Vikan - 02.12.1965, Blaðsíða 22
OLABÖRN VIKUNN
[ fyrra birtum vð myndir af 10 ný-
fæddum börnum og spurðum: Eru
öll nýfædd börn eins? — Svarið
varð auðvitað neikvætt, þrótt fyrir
allt og allt, því vitaskuld eru ný-
fædd börn ekki öll eins fremur en
önnur börn.
En manneskjan er alltaf að breyt-
ast. Við hlæjum, þegar einhver
verður áttræður eða níræður og vin-
ir hans skrifa vel um hann í blöðin,
og láta fylgja með því mynd af
honum á tvítugsaldri. Við köllum
það fermingarmyndirnar.
Hins vegar látum við oftast kyrrt
liggja, þótt við sjáum eins, tveggja
eða jafnvel fimm ára gamlar mynd-
ir af fólki; höldum jafnvel iðulega,
að það séu nýjar myndir. Því breyt-
ingin er varla sjáanleg.
En setjum nú svo, að sá siður
yrði upp tekinn á íslandi að birta
afmælisgreinar um þegnana á
fyrsta afmælinu, sem í sjálfu sér er
einna merkast aldursmælidaga. Þá
er ég hræddur um, að ekki dygði
ársgömul mynd. Hún yrði að vera
ný. Annars væri hún úrelt.
Síðari hluta októbers síðast lið-
ihs fórum við á stúfana og höfðum
uppi á jólabörnunum okkar frá I
fyrra. Þau voru öll hér í Reykjavík,
nema eitt, sem var komið vestur á
Snæfellsnes, en foreldrar þess
sendu okkur mynd af því. Og nú
ætlum við að sýna ykkur, hvað
jólabörnin okkar hafa breytztá einu
ári, fyrsta og lengsta ári ævinnar.
SHH.