Fréttablaðið - 01.09.2005, Blaðsíða 66
Blúshljómsveitin The Grinders
heldur þrenna tónleika hér á landi
á næstu dögum. Sveitin heldur
tvenna tónleika á Græna hattinum
á Akureyri annað kvöld og á
föstudagskvöld og síðustu tónleik-
arnir verða á Ljósanótt í Reykja-
nesbæ á laugardaginn.
Upphaf The Grinders má rekja
til þess er Kristján Kristjánsson,
KK, kynntist Professor Wash-
board og Derrick Big Walker á
ferðum sínum um Evrópu undir
lok níunda áratugarins og stofn-
uðu þeir hljómsveitina í kjölfarið.
Sveitin spilaði síðast hér á landi á
blúshátíð Reykjavíkur í mars en
þar áður spilaði sveitin sex sinn-
um fyrir fullu húsi í Rosenberg-
kjallaranum árið 1989. Það sumar
var tekin upp platan KK-Upphafið
sem kom loks út á síðasta ári.
The Grinders skipa í dag KK,
slagverksleikarinn Professor
Washboard, munnhörpuleikarinn
Marc Breitfelder og Þorleifur
Guðjónsson. „Ég man vel eftir
því þegar við hittumst fyrst,“
segir prófessorinn um samstarfið
við KK. „Ég var staddur á tjald-
stæði í Noregi og heyrði í honum
syngja blúslag og hugsaði með
mér: „Þetta er ansi gott.“ Síðan
fórum við hvor í sína áttina en
hittumst svo og fórum að spila
saman. Við spiluðum í Stokk-
hólmi, meðal annars í sjónvarpi
þar, og vorum líka á tónlistarhá-
tíð í Svíþjóð þar sem Motörhead
og Van Morrison spiluðu líka,“
segir hann. KK man vel eftir
þessari hátíð. „Lemmy úr Motör-
head var þarna og við gáfum
þeim íslenskt brennivín og
drukkum það með honum. Hann
var mög viðkunnanlegur náungi.“
Aðspurður segir prófessorinn að
íslenskir áhorfendur séu frábærir.
„Ég heyrði upptöku frá gömlum
tónleikum með okkur og var búinn
að gleyma því hvað áhorfendurnir
voru æstir. Ég hlakka mikið til.“
Prófessorinn og KK bera hvor
öðrum vel söguna og svo virðist
sem þeir hafi báðir tekið miklum
framförum síðan þeir hittust fyrst
fyrir rúmum fimmtán árum, þá
sem götuspilarar.
Marc Breitfelder, sem er að
spila í fyrsta sinn með The Grind-
ers, er þekkt nafn í blúsbransan-
um og varð meðal annars í öðru
sæti á heimsmeistaramótinu í
munnhörpuleik árið 1993. Þar að
auki varð hann Evrópumeistari á
svipuðum tíma. Hann segist
einnig hlakka mikið til tónleik-
anna hér á landi.
Þeir félagar í The Grinders
vonast til að fara í tónleikaferð til
útlanda einhvern tímann á næst-
unni og hugsanlega að gefa út
nýja plötu. Allt fer það þó eftir því
hvað stundatafla þeirra segir.
Þess má geta að eftir viðtalið
ákváðu þeir KK, prófessorinn og
Marc að taka lagið fyrir starfs-
fólk Fréttablaðsins við mikinn
fögnuð viðstaddra. Að sjálfsögðu
var gítartaskan lögð á gólfið eins
á götunum í gamla daga og smá-
aurum safnað í púkk. Höfðu þeir
ágætlega upp úr krafsinu.
freyr@frettabladid.is
42 1. september 2005 FIMMTUDAGUR
> Ekki missa af ...
…opnun á sýningu Ólafar Nordal á ljós-
myndaverkum í i8 klukkan 17.00 í dag.
…tónleikum hljómsveitanna Plat, Nicolas
Britain, Frank Murder og 7berg á Bar 11,
Laugavegi 11 klukkan 21.00 í kvöld.
…opnun á sýningunni Meistari Kjarval
120 ára í Gerðasafni klukkan 15.00 á
laugardaginn. Um er að ræða afmælis-
sýningu úr einkasafni Ingibjargar Guð-
mundsdóttur og Þorvaldar Guðmunds-
sonar.
Verk Jóhanns Freys Björgvinssonar, Játningar
minnisleysingjans, er meðal þess sem boðið
verður upp á í kvöld á nútímadanshátíð í
Borgarleikhúsinu. „Ég er með fimm dansara
frá Íslenska dansflokknum sem ætla að dansa
á sviðinu í kvöld,“ segir Jóhann Freyr en dans-
verk hans fjallar um minnisleysi. „Ég fjalla um
hvernig við nýtum okkur minnisleysi í dag-
legu lífi til þess að lifa af. Hvernig við gleym-
um því sem við viljum ekki muna og búum
að lokum til okkar eigin raunveruleika með
þessari hagræðingu í sjálfinu.“
Í kvöld verða auk Játninga Minnisleysingjans
tvö sólódansverk á boðstólnum. Verkið
Postcards from home eftir bandaríska dansar-
ann Cameron Corbett verður flutt af henni
sjálfri og breski dansarinn Fred Gehrig flytur
einnig frumsamið verk sem hann nefnir Im
Panzer. Reykjavík Dance Festival stendur yfir í
Borgarleikhúsinu og Regnboganum frá 1.-4.
september.
Laugardaginn 3. september verður
opnuð í Listasafni Íslands klukkan
15.00 sýningin Íslensk myndlist
1945-1960: Frá abstrakt til raun-
sæis. Sýningin er fjórða sýning
safnsins í sýningaröð sem er ætlað
að gefa yfirlit um þróun myndlistar
á Íslandi innan afmarkaðra tíma-
bila frá aldamótunum 1900.
menning@frettabladid.is
Nútímadansveisla í Borgarleikhúsinu
THE GRINDERS Þeir félagar Professor Washboard, KK og Marc Breitfelder héldu stutta
tónleika fyrir Fréttablaðið við mikinn fögnuð viðstaddra.
Frábærir áhorfendur
!
STÓRA SVIÐIÐ KL. 20:00 Klaufar og kóngsdætur mið. 31/8 kl. 20:00
uppselt, sun. 4/9 kl. 14:00, sun. 18/9 kl. 14:00, sun. 25/9 kl. 14:00.
Edith Piaf fös. 2/9, lau.3/9, sun. 18/9, fim. 22/9, fös. 23/9, lau. 24/9.
Kirsuberjagarðurinn – gestasýning fim. 8/9, fös. 9/9. Að eilífu
– gestasýning lau. 10/9, sun. 11/9. SMÍÐAVERKSTÆÐIÐ KL. 20:00
Rambó 7 fös. 2/9, lau. 3/9, fös. 11/9, lau. 12/9. LITLA SVIÐIÐ KL. 20:00
Koddamaðurinn fim. 8/9, fös. 9/9, lau. 10/9, sun. 11/9.
Miðasalan er opin kl. 13:00-18:00 mánudaga og þriðjudaga.
Aðra daga kl.13:00- 20:00. Símapantanir frá kl. 10:00 virka daga.
midasala@leikhusid.is. Sími 551-1200
www.leikhusid.is
Klaufar og kóngsdætur Edith PiafRambó 7
STÓRA SVIÐ
KALLI Á ÞAKINU
e. Astrid Lindgren
Lau 3/9 kl 14, Su 4/9 kl 14, Su 11/9 kl 14,
Su 18/9 kl 14
EYJÓLFUR KRISTJÁNSSON
Stórtónleikar
Fö 2/9 kl 20 - UPPSELT
Fö 2/9 kl 22:30 - UPPSELT
KYNNING LEIKÁRSINS
Leikur, söngur, dans og léttar veigar
Su 11/9 kl 20
Opið hús og allir velkomnir
NÝJA SVIÐ/LITLA SVIÐ/ÞRIÐJA HÆÐIN
REYKJAVIK DANCE FESTIVAL
Nútímadanshátíð 1.-4. September
Í kvöld kl 20
Játningar minnisleysingjans, IM PANZER,
Postcards from home
Fö 2/9 kl 20-Crystall, Wake up hate
Lau 3/9 kl 15 og 17-Videoverk í Regnboganum
Su 4/9 kl 14-Heima er best-barnasýning kr. 800
Kl 20-Who is the horse, Love story
Almennt miðaverð kr 2000
Passi á allar sýningarnar kr 4000
ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
Lau 3/9 kl 20, Fi 8/9 kl. 20, Fö 9/9 kl 20,
Lau 10/9 kl 20, Su 11/9 kl 20-uppselt,
Fi 15/9 kl. 20
Miðasölusími 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Miðasala á netinu www.borgarleikhus.is
Miðasalan í Borgarleikhúsinu er opin:
10-18 mánudaga og þriðjudaga, 10-20
miðviku-, fimmtu- og föstudaga
12-20 laugardaga og sunnudag
Endurnýjun áskriftarkorta
er hafin!
Sala nýrra áskriftarkorta hefst
laugardaginn 3. september
- Það borgar sig að vera
áskrifandi-
11. sýn. í kvöld kl. 19 örfá sæti laus
12. sýn. sun. 4/9 kl. 16 nokkur sæti laus
13. sýn. fim. 8/9 kl. 19 sæti laus
JÁTNINGAR MINNISLEYSINGJANS Verk eftir
Jóhann Frey Björgvinsson verður sýnt á Reykjavik
Dance Festival í kvöld.
„Maurice Ravel, eitt mesta tón-
skáld Frakka, var hér á landi árið
1905 því hann sendi póstkort frá
Þingvöllum 2. september það ár.
Þetta kort hefur verið grafið upp
í Yale-háskóla í Bandaríkjunum.
Póstkortið stílaði Ravel á velunn-
ara sinn sem hét Ida Godbedska
og það eina sem kemur fram í því
er að hann hafi samband við hana
þegar hann komi aftur til Frakk-
lands. Það er hins vegar ekkert
vitað hvað Ravel var að gera hér
á landi,“ segir Rut Ingólfsdóttir,
fiðluleikari og listrænn stjórn-
andi Kammersveitar Reykjavík-
ur, en Kammersveitin heldur tón-
leika í Þjóðmenningarhúsinu á
morgun, föstudaginn 2. septem-
ber klukkan 20.00, í tilefni af því
að hundrað ár eru liðin frá veru
Ravels hér á landi. Einleikari á
tónleikunum er Elísabet Waage
hörpuleikari og Sesselja Krist-
jánsdóttir messósópran syngur.
Á tónleikunum verða leikin
ýmis verk eftir Ravel svo sem
strengjakvartett í F-dúr og sónata
fyrir fiðlu og selló.
Pétur Gunnarsson rithöfundur
leiðir áheyrendur á tónleikunum
um menningarheim Frakklands
og reynir að geta sér til um af
hverju Ravel lagði leið sína hing-
að.
„Tónleikarnir á föstudaginn
marka upphaf starfsársins hjá
okkur í Kammersveit Reykjavík-
ur og má segja að Mozart verði
yfirgnæfandi hjá okkur í ár í til-
efni af því að árið 2006 verða 250
ár liðin frá fæðingu hans. Eins
munum við halda tónleika í des-
ember þar sem við munum leika
verk eftir föður Mozarts, Leopold
Mozart sem sjálfur var gott tón-
skáld,“ segir Rut og bætir því við
að hingað til lands verði fenginn
franski glerhörpuleikarinn
Thomas Bloch sem muni leika
með sveitinni á tónleikum í mars.
Kammersveit Reykjavíkur fer
einnig nokkrum sinnum út á land
á árinu og líklega tvívegis út fyrir
landsteinana. „Við erum í sam-
vinnu við nokkur bæjarfélög um
að koma til þeirra og leika á tón-
leikum þar, þannig eigum við kost
á að spila verkin okkar oftar en
einu sinni og eins að efla tón-
menningu á viðkomandi stöðum.
Við munum einnig fara á bassa-
klarinetturáðstefnu í Rotterdam
og til Kína þar sem við munum
ferðast um og spila á fimm til sex
tónleikum,“ segir Rut.
KAMMERSVEIT REYKJAVÍKUR Sarah Buckley, Sigurður Bjarki Gunnarsson, Rut
Ingólfsdóttir og Sigurlaug Eðvaldsdóttir leika verk eftir franska tónskáldið Maurice Ravel á
tónleikum í Þjóðmenningarhúsinu á föstudaginn klukkan 20.00.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
IN
AR
Ó
LA
100 ár frá fiingvallakorti Ravels
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
EI
Ð
A