Fréttablaðið - 21.06.2007, Blaðsíða 82
Norska úrvalsdeildin
Norska 1. deildin
Sænska 1. deildin
Charlton ætlar ekki að
gefa sig og segir að kaupverð-
ið á Darren Bent sé 17 milljónir
punda, ekkert minna en það dugi.
West Ham komst að samkomulagi
um kaup á Bent sem síðan hafði
ekki áhuga á því að fara til félags-
ins. Tottenham er talið vera reiðu-
búið að borga 13 milljónir fyrir
framherjann.
Kostar 17 millj-
ónir punda
Vísir.is hóf í gær und-
irskriftasöfnun þar sem íslenska
þjóðin getur skorað á Alfreð Gísla-
son um að halda áfram með hand-
boltalandsliðið. Má í raun segja að
um þjóðarátak sé að ræða.
Alfreð sagði eftir leik Íslands og
Serbíu að hann hefði mikinn áhuga
á því að þjálfa handboltalandslið-
ið áfram en vissi ekki hvort hann
hefði hreinlega tíma fyrir starfið
en hann þjálfar eitt besta félagslið
heims, Gummersbach.
Þjálfarinn bað HSÍ um tíma til
að skoða sín mál á meðan hann
væri í sumarfríi. Þann tíma hefur
HSÍ ákveðið að veita honum.
Íslenska þjóðin getur farið inn
á Vísir.is og sett nafn sitt á undir-
skriftalistann og með því lýst yfir
stuðningi við Alfreð en margir
mega ekki til þess hugsa að lands-
liðið mæti í næstu stórkeppnir án
Alfreðs sem hefur unnið hug og
hjörtu þjóðarinnar frá því hann
tók við liðinu.
Alfreð Gíslason má ekki hætta
Akureyringurinn Árni
Þór Sigtryggsson hefur samið
við spænska handboltaliðið Gran-
ollers en hann hefur leikið með
Haukum síðustu ár.
Árni ákvað að róa á önnur mið
eftir síðasta vetur og lengi vel
leit út fyrir að hann færi til Dan-
merkur eða aftur heim til Akur-
eyrar. Þau áform breyttust öll
því hann er búinn að semja við
spænska liðið.
Árni er ekki fyrsti Íslendingur-
inn til að spila með þessu liði en
Geir Sveinsson var í herbúðum
þess á sínum tíma.
Farinn til
Spánar
Alan Shearer, fyrrum
fyrirliði og ein helsta goðsögn
Newcastle fyrr og síðar, hefur
varað Sam Allardyce, nýráðinn
stjóra félagsins, við því að semja
við Craig Bellamy.
Bellamy yfirgaf herbúðir New-
castle fyrir tveim árum síðan og
var þá búinn að gera allt vitlaust
í herbúðum liðsins. Shearer vill
ekki sjá hann aftur hjá félaginu.
„Er enginn búinn að læra af
fyrri reynslu? Ef Benitez hefði
hringt í mig á sínum tíma þá
hefði ég sagt honum nákvæmlega
hvernig Craig er,“ sagði Shearer.
„Ég var í fríi í Frakklandi með
fjölskyldu og vinum þegar konan
mín tók upp dagblað og ég sá
orðróminn. Fram að því var þetta
góður dagur og ég þurfti klárlega
að fá mér nokkra drykki í við-
bót eftir þetta áfall. Ég fékk mér
nokkra. Vonandi er ekkert satt í
þessu máli.“
Vill ekki sjá
Bellamy