Vikan - 02.12.1965, Page 2
í FULLRI HLVÖRU
KING
Bezta tóbakið veitir mesta
ánægju.
REYKIÐ CHESTERFIELD!
Þakkarskuld
Líklega gerum við okkur ekki
fulla grein fyrir því, hversu mik-
ið við eigum jólunum að þakka.
Við tökum þeim eins og sjálf-
sögðum, óumflýjanlegum hlut,
hvort sem yfir standa verkföll
eður ei, étum, drekkum og er-
um glöð, og svo eru jólin búin
og maður verður að láta sér duga
að hlakka til páskanna um sinn,
en þeir flytja manni dæilegasta
frí ársins.
En það er alveg satt. Við stönd-
um í þakkarskuld við jólin. Ekki
sízt við íslendingar, sjálf bóka-
þjóðin. Það væri nefnilega held-
ur rislág bókaþjóð hér á þessum
drang í norðurhöfum, ef ekki
kæmi til hlutur jólanna. Bækur
eru ómissandi til jólagjafa, og
bókasala er undirstaða útgáfu,
svo þar af leiðandi hressist orð-
stír bókaþjóðarinnar um hver jól.
Annars væri engin hreyfing á
bókum í búðum, nema ef til vill
einstaka bók sem bókasnobbm
verða að lesa til að geta talað
með í kaffi á Borginni og öðrum
mannfagnaði.
Við stöndum í þakkarskuld við
jólin, af því þau koma mönnum
til að eyða og spenna í stað þess
að nurla aurunum sínum. Þau
hafa orðið og geta' enn orðið til
að gera mönnum ljóst, að pen-
ingarnir eru til að eyða þeim, og
þá fyrst hafa þeir gildi, þegar
þeim hefur verið breytt í hluti
og efni.
Við stöndum í þakkarskuld við
jólin, af því enn sem komið er
tíðkast það víðast að fjölskyldan
sé öll í einu heima á aðfanga-
dagskvöld. Það er meira en jafn-
vel blessað sjónvarpið hefur
megnað að gera á rúmhelgum
kvöldum, hvað svo sem verður
þegar íslenzka sjónvarpið er
komið á koppinn. En heimilaupp-
lausnin er að verða eitt mesta
vandamál þjóðfélaganna, ekki
aðeins hins íslenzka.
Við stöndum í þakkarskuld við
jólin, af því þá er rokið í að gera f
þá allsherjartiltekt og hrein-
gerningu, sem hefði fyrir löngu
átt að vera lokið. Þá er hver hlut-
ur dreginn úr stað og hreinsaður
í krók og kring og allt sápuþveg-
ið og skrúbbað hátt og lágt. Eða
jafnvel málað!
Við stöndum í þakkarskuld
við jólin af því þau bjóða upp á
nauðsynlega hvíld eftir hlaupin
milli verzlananna og eftir hrein-
gerninga, matargerðar og bakst-
ursefriðið. Hitt er svo annað mál,
og eðli jólanna í sjálfu sér óskylt,
hvort við kunnum að meta þessi
gæði.
Við stöndum í þakkarskuld
samt. S.H.
2 VIKAN 48. tbl.