Vikan

Issue

Vikan - 02.12.1965, Page 51

Vikan - 02.12.1965, Page 51
HRMVÉLIN AUBVELDAB HÚSMÓSUBSTQRFIN 06 ENDINGARGÓB.HLJÓBLÍTIL 06 AFUSTAUEIL Hulda Jensdóttir Framhald af bls. 16. matargjafa, sem fram voru bornar. Það voru ekki sliguð borð, sem við stóðum upp fró, nærri því óglatt af offylli, nei, en við vorum mett og ánægð, full af þakklæti. Þessa jólahátíð hefi ég þráð, öll þau mörgu ár, sem liðin eru siðan. Er manneskjan alveg rugluð? spyr nú e.t.v. einhver. Má vera. Ég er ekki að óska neinum vanefna, van- heilsu, eða neinu foreldri þess að þurfa að ganga til jólahátíðarinn- ar með kramið hjarta yfir því að geta ekki glatt elskuð börnin sín með gjöfum eða þeim aðbúnaði sem foreldrið þráir mest. Nei, en ég óska öllum (slenzkum heimil- um þess að sá friður sem ríkti ( umhverfi mínu, systkina minna og foreldra, umrædda jólahátíð, mætti verða hlufskipti þeirra. Ég óska öll- um (slenzkum heimilium þess, að kapphlaupinu um dýrlegar krásir og veizluhöld, sem eru fæstum til heilsubótar, mætti linna, óska ís- lenzkum mæðrum þess að þær geti gengið til jólahátíðarinnar, óþreytt- ar, andlega og líkamlega, færar um að skila hlutverki sínu sem mæður og eiginkonur, í stað þess að vera nær að niðurlotum komnar, vansvefta og áhyggjufullar. Óska þess að kapphlaupð um stærri gjaf- ir, dýrar gjafir, meiri gjafir, megi taka enda, en í staðinn koma vinar- gjöfin, sem þú eða ég höfum helzt búið til og lagt kærleika okkar (. Óska þess að friður jólanna megi verða hlutskipti okkar allra, og sú gjöf sem gefin var endur fyrir löngu, og sem jólin eru haldin til minningar um, megi verða eign okkar allra. í Guðs friði. H. Jensdóttir. Til jólagjafa NÝJAR SENDINGAR AF TÍZKUFATNAÐI FRÁ EVRÖPU OG AMERfKU. FJÖLBREITT ÚRVAL AF TÚSKUM - HÖNZKUM - KAPUM - KJÖLUM - DRÖGTUM - PEYSUM - PILSUM - BLOSSUM - UNDIRFÖTUM. VIKAN 48. fbl. gj

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.