Morgunblaðið - 16.05.2006, Side 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 16. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Lagadeild
Allar upplýsingar í síma 525 4386 og á www.hi.is.
Umsóknarfrestur er til 6. júní.
Laganám í Háskóla Íslands:
Metnaður, gæði og árangur.
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
dæmdi í gær karlmann á fimmtugs-
aldri í tveggja ára fangelsi fyrir kyn-
ferðisbrot gegn fimm stúlkubörnum
á árunum 1995–2005. Auk þess var
hann sakfelldur af ákæru fyrir
barnaklám vegna 210 barnaklám-
mynda sem fundust í tölvu hans en
hann var sýknaður vegna 16 mynda.
Hafði hann ljósmyndað tvær telpn-
anna í klámfengnum tilgangi og var
hann dæmdur til að greiða börnun-
um fimm alls 2,3 milljónir króna í
skaðabætur, þar af voru hæstu bæt-
urnar 800 þúsund krónur til telpu
sem þá var níu ára og hann braut
gegn á Þingvöllum árið 1998 en
yngsta barnið var þriggja ára þegar
ákærði braut gegn því árið 1999.
Börnin tengdust flest manninum
einkum í gegnum börn hans sjálfs og
taldi dómurinn að brot hans væru al-
varleg trúnaðarbrot, sem beindust
að stúlkum er honum var beint og
óbeint treyst fyrir þegar þær voru
litlar.
Atvikin voru þannig að ein telpan
hafði gist hjá dóttur ákærða þegar
hann braut gegn henni og önnur var
nágranni hans í útilegu með honum
og börnum hans þegar hann braut
gegn henni. Af einni tók hann ljós-
myndir í afmæli barna sinna og
skeytti myndinni saman við aðra
mynd af berum karli svo úr varð
klámmynd. Af annarri telpu tók hann
myndir þegar hún var nakin úti í
garði heima hjá honum ásamt dóttur
hans. Taldi dómurinn þessar mynda-
tökur hafa valdið börnunum miska.
Ákærði neitaði sök að mestu en
var sakfelldur fyrir brotin, utan
sýknu fyrir nokkrar myndir og eitt
ákæruatriði varðandi Þingvallaferð-
ina.
Í skýrslu félagsráðgjafa vegna
telpunnar sem hæstar bæturnar
fékk, kom fram að sjálfsmynd henn-
ar væri mjög veik og taldi dómurinn
að þó svo hún byggi við aðra röskun í
lífi sínu hefði brot ákærða gagnvart
henni vissulega verið til þess fallið að
valda henni miska. Um yngsta barnið
sagði félagsráðgjafi að hún væri
óvenjulega uppstökk, kvíðin og grát-
gjörn, hefði átt erfitt með að slaka á
og sífellt verið að kvarta undan
magaverkjum. Þessa líðan mætti
rekja til háttsemi ákærða.
Um aðra telpuna sem ákærði ljós-
myndaði sagði félagsráðgjafinn að
atburðurinn sækti mjög á barnið og
truflaði daglegt líf hennar. Brotin
hefðu haft í för með sér neikvæð
áhrif á geðheilsu og félagslega aðlög-
un og hefðu jafnframt leitt til nei-
kvæðrar sjálfsmyndar hennar og lít-
ils sjálfstrausts. Óvissa um hvort
myndunum hefði verið dreift á net-
inu væri stúlkunni óbærileg.
Gríðarleg áhrif og
röskun á lífi telpunnar
Brot gegn þeirri telpu sem gisti
heima hjá dóttur ákærða taldi fé-
lagsráðgjafi þá að hefðu haft gríðar-
leg áhrif og röskun á líf og líðan
hennar. Hefði hún fengið sífelldar
martraðir og slæm kvíðaköst í kjöl-
far atburðanna og gæti hún þurft að
fá frekari meðferð til að takast á við
afleiðingarnar þegar hún yrði full-
orðin.
Það framferði ákærða að ljós-
mynda eina telpuna í barnaafmælinu
taldi dómurinn mjög ófyrirleitið og
til þess fallið að valda henni tjóni.
Málið dæmdu héraðsdómararnir
Símon Sigvaldason dómsformaður,
Þorgerður Erlendsdóttir og Jónas
Jóhannsson. Sá síðastnefndi skilaði
séráliti í málinu og vildi dæma
ákærða í 15 mánaða fangelsi í stað 24
eins og meirihluti dómsins. Sagðist
hann sammála niðurstöðum dóm-
enda um sakfellingu ákærða, þó
þannig að brot ákærða á Þingvöllum
teldist ekki fullsannað. Þá setti dóm-
arinn fyrirvara um sakfellingu sam-
kvæmt þeim köflum í ákærunni sem
fjölluðu um brotin gagnvart telpunni
sem gisti heima hjá dóttur ákærða og
um barnaklámmyndirnar. Sagðist
dómarinn hins vegar ósammála rök-
semdafærslu fyrir sakfellingu, sem
og fjárhæð dæmdra miskabóta sem
hann vildi að yrðu 1,3 milljónir í stað
2,3 milljóna.
Verjandi ákærða var Guðrún Sess-
elja Arnardóttir hdl. og sækjandi
Ragnheiður Harðardóttir vararíkis-
saksóknari.
Tveggja ára fangelsi fyrir
kynferðisbrot gegn fimm telpum
ÍSLENSK erfðagreining og banda-
ríska fyrirtækið Illumina greindu frá
því í gær að komist hefði á samstarf
um að þróa og markaðssetja DNA-
greiningarpróf fyrir algenga sjúk-
dóma.
Tæknin mun auðvelda vísinda-
mönnum Íslenskrar erfðagreiningar
vinnu sína og hugsanlega skapa fyr-
irtækinu tekjur.
Í samstarfinu felst að tækni sem
Illumina hefur þróað til að skima
breytileika í erfðamenginu verður
notuð við þróun greiningarprófa.
Prófin snúa að erfðabreytileika sem
vísindamenn Íslenskrar erfðagrein-
ingar hafa sýnt fram á að tengist
auknum líkum á fjölda algengra og
alvarlegra sjúkdóma, að því er fram
kemur í fréttatilkynningu frá fyrir-
tækjunum.
Samstarfið mun í fyrstu taka til
þróunar og mögulegrar markaðs-
setningar á prófum til að greina
breytileika í þremur erfðavísum sem
tengjast hjartaáföllum, sykursýki af
gerð 2 og brjóstakrabbameini. Þró-
unarkostnaði og hugsanlegum tekj-
um af sölu greiningarprófa verður
deilt á fyrirtækin.
Tæknibúnaður frá Illumina verð-
ur settur upp í höfuðstöðvum Ís-
lenskrar erfðagreiningar, sem gerir
fyrirtækinu kleift að bjóða viðskipta-
vinum sínum á sviði arfgerðargrein-
inga upp á víðtæka þjónustu við slík-
ar skimanir auk þess sem
vísindamenn fyrirtækisins munu
einnig nota þessa aðstöðu til að
framkvæma mjög nákvæmar skim-
anir á öllu erfðamenginu í erfðarann-
sóknum sínum á algengum sjúkdóm-
um.
Kári Stefánsson, forstjóri ÍE, seg-
ir að fyrirtækið sé mjög ánægt með
þá tækni sem Illumina leggur til
samstarfsins og að það sé spennandi
að hefja samstarf um þróun og
markaðssetningu nýrrar kynslóðar
DNA-greiningarprófa.
ÍE og Illumina
þróa saman DNA-
greiningarpróf
„ÞETTA leggst alveg rosalega vel í
mig,“ sagði Bjarki Birgisson í gær-
morgun rúmum tveimur tímum eft-
ir að hann og Gyða Rós Bragadóttir
lögðu af stað í hringferð sína á hjóli
í kringum landið, en þau hjóla til
styrktar Barna- og unglingageð-
deild LSH.
Bjarki sagði að þau reiknuðu
með að taka hringinn á um það bil
78 dögum og bjóst við því að Kjalar-
nes yrði þeirra fyrsta stoppistöð á
leiðinni.
Að sögn Bjarka munu þau hjóla
norður og fara bæði Vestfirði og
Austfirðina alla og ætla þau að
skipta hjólatúrunum í 50–100 km
dagleiðir. Auk þess að safna fé fyrir
BUGL vilja þau með þessu sýna að
allt sé öllum fært ef viljinn er fyrir
hendi en Bjarki gekk ásamt Guð-
brandi Einarssyni hringinn í kring-
um landið í fyrra í verkefninu
„Haltur leiðir blindan“.
Morgunblaðið/ÞÖK
Bjarki og Gyða lögð af stað hringinn
RÁÐSTEFNA breska tímaritsins
The Economist um íslensk efna-
hagsmál var haldin á Hótel Nordica í
gær og kom nokkur hópur mótmæl-
enda saman fyrir utan hótelið.
Eins og sjá má á myndinni voru
mótmælendur með borða þar sem
frekari álversframkvæmdum var
mótmælt en einnig mátti hjá mót-
mælendum sjá slagorð eins og „Ís-
land er ekki til sölu“ auk þess sem
merki Landsvirkjunar var teiknað á
borða með titlinum „Illvirkjun“.
Mótmælendur vildu meðal annars
vekja athygli á því hvernig upplýs-
ingar um Ísland og orkufram-
leiðslugetu landsins voru settar
fram í tengslum við ráðstefnuna.
Morgunblaðið/RAX
Mótmæltu álversframkvæmdum
FUGLALÍFIÐ er afar fjölbreytt í
Elliðaárdalnum í Reykjavík. Hægt
er að ganga að því vísu að sjá þar
endur, álftir og mófugla. Ljós-
myndari rakst einnig á þessa fal-
legu rjúpu sem var að spígspora í
dalnum. Eins og sjá má er rjúpan
enn í vetrarlitunum og því áberandi
í landslaginu.
Morgunblaðið/Ómar
Rjúpan enn
í vetrarlitum