Morgunblaðið - 16.05.2006, Side 18
Húsavík | Helgi Héðinsson fylgist hér með Óðni
Sigurðssyni blóðga hákarl sem þeir félagar fengu
um helgina á hákarlalínu Helga. Hún liggur í sjó á
Skjálfanda.
Línuna drógu þeir á vélbátnum Fram ÞH sem
Óðinn Sigurðsson á bátinn og gerir hann út frá
Húsavík. Helgi Héðinsson, sem er mikill veiði-
maður, er með tvær línur í sjó og hefur fengið þrjá
hákarla á þær í vor og verkar hann þá sjálfur.
Samvinna þeirra er greinilega til fyrirmyndar.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Hákarl blóðgaður
Á bryggjunni
Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri sími 461-1601, Skapti Hallgrímsson,
skapti@mbl.is, 669-1114. Vesturland Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og
Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir,
frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Þrír framboðslistar eru í kjöri í Bolung-
arvík fyrir bæjarstjórnarkosningarnar 27.
maí nk. A-listi, Afls til áhrifa, en fyrsta sæti
hans skipar Anna Edvardsdóttir, D-listi
sjálfstæðisfélaganna í Bolungarvík, fyrsta
sæti hans er skipað Elíasi Jónatanssyni og
K-listi þar sem Soffía Vagnsdóttir skipar
fyrsta sætið. Nú er væntanlega að renna
upp lokasprettur framboðanna enda kosn-
ingaskrifstofurnar farnar að flagga og bæj-
arbúar geta stungið sér inn í kaffi og rætt
málin við frambjóðendur. Það hefur heldur
lifnað yfir umræðunni um bæjarmálin hina
síðustu daga enda nú sá tími þegar upp-
skeran síðustu fjögurra ára er skoðuð og
metin.
Í vetur og vor hafa staðið yfir rannsóknir
til undirbúnings jarðganga á Óshlíð en rík-
isstjórnin ákvað á fundi sínum í september
sl. að bregðast við þeirri hættu sem að veg-
farendum stafar á þeirri leið með því að
ráðast í gerð 1.220 metra jarðganga undir
Óshyrnu. Í kjölfar rannsóknanna og fyrir
áeggjan Bolvíkinga og nágranna þeirra hef-
ur Vegagerðin nú ákveðið að hefja rann-
sóknir á þremur öðrum kostum en það eru
göng frá Bolungarvík og í Seljadal og mun
þá vegurinn liggja áfram fyrir Búðarhyrnu
sem skilur að Seljadal og Hnífsdal. Annar
kostur sem skoðaður verður er jarðgöng
frá Bolungarvík og inn í Hnífsdal og í þriðja
lagi verður kannað um jarðgöng frá Syðri-
dal og í Tungudal við Skutulsfjörð. Reiknað
er með að þessar rannsóknir hefjist í júní
næstkomandi og áætlar Vegagerðin að
þeim verði lokið með haustinu.
Því er ekki að neita að mikill áhugi er fyr-
ir framvindu þessara mála hér í Bolung-
arvík þar sem eina samgönguleiðin við
byggðarlagið er um Óshlíðarveg þar sem
öryggi vegfarenda er ekki ásættanlegt sök-
um hættu á grjóthruni á veginn auk þess
sem að leiðin er þekkt snjóflóðasvæði á
vetrum. Annars horfa Bolvíkingar bjart-
sýnir fram á veginn.
Aflabrögð hafa verið með ágætum og
aukning á lönduðum afla í öllum mánuðum
það sem af er kvótaárinu nema í aprílmán-
uði. Atvinna hefur að sama skapi verið stöð-
ug hjá fiskvinnslunum tveimur, Bakkavík
og fiskvinnslu Jakobs Valgeirs. Að sögn
grásleppukarla hefur aflinn á vertíðinni
verið mjög góður en verðið á hrognunum
hins vegar ekkert til að hrópa húrra yfir
eins og einn þeirra orðaði það.
Úr
bæjarlífinu
BOLUNGARVÍK
EFTIR GUNNAR HALLSSON FRÉTTARITARA
Guðrún Sigfúsdóttir, kaupmaður íGrímskjörum í Grímsey, bauðviðskiptavinum sínum nýbakað
brauð, snúða, kringlur og fleira gott.
Þetta mun vera í fyrsta sinn sem
Grímseyingar geta labbað út í búð og
fengið bakkelsi, nýkomið úr bakaraofn-
inum, rétt eins og aðrir landsmenn.
Sérstakur ofn og efni frá Myllu-
bakstri í Reykjavík gerir Guðrúnu
kaupmanni þetta kleift. Nú má sjá
unga og eldri koma brosandi úr
búðinni, berandi nýbakað brauðmeti
heim í húsin.
Morgunblaðið/Helga Mattína
Nýbakað Guðrún Sigfúsdóttir kaupmaður við bakaríshornið í Grímskjörum.
Í fyrsta sinn nýbakað bakarísbrauð
Séra Hjálmar Jóns-son orti á ælupokaí flugvél. Rúnar
Kristjánsson orti:
Hjálmar orti á ælupoka,
atgervið í loftið bar.
Andagiftarleiðsluloka
leit ei nokkur maður þar.
Prestar ýmsir ættu því,
út á kosti drjúga,
að una meira upp við ský
svo andinn megi fljúga!
Hafsteinn Stefánsson
þakkaði fyrir góðan há-
degisverð:
Sæt er soðin ýsa
satt er það.
Er þetta ekki vísa
eða hvað?
Hann virðist hafa verið
matmaður, þakkaði góð-
an kvöldverð á Hrafnistu:
Að kokkarnir fagið sitt kunni
hvort það nú er.
Ljúffengur mígur í munni
maturinn hér.
Ort á ælupoka
pebl@mbl.is
Akranes | Akraneskaupstaður, Leirár- og
Melahreppur, Skilmannahreppur, Hval-
fjarðarstrandarhreppur og Innri-Akranes-
hreppur hafa gert nýja samninga um sam-
starf á ýmsum sviðum. Sveitarfélögin
fjögur sem standa að samkomulaginu við
Akranes sameinast í eitt eftir komandi
sveitarstjórnarkosningar.
Sveitarfélögin síðasta haust starfshóp til
að endurskoða samstarfssamninga á milli
sveitarfélaganna, skoða nýja samstarfs-
fleti og endurskoða skipulagsskrár tveggja
sameignarstofnana, Dvalarheimilisins
Höfða og Byggðasafnsins í Görðum.
Starfshópurinn skilaði tillögum sínum til
sveitarstjórnanna í mars mánuði sl. og
hafa sveitarfélögin nú samþykkt samn-
ingana og skipulagsskrárnar og voru þeir
undirritaðir í Safnaskálanum að Görðum
12. maí sl.
Gerður var samstarfssamningur um
brunavarnir og eldvarnareftirlit, ýmis
málefni á sviði félags- og íþróttamála, fé-
lagsstarf aldraðra, bókasafnsþjónustu,
samningur um meðferð og eyðingu sorps,
samkomulag um rekstur tónlistarskóla og
skipulagsskrár fyrir Dvalarheimilið Höfða
á Akranesi og Byggðasafnið í Görðum.
Einnig var undirrituð viljayfirlýsing um
skoðun á frekara samstarfi sveitarfélag-
anna, m.a. á sviði almenningsíþrótta og
útivistar, barnaverndar- og félagsmála og
safnamála.
Akurnesingar
og nágrannar
endurnýja
samstarf
Stykkishólmur | Íslenska vitafélagið
stendur fyrir norrænni ráðstefnu í Stykk-
ishólmi dagana 25. og 26. maí næstkom-
andi. Yfirskrift ráðstefnunnar er „Vitar og
strandmenning á Norðurlöndum 2006“.
Markmið ráðstefnunnar er að fylgja eft-
ir þeim árangri sem náðst hefur frá því
norræna ráðstefnan „Fyr for folk i Norden
2003“ var haldin í Noregi. Í kjölfar hennar
og stofnunar Íslenska vitafélagsins voru
fyrstu vitar landsins friðaðir og nú er fólk
smám saman að vakna til vitundar um
þann auð sem er falinn við strendur lands-
ins og hvernig hægt er að nýta vita og aðr-
ar strandminjar til atvinnuuppbyggingar
og nýsköpunar, segir í fréttatilkynningu. Á
ráðstefnunni er ætlunin að vinna áfram
með menningararfinn og gefa þátttakend-
um kost á að læra hver af annars reynslu.
Ráðstefna um
vita og strand-
menningu
♦♦♦
Önglaverksmiðja
Höfum til sölu einu önglaverksmiðju landsins. Eins og flest-
ir vita þá er þorskurinn þjóðlegur og vill helst bíta á íslenska
öngla. Að sjálfsögðu. Verksmiðjan er staðsett á höfuðborg-
arsvæðinu en getur hæglega verið staðsett hvar sem er á
landinu. Frambjóðendur: Vantar ykkur ekki kosningaloforð
sem getur eflt atvinnuástandið í heimabyggð? Verð aðeins
kr. 12 millj. með hráefni sem fylgir. Hafið samband við
Reyni, 896 1810 eða við skrifstofuna. Næstu daga verða að-
eins framleiddir kosningaönglar með loforðabeitu fyrir alla
flokka.
Nánari upplýsingar veittar á skrifstofunni, ekki í síma eða
á netinu.
Skráin á netinu: www.fyrirtaeki.is
Elsta fyrirtækjasala á landinu
Lögg. fasteignasali: Bergur Guðnason hdl.
Elsta fyrirtækjasalan á landinu.
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn