera
einn af efnilegustu leikmönnum
Englands.
Meðal annara kaupa í gær má
nefna að Tottenham festi einnig
kaup á Suður-Kóreumanninum
Lee Young-Pyo en hann leikur í
stöðu vinstri bakvarðar. Totten-
ham þurfti að greiða tæpar tvær
milljónir punda fyrir Young-Pyo.
Sænski landsliðsmaðurinn
Erik Edman fór á sama tíma frá
Tottenham til Rennes í Frakk-
landi, en hefur ekki þótt standa
sig nóg vel með liðinu síðan hann
kom fyrir ári.
Wigan Athletic keypti fram-
herjann David Connolly frá
Leicester City fyrir tvær milljón-
ir punda en honum er ætlað að
fylla skarðið sem Nathan Ell-
ington skyldi eftir sig. Wigan hef-
ur gengið erfiðlega að skora á
leiktíðinni og ekki skánaði ástand-
ið eftir að Ellington fór til West
Bromwich Albion fyrir skömmu.
Connolly hefur verið helsti
markaskorari Leicester City í
1.deildinni á Englandi síðustu tvö
tímabil. - mh
JERMAINE JENAS Á eflaust eftir að
verða mikill liðsstyrkur fyrir Totten-
ham má búast við því hann verði
orðinn lykilmaður liðsins áður en
langt um líður.