Fréttablaðið - 06.10.2006, Blaðsíða 35

Fréttablaðið - 06.10.2006, Blaðsíða 35
[ ] Á LÖNGUM LAUGARDEGI Á MORGUN VERÐUR HALDIN UPPSKERUHÁTÍÐ OG OKTÓBERFEST. Í miðborginni á morgun verður langur laugardagur og Októberfest. Tilboð verða og haldinn verður markaður í risatjaldi á Lækjar- torgi. Á boðstólum verður ýmiss grillmatur, þýskar pylsur, kartöflusalat og bjór. Einnig má fá blóm, lífrænt ræktað grænmeti og annan varning. Harmonikku- og Týrólatónlist verður leikin af hljómlistarmönnum sem spila niður Laugaveg að Lækjartorgi frá klukkan þrjú til fimm. Klukkan fimm mætir hljómsveit á svæðið og spilar til miðnættis. - jóa Októberfest Sannkölluð hátíð verður í miðbæn- um á morgun þegar haldin verður Októberfest og langur laugardagur. Októberfest á morgun. Til að halda í hefðina þá er ekki úr vegi að fá sér einn pilsner eða bjór. Munið bara að eftir einn ei aki neinn. ������������ LKJWELKJERLKJERMaia og fylgihlutir er versl- un sem var nýlega opnuð að Laugavegi 94. Maiu og fylgihlutum, sem var opnuð í síðustu viku, mætti lýsa sem fata- og gjafavöruverslun, með áherslu á vörur frá danska fyrirtækinu Day. Kvenfatnaður frá vörumerk- inu er seldur í versluninni, auk fylgihluta, svo sem belta, klúta og skartgripa. Fötin fást í mörgum stærðum. Gjafavaran, púðar, skálar, kertastjakar og bakkar, er seld undir heitinu Day Home. Auk þess má fá undirföt, barnaföt, bækur og geisladiskar í versluninni, en mest áhersla er lögð á tónlist í rólegri kantinum, til að mynda djass eins og leikinn er í búðinni til að skapa þægilegt andrúmsloft. Verslunin Maia og fylgihlutir er rekin af Eydísi Sæmundsdótt- ur og Kolbrúnu Petreu Gunnars- dóttur, sem rak áður verslunina GK en vörur frá Day voru seldar þar. Gjafavara og góð föt Allt er gert til að láta viðskiptavinum líða vel í Maiu og fylgihlutum. Verslunin Maia og fylgihlutir var opnuð fyrir skemmstu á Laugavegi og þar fást kven- og barnaföt, fylgihlutir, húsbúnaður, tónlist og bækur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Verslunin G-Stars á Laugavegi 86 hefur á boðstólum hráan og töffaralegan klæðnað á ungt fólk. G-Stars er hollenskt vörumerki með höfuðstöðvar í Amsterdam, en hefur verið í örum vexti og versl- anir undir nafni þess hafa opnað víðsvegar um heim, þar á meðal á Íslandi. Eins og heitið G-Stars Raw gefur til kynna er í versluninni lögð sér- stök áhersla á töffaralegan og hráan klæðnað, ef svo má að orði komast, fyrir bæði kynin aðallega á aldursbilinu átján til þrjátíu ára. Gallaföt eru aðalsmerki G-Stars Raw, en fyrirtækið framleiðir þó einnig vandaðar peysur, boli, jakka, skyrtur og alls kyns fylgihluti. Innan G-Stars starfar ástralski iðnhönnuðurinn Mark Newson, sem hefur hannað sérstaka línu sem sker sig úr öðrum fatnaði frá fyrirtækinu að því leyti til að hann er ívið litríkari og víðari en almennt tíðkast og hefur af þeim sökum náð nokkrum vinsældum á meðal þeirra sem kunna að meta hiphop- klæðnað. Þessi fatnaður og margt fleira er nú fáanlegt á Laugavegi 86 þar sem verslunin var opnuð fyrir skömmu. Töffaralegur fatnaður Verslunarhúsnæðið er bjart og rúmgott. Verslunin Couture á Laugavegi 86 býður upp á heimsþekkt vörumerki. Í Couture er meðal annars að finna fatnað frá virtum og rótgrónum vörumerkjum á borð við Tommy Hilfiger og Guess. Fötin frá Tommy Hilfiger heyra undir línu sem er sértsaklega hönnuð fyrir evrópskan markað. Fyrst ber að nefna Tommy Sports- wear, sem er fyrir bæði kynin, og Hilfiger Denim, en í henni eru fal- leg föt á yngri kynslóðina. Fötin frá Guess eru annars vegar hversdagsklæðnaður frá Guess Jeans, peysur og gallabux- ur, auk ýmiss konar fylgihluta, trefla og slíks. Guess Marciano leggur meiri áherslu á spariklæðn- að, svo sem dragtir, kápur og fleira í þeim dúr. Markhópurinn er þó sá sami, það er konur frá tvítugu og upp úr. Þarna er líka hægt að verða sér úti um föt frá Pringle of Scot- land, sem er rótgróinn fatafram- leiðandi, heimsþekktur fyrir vand- aða ullarvöru. Falleg föt á breiðan aldurshóp Hægt er að fá góðan hversdagsklæðnað sem og spariföt í Couture. Föt frá Tommy Hilfiger eru í boði í versl- uninni Couture. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Lauga veg 56 • Sími 551 7600 15% afsláttur af röndóttum Ritvu Falla ullartoppum um helgina
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.