Vikan

Útgáva

Vikan - 02.12.1965, Síða 34

Vikan - 02.12.1965, Síða 34
Bolungavík ■ ■■■■■■■■■■ þeir hlógu ekki lengi. Árni tvíhlóð í fyrsta róðri og gat séð af manni í land til að gera að fiskinum út fyrri róðrinum. Bolvíkingum varð svo mikið um þetta að tveim árum seinna er hinni þúsund ára ára- skipaöld lokið í Bolungavík, og þar nær eingöngu vélbátar fyrir landi. En jafnvel og Bolvíkingar stóðu áður að vígi við áraskipaútgerð- ina, jafnilla stóðu þeir að vélbátaútgerðinni. Þarna var nefnilega alger hafnleysa. Engin leið í nokkurri átt að láta bát fljóta stund- inni lengur fyrir landi. Það varð að setja þessa vélbáta eftir hvern róður og er rétt að lýsa þeim vinnubrögðum lítið eitt, því að þau eru einstæð. Það er ekki vitað um annan stað, þar sem það var gert daglega að setja á bökum manna vélbáta allt að tíu tonnum að stærð (Særún), en oft- ast 6 til 8 tonn. Bátamir voru súðbyrðingar og hafðir eins léttir og kostur var á, en þó voru þetta mikil bákn enda komnir með tuttugu hestafla vél- ar, stórar um sig og þungar eins og eldri gerðir véla voru. Kjölurinn var hafður mjór og undir honum járndrag, tveggja tommu breitt. Vandinn var að halda skipinu réttu og í jafnvægi á þessu mjóa kjöldragi. Hann heitir Magnús V. Jónsson og er þekktur borgari á Bolungavík. Bolungavík er í örum vexti 0 og byggðin stækkar ört. I bak- sýn er Ernirinn og á miðri mynd undir honum er kirkjan á hóln- um. EG á plássið — plássið er EG. — Um hartnær þrjá áratugi hef- ur Bolungavík og Einar Guð- finnsson verið eitt og hið sama. O í plássum eins og Bolungavík vita allir allt um alla, enda er það næstum eina skemmtunin og til- breytingin á staðnum. Eins og geta má nærri, hefur þetta í för með sér, að staðir á borð við Bolungavík verða einn hafsjór af sögum um náungann, sumum meinfýsnum, öðrum glettnum. Aðstoðar hundahreinsunar- stjörinn uðmundur Jensson Haf- liði var mikil persóna á sinni tíð í Bolungavík og þá ekki síður kona hans Brok- ey. Hann var stuttur og dig- ur og bar sig manna bezt, sér- staklega var málrómur hans djúpur og spekingslegur, eins og reyndar maðurinn allur, því að djúpvitrari maður á- sýndum en Guðmundur Jens- son Hafliði mun fáséður. Brokey kona hans var einnig dálítið vitur ásýndum, þó að á annan hátt væri. Eins og títt er í viðskiptum karls og konu, þá var hann veitandi en hún þiggjandi, og meðtók hún alla vizku bónda síns með því að halla undir flatt og var mjög hugsandi jafnan. Hún var eins álappaleg og bóndi hennar var reistur. Guðmundur Jensson Haf- liði var hundahreinsunarstjóri þorpsins, en þar var hundalíf fjörugt. Þegar þessi saga ger- ist höfðu hlaðizt svo störf á Guðmund Jensson Hafliða, í sambandi við byggingu Brim- brjótsins, en hann var þar önnur hönd verkfræðinganna, sem kenndu Guðmundi dönsku en hann þeim vinnu- brögðin, og nutu hvorir tveggja góðs af. Guðmundur Jensson Hafliði hafði af þess- um sökum ákveðið að ráða sér aðstoðarhundahreinsunar- stjóra, og varð fyrir valinu Metúsalem Betúelsson, mað- ur á aldur við Guðmund en ívið styttri og hafði Guð- mundur áhyggjur miklar af gáfnafari hans og taldi tví- sýnt að sér myndi nokkru sinni auðnast að kenna hon- um allt, sem til þurfti við þetta vandasama starf. Um messuleytið á sunnu- degi á svo Metúsalem Betú- elsson að baða og hreinsa sinn fyrsta hund. Hundahúsið var reist úr kassafjölum og var á því þak. Húsið var tveir metrar eða svo á annan veginn en einn og hálfur á hinn og var bað- kar úr tré í öðrum enda þess. — Hérna sérðu húsið, Metúsalem minn, segir Guð- mundur — og látum oss ganga inn. Hnudkvikindi eitt mikið var inni í húsinu og lét ófrið- lega, en Guðmundur Jensson Hafliði leit ekki við skepn- unni heldur sagði: — Hér sérdu öll meðulin, en þú verdur að passa þig vel að ruglast ekki á þeim og er bezt ég taki þau sjálf- ur til að byrja með. Framhald ó bls. 57. VIKAN 48, tbl.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.