Morgunblaðið - 16.05.2006, Side 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 16. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Hrúturinn er í þann mund að verða
uppiskroppa með eitthvað sem hann
notar á hverjum degi. Nú áttu að nota
tækifærið og auka varaforðann, þegar
allt er á góðum kjörum. Athugaðu að
ekki er víst að um sé að ræða eitthvað
efnislegt.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Fólk reynir að ná athygli þinni og vill
hana alla. Hlustaðu vandlega þegar ást-
vinir tala og hlustaðu á allt sem þeir
hafa fram að færa. Ef þú hlustar ekki
leiðir það bara til vandræða og misskiln-
ings.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Lítillæti verður mikilvægur eiginleiki í
dag og bæði kurteislegt og nauðsynlegt
að þakka fyrir sig í dag. Þú segir það
með þeim hætti að allir átta sig á því að
þú vilt sýna raunverulegt þakklæti.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Ef maður mætir erfiðri áskorun er ekki
óeðlilegt að stíga skref afturábak. En
það sem gefur besta raun er að standa
kyrr og sýna sjálfstraustið án þess að
depla auga.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú ættir að skreppa úr hverfinu, borg-
inni eða jafnvel landinu ef þú vilt leysa
viðfangsefni sem tengist heimilinu. Net-
ið auðveldar þér að leita svara í veröld-
inni eins og hún leggur sig.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Flókin viðskiptaskref koma við sögu.
Meyjan er akkúrat rétta manneskjan til
þess að dansa í slíkum meistaraballett.
Almennt séð verður lífið auðveldara ef
þú helgar þig því að hjálpa öðrum.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Kannski var það áreynslulaus hláturinn
eða opinskátt brosið, en einhverra hluta
vegna er vogin komin með fylgifisk.
Vertu meira en kurteis. Gefðu þessari
manneskju dálítið af tíma þínum. Þú
sérð ekki eftir því.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdrekinn glímir við meiriháttar
áskoranir í vinnunni. Notaðu orðið
ómögulegt eins lítið og þú getur, eða
helst alls ekki. Einhver á eftir að sanna
að þetta sé hægt, svo það gæti allt eins
verið þú.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Svo gæti virst sem að maður eigi að
leysa hagnýt verkefni fyrst, en hið
gagnstæða er rétt. Viltu virkilega láta
muna eftir þér fyrir það hversu skipu-
lögð kvittanaskúffan þín er? Helltu þér
út í það sem er duttlungafullt, fáránlegt
og ástríðuþrungið.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú ert manneskjan sem heldur voninni
lifandi. Ef þú helgar þig göfugum mál-
stað tekst þér að ná þínum metnaðar-
fyllstu takmörkum. Öryggi sprettur af
því að treysta sjálfum sér, ekki pening-
um.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Hinn gullni meðalvegur er töframantra.
Þú kannt hana og öðrum líður betur
með þér en ella þar af leiðandi. Taktu
eftir: Þér er óhætt að fjárfesta í áhættu-
fyrirtæki vinar, án þess að sambandið
líði.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Fiskurinn hefur látið heillast af nýrri
persónu. Hvernig á hann að fara að því
að nálgast þessa frábæru manneskju?
Notaðu tækifærið og vertu barnalegur,
galsafenginn og ómótstæðilegur.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
Orka jarðarmerkjanna
einkennir daginn. Sól í
nauti og tungl í steingeit
eru gamlir vinir og félagar í verki. Nýttu
þér afkastamikið samband þeirra með
því að sökkva þér niður í verkefnin eftir
klukkan fimm, sama hvort þú færð eitt-
hvað í staðinn eða ekki. Þér finnst þú
ábyggilega hafa komið að miklum notum
þegar þú leggur höfuð á kodda í kvöld.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Tónlist
Café Rosenberg | Í dag, 16. maí, mun
Plextett Sextett spila kl. 21 og er frítt inn.
Langholtskirkja | Vortónleikar kvennakórs
Léttsveitar í Langholtskirkju verða í kvöld
og 19. maí kl. 20.30. Flutt verða spænsk og
ensk lög og lög eftir íslensk tónskáld. Kór-
stjóri er Jóhanna V. Þórhallsdóttir. Miða-
sala hjá kórkonum, í síma 897 1885, eða
við innganginn.
Myndlist
101 gallery | Steingrímur Eyfjörð – Bein í
skriðu. Til 3. júní.
Bókasafn Garðabæjar | 13 myndlist-
arnemar úr Garðabæ með málverkasýn-
ingu í húsnæði Bókasafns Garðabæjar.
Café Karólína | Gunnar Kristinsson sýnir
málverk, teikningar og prjónaskap þar sem
sigurlið heimsmeistarakeppninnar í knatt-
spyrnu 2006 er kynnt. Til 2. júní.
DÍH | Málverkasýning Jóns Inga Sigur-
mundssonar – Við ströndina – í Óðinshúsi,
Eyrarbakka. Til 28. maí.
Energia | Kristín Tryggvadóttir – Rauður
þráður. Myndirnar á sýningunni eru ellefu
talsins og eru þær raunverulegar myndir
úr mannlífinu, málaðar með blandaðri
tækni – akríl á striga. Til 19. maí.
Gallerí Galileó | Myndlistasýning Ernu
Guðmarsdóttur í Galleríi Galileo, Hafnar-
stræti 1–3. Á sýningunni eru 26 myndverk
og myndefnið sótt í íslenska náttúru.
Gallerí Humar eða frægð! | Sýning með
hljóðtengdum myndverkum í tilefni Fjöl-
ljóðahátíðar. Finnbogi Pétursson, Haraldur
Jónsson, Steingrímur Eyfjörð, Kira Kira,
Ólafur J. Engilbertsson og listnemar við
LHÍ sem sýna bókverk.
Gallerí Lind | Listamaður maímánaðar er
Guðrún Benedikta Elíasdóttir, hún sýnir
akrílmálverk sem eru að mestu máluð í
Frakklandi á síðastliðnu ári. Til 20. maí.
Gallerí Úlfur | Gallerí Boreas frá New York
sýnir verk eftir Adam Bates. Sýningin
„Sögur“ stendur yfir til 31. maí.
Hafnarborg | Rósa Sigrún Jónsdóttir er
myndhöggvari mánaðarins í Hafnarborg.
Verkin sem Rósa sýnir nú í kaffistofu
Hafnarborgar ganga undir heitinu „Svart-
hvítir dagar“. Til 29. maí.
Hafnarborg | Örn Þorsteinsson mynd-
höggvari sýnir í öllum sölum Hafnarborgar,
menningar- og listastofnunar Hafnar-
fjarðar. Til 29. maí.
Hallgrímskirkja | Sýning á olíumálverkum
Sigrúnar Eldjárn stendur til 30. maí.
Hrafnista Hafnarfirði | Eiríkur Smith, list-
málari, sýnir í Menningarsal til 12. júní.
Hönnunarsafn Íslands | Sýningin 3x3 er
þriðja samsýning leirlistakvennanna Guð-
nýjar Magnúsdóttur, Koggu og Kristínar
Garðarsdóttur. Öll verk á sýningunni eru ný
og unnin sérstaklega fyrir þessa sýningu.
Til 18. júní.
Kaffi Sólon | Þórunn Maggý Mýrdal Guð-
mundsdóttir sýnir kröftug málverk til 9.
júní.
Karólína Restaurant | Joris Rademaker
sýnir ný verk Mjúkar línur/ Smooth lines.
Til 6. okt.
Kirkjuhvoll Akranesi | Tolli sýnir olíu-
málverk til 28. maí. Opið alla daga nema
mánud. kl. 15–18.
Listasafn ASÍ | Kees Visser sýnir málverk í
Listasafni ASÍ. Opið 13–17. Aðgangur
ókeypis. Til 28. maí.
Listasafn Íslands | Sýningar á verkum
Birgis Andréssonar og Steingríms Eyfjörð í
Listasafni Íslands. Verkin á sýningunum
spanna allan feril listamannanna. Vegleg
fræðsludagskrá í tengslum við sýninguna,
sjá á: www.listasafn.is. Til 25. júní. Ókeypis
aðgangur.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Yfirlits-
sýning á verkum Guðmundar Einarssonar
frá Miðdal. Unnið í samstarfi við Náttúru-
fræðistofu Kópavogs. Safnbúð og kaffi-
stofa. Til 3. júlí.
Listasafn Reykjanesbæjar | Í EYGSJÓN?
Sex færeyskir málarar. Myndefnið er fær-
eysk náttúra.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Ásmundur Sveinsson – Maður og efni. Sýn-
ing á úrvali verka úr safneign Ásmundar-
safns, sem sýnir með hvaða hætti lista-
maðurinn notaði mismunandi efni – tré,
leir, stein, brons, og aðra málma – og
hvernig sömu viðfangsefni birtast í ólíkum
efnum.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Sam-
starfsverkefni Listasafns Reykjavíkur og
Listaháskóla Íslands þar sem um 75 nem-
endur í útskriftarárgangi myndlistar- og
hönnunarsviðs sýna verk sín. Til 25. maí.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Sýning fyrir unga listunnendur sem sett er
upp í tengslum við útgáfu nýrrar bókar
Eddu útgáfu um myndlist fyrir börn þar
sem kynnt eru verk úr safneign Listasafns
Reykjavíkur. Til 3. des.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Innsetningar eftir Joseph Kosuth og Ilja &
Emiliu Kabakov sem eru fremstu konsept-
listamenn heimsins í dag. Á sýningunni
vinna þau með ólík þemu úr ævintýrum
sagnaskáldsins mikla, H.C. Andersen. Hluti
sýningarinnar fer einnig fram í porti
Hafnarhússins. Til 5. júní.
Listasalur Mosfellsbæjar | Sundrun – sýn-
ing á verkum Marissu Navarro Arason
stendur nú yfir til 24. maí
Næsti Bar | Undanfarin ár hefur Snorri Ás-
mundsson þróað með sér andlega tækni í
málaralist. Orkuflámamyndir hans sem eru
taldar hafa lækningarmátt hafa vakið sterk
áhrif hjá áhorfendum. Til 26. maí.
Reykjavíkurborg | Stella Sigurgeirsdóttir
sýnir skilti á 20 stöðum víða um borgina til
28. ágúst.
Salfisksetur Íslands | Anna Sigríður Sigur-
jónsdóttir – Dýrið. Til 21. maí.
Thorvaldsen Bar | Marinó Thorlacius með
ljósmyndasýninguna „dreams“. Ljósmynd-
irnar hans eru alveg sér á báti og hafa þær
vakið mikla athygli bæði hérlendis sem og
erlendis. Til 9. júní.
Þjóðminjasafn Íslands | Ljósmyndir Rob
Hornstra eru afrakstur af ferðum hans um
Ísland og veita sýn á Ísland nútímans og
vitna um samfélagsbreytingar síðustu ára.
Þjóðminjasafn Íslands | Sýningin Huldu-
konur í íslenskri myndlist fjallar um ævi og
verk tíu kvenna sem voru nær allar fæddar
á síðari hluta 19. aldar. Þær nutu þeirra for-
réttinda að nema myndlist erlendis á síð-
ustu áratugum 19. aldar og upp úr alda-
mótum. En engin þeirra gerði myndlist að
ævistarfi.
Þjóðminjasafn Íslands | Rjúpnaskyttur
hjálpuðu Bryndísi Snæbjörnsdóttur og
Mark Wilson að skapa listaverk. Skytturnar
skutu haglaskotum á kort af miðborg
Reykjavíkur. Gæludýrahúsin sem urðu fyrir
skoti voru mynduð og eru til sýnis á Veggn-
um. Líka var unnið með nemendum
Austurbæjarskóla og má sjá afraksturinn á
Torginu. Til 11. júní.
Söfn
Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Sýning á
kosningaminjum fyrri borgarstjórnarkosn-
inga. Sýning sett saman af nemendum
Guðmundar Odds í Listaháskóla og starfs-
mönnum Borgarskjalasafns. Staðsetning
Grófarhús, Tryggvagata 15, 1. hæð. Ókeypis
aðgangur. Til 26. maí.
Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Gljúfra-
steinn er opinn frá kl. 10–17 alla daga nema
mánudaga. Hljóðleiðsögn, margmiðl-
unarsýning og gönguleiðir í nágrenninu.
Sjá nánar á www.gljufrasteinn.is
Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Sigríður
Bachmann í Skotinu, nýjum sýningarkosti
hjá Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Sýnir Sig-
ríður myndir sem hún hefur tekið af börn-
um. Til 7. júní.
Veiðisafnið – Stokkseyri | Uppstoppuð
veiðidýr ásamt skotvopnum og veiðitengd-
um munum. Opið alla dag kl. 11–18. Sjá nán-
ar á www.hunting.is
Skráning viðburðar í Staður og stund er á
heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos
Skráning viðburða
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 skro, 8 höst, 9
áleiðis, 10 ríkidæmi, 11
ágóði, 13 vesæll, 15 fáni,
18 slagi, 21 kvenmanns-
nafn, 22 naut, 23 íshögg,
24 afundinn.
Lóðrétt | 2 forræði, 3
brúkar, 4 trufla, 5 pen-
ingum, 6 mestan hluta, 7
tunnur, 12 ótta, 14 dvelj-
ast, 15 alið, 16 ávöxtur, 17
hrekk, 18 ritgerð, 19
ánægðu, 20 vinnusöm.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 skjal, 4 þotur, 7 lepps, 8 rofið, 9 táp, 11 ólin, 13
saur, 14 ógóða, 15 fant, 17 lest, 20 hak, 22 norna, 23 ormur,
24 tíðni, 25 purka.
Lóðrétt: 1 selló, 2 jeppi, 3 lost, 4 þorp, 5 tefja, 6 ruður, 10
ámóta, 12 nót, 13 sal, 15 fánýt, 16 nýrað, 18 eimur, 19 terta,
20 hani, 21 kopp.