Morgunblaðið - 16.05.2006, Síða 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 16. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
AUSTURLAND
SUÐURNES
Egilsstaðir | 48 konur útskrifuðust á laug-
ardag frá Viðskiptaháskólanum á Bifröst úr
rekstrarnáminu Mætti kvenna. Austfirskar
konur voru þar í miklum meirihluta. Máttur
kvenna er þriggja mánaða langt námskeið
sem bæði var kennt á Bifröst og í fjarnámi.
Er það ætlað konum sem hafa áhuga á að
bæta rekstrarþekkingu sína. Áður hafa 105
konur útskrifast úr sama námi.
„Þetta var afar frambærilegur hópur og
myndaðist frábær stemning hjá konunum
þessa þrjá mánuði sem þær stunduðu nám-
ið,“ segir Geirlaug Jóhannsdóttir, verk-
efnastjóri símenntunar hjá Viðskiptaháskól-
anum á Bifröst.
„Við áttum frábærlega skemmtilega helgi
saman í Borgarfirðinum, heimsóttum
Hvanneyri, fórum í hádegisverð að Fossa-
túni hjá Steinari Berg og héldum til á Hótel
Hamri, fyrsta og eina golfhóteli á Íslandi.
Konurnar í útskriftarhópnum komu víðs-
vegar af landinu, flestar frá Austfjörðum
eða 31 talsins.
Útskriftarathöfnin var hátíðleg eins og
aðrar útskriftir við skólann og flutti Ólöf
Nordal hátíðarræðu. Kristjana Björnsdóttir
frá Borgarfirði eystri flutti afar skemmti-
legt ávarp fyrir hönd austfiskra kvenna en
þar lagði hún út af reynslu sinni af náminu
og tæknilegum hindrunum sem hún þurfti
að glíma við.“
Geirlaug segir námið hafa verið konunum
mikil hvatning til áframhaldandi náms og sé
stór hluti hópsins að velta fyrir sér fram-
haldsnámi við Viðskiptaháskólann á Bifröst
og nokkrar umsóknir hafi þegar borist.
Ljósmynd/Bifröst
Kátar konur Útskriftarhópurinn úr Mætti kvenna ásamt kennurum og verkefnisstjóra.
Rúmlega 30 austfirskar konur útskrifuðust úr rekstrarnámi frá Bifröst um helgina
Fjarnám skapar tækifæri
Fljótsdalshérað | Reiknað er með að öll þau
börn sem voru á biðlista eftir leikskólaplássi
á Fljótsdalshéraði og fædd eru árið 2004
verði komin í leikskóla í haust. Þetta eru
rúmlega 90% þeirra barna sem fædd eru árið
2004 og búa í sveitarfélaginu. Árgangur
2004 var óvenju fjölmennur og eru börn
fædd það ár 50% fleiri á Fljótsdalshéraði en í
öðrum árgöngum. Fjöldi þeirra samsvarar
þremur leikskóladeildum.
Þau börn á biðlista eftir leikskólaplássi,
sem fædd eru árið 2005 og náð hafa eins árs
aldri í ágúst næstkomandi eru einnig búin að
fá pláss á leikskóla í haust en það eru um
60% barna af 2005 árganginum í sveitarfé-
laginu. Með þessu er ekki lengur virkur bið-
listi eftir leikskólaplássi á Fljótsdalshéraði.
Öll börn fá
leikskólapláss
Engir listar í Fljótsdal og Borgarfirði |
Óbundnar kosningar verða í Fljótsdals- og
Borgarfjarðarhreppum, þar sem engir fram-
boðslistar komu fram fyrir tilskilinn frest. Hef-
ur þessi háttur verið hafður á í sveitarfélög-
unum tveimur og ekki vitað til að kosið hafi
verið um lista þar í sveitarstjórnarkosningum.
Óbundnar kosningar eru persónukosningar,
þar sem kjör er ekki bundið framboðum og allir
kjósendur í kjöri, nema þeir sem löglega eru
undanþegnir skyldu til að taka kjöri og hafa
fyrir fram skorast undan því.
♦♦♦
Vogar | Hulda Hrönn Agnarsdóttir
sundkona var útnefnd Íþróttamaður
ársins í Sveitarfélaginu Vogum á há-
tíð sem haldin var um helgina í bæn-
um. Hún er í sundlandsliði fatlaðra.
Þrír einstaklingar voru tilnefndir
við kjör Íþróttamanns ársins í Vog-
um. Haukur Harðarson knatt-
spyrnumaður hefur skarað fram úr á
sínu sviði, segir í frétt um kjörið, var
meðal annars valinn í úrtakshóp fyr-
ir íslenska landsliðið á síðasta ári.
Íris Ósk Hafsteinsdóttir sundkona
vann flestar greinar á þeim sund-
mótum sem hún tók þátt í á síðasta
ári. Hún komst meðal annars inn á
afrekaskrá Sundsambands Íslands.
Íþróttamaður ársins í Vogum,
Hulda Hrönn Agnarsdóttir, varð í
þriðja sæti á Nýárssundmóti fatl-
aðra barna og unglinga og vann til
verðlauna á sundmóti í Malmö.
Hulda er í sundlandsliði fatlaðra og
keppir þar í unglingaflokki. Hulda
hefur þrisvar sinnum unnið Íslands-
meistaratitil.
Hulda Hrönn
íþróttamaður ársins
Reykjanesbær | Fjöldi
manns tók þátt í Frí-
stundahátíð í Reykjanesbæ
á laugardag en hátíðin er
haldin ár hvert að vori.
Markmið hátíðarinnar er að
kynna það mikla hand-
verks- og tómstundastarf
sem þrífst í Reykjanesbæ
og nágrannasveitafélög-
unum. Tómstundabandalag
Reykjanesbæjar hélt utan
um hátíðina.
Það sem einkennir Frí-
stundahátíðina fyrst og
fremst er að gestum verður
ljóst að það er hægt að
stunda mjög fjölbreytt tóm-
stundastarf, hvort sem
áhugasviðið krefst spennu
og áhættu, sköpunar, hug-
vits eða hreyfingar. Á Frí-
stundahátíð finna líka allir
aldurshópar skemmtun við
sitt hæfi.
Unga fólkið var sér-
staklega hrifið af fjarstýrðu
bílunum sem Smábílaklúbb-
ur Íslands var að kynna og
fisvélarnar sem stóðu utan
við Reykjaneshöllina heill-
uðu, enda mátti setjast und-
ir stýri eftir að hafa fengið
leyfi. „Vá, lyklarnir eru í,“
kallaði einn en var góðfús-
lega bent á að fikta alls
ekki. Ekki minni lukku
gerðu mótorhjólin sem
stóðu í röðum í húsakynn-
um Íþróttaakademíunnar
og marga klæjaði í puttana
af löngun eftir að taka í.
Meðlimir í Bifhjólaklúbbn-
um Erni, sem stóðu að sýn-
ingunni, notaðu tækifærið
og minntust félaga síns
John Joseph Cramer sem
lést í mótorhjólaslysi á dög-
unum og rituðu margir
nöfn sín í minningabók.
Í tilefni Frístundahátíðar
efndi Byggðasafn Reykja-
nesbæjar til opins dags í
nýju húsnæði safnsins við
Njarðarbraut. Þar er aðal
munageymsla safnsins og
er opnun geymslunnar til-
raunaverkefni til að víkka
út rekstur byggðasafnsins í
átt til tómstunda almenn-
ings. Kynning safnkostsins
hefur eflaust orðið mörgum
áhugasömum uppspretta
hugmynda eins og vonir
stóðu til. Rúnturinn lá svo
um fleiri söfn sem einnig
voru opin þennan dag, ný-
vígða Vatnaveröld í Sund-
miðstöð Reykjanesbæjar og
handverkssýningu eldri
borgara í Selinu, sem einn-
ig verður opin næstu daga.
Engan þarf að vanta tómstundaiðju
Eftir Svanhildi Eiríksdóttur
Gaman að taka í Fisfélagið Sléttan sýndi fisvélar sem vöktu lukku hjá ungu kynslóðinni.
Sumir vildu komast lengra á vélinni eftir að hafa rekið augun í lyklana í kveikjulásnum.
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Ekkert mál að „joggla“ Leikfélag Keflavíkur bauð gestum og gangandi að prófa margskonar sirkuslistir. Það virtist
ekkert mál að „joggla“ við fyrstu sýn en reyndist erfiðara þegar keilurnar voru komnar í hendurnar. Það fengu margir
að reyna í Reykjaneshöllinni. Leikhúsfólkið var þó þaulreynt eins og meðfylgjandi mynd ber með sér.
Reykjanesbær | Um 50 manns
mætti á opinn fræðslufund foreldra-
félaga í Heiðarskóla í Reykjanesbæ
með Þórarni Tyrfingssyni, yfirlækni
SÁÁ. Þar kom fram að ein helsta vá
er steðjar að unglingum í dag er
neysla á kannabisefnum. Hún kem-
ur af stað mikilli fíkn, kvíða, þung-
lyndi og gerir ungt fólk vanvirkt í líf-
inu, segir í fréttatilkynningu. Fram
kom hjá Þórarni að ef svo fer fram
sem horfir, verða afleiðingar
kannabisneyslu að alvarlegu geð-
heilbrigðisvandamáli á Íslandi. Tals-
verðar umræður sköpuðust og var
m.a. rætt um spilafíkn, hvort hægt
væri að tala um tölvufíkn, hvernig
fullorðnir ættu að umgangast áfengi
í námunda við börn og unglinga o.fl.
Kannabisneysla að
verða alvarlegt geð-
heilbrigðisvandamál