Fréttablaðið - 31.10.2005, Blaðsíða 71
MÁNUDAGUR 31. október 2005
Höfðabakka 1 - sími 587 50 70
Mánudagstilboð
Tveggja stærstu fiskbúða Íslands.
Eitt verð 890kr. kg-
Allir fiskréttir í dag á 890 kr. kg
Fiskur í sósu................................................... 890,-
Marineraðar fiskisteikur.............................. 890,-
Fiskibollur....................................................... 890,-
Lúxusfiskréttir................................................ 890,-
o.s.frv.............................................. allt 890,-
Sara Lind Kolbeinsdóttir og Magnús Þór
Guðjónsson voru gefin saman í Krossinum
9. júlí af séra Gunnari Þorsteinssyni.
MYND/SVIPMYNDIR
Gísli Gíslason, fráfarandi bæjar-
stjóri Akraness, fór í sína síðustu
opinberu heimsókn í alla leikskóla
bæjarins í lok vikunnar. Öll börnin
í leikskólunum þremur, Teigaseli,
Garðaseli og Vallarseli, tóku á móti
bæjarstjóra sínum með virktum,
sungu fyrir hann og gáfu honum
gjafir. Í Teigaseli fékk hann mynd-
verk eftir hinn fimm ára Sindra
Leví og í Garðaseli fékk hann lista-
verk eftir tvær fjögurra ára telpur
og átján rósir sem tákna áttu árin
hans í bæjarstjórastóli.
Börnin í Vallarseli settu upp
kórónur í tilefni dagsins og sungu
fyrir Gísla sem er frægur söng-
maður sjálfur.
Leikskólabörn kvöddu Gísla
KVADDUR MEÐ VIRKTUM Blómarósin Laufey Dís afhenti Gísla myndverk eftir skólabróður
sinn.
BRÚÐHJÓN