Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 02.12.1965, Qupperneq 72

Vikan - 02.12.1965, Qupperneq 72
Islenzkir munir í mjög góðu úrvali, til jólagjafa innanlands og utan Pökkum án endurgjalds Allir pakkar fulltryggðir Sendum um allan heim Hentugar jólagjafir: Bing ogGröndal postulín, Stálborðbúnaðurfrá Sival Margskonar vörur frá „EVA“. Koparvörur Endurprentanir á síriga, eftir sígildum verkum gömlu meistaranna, o. m. fl. ágætra jólagjafa. Gjörið svo vel að líta inn, sjón er sögu ríkari. RAMMAGERÐIN - HAFNARSTRÆTI 17. RAMMAGERÐIN - HAFNARSTRÆTI 5. þennan kaunum slegna, aðfram- komna en óbugandi karlhjassa, sem lét ekki einu sinni staðar numið við lýðinn og höfðingjana, heldur setti sjálfan Drottin alls- herjar á rassinn í réttlætismál- unum þar til hann gat engu til svarað nema þessu: Og ég sem hefi skapað bæði nykurinn og þig! Það gerði þessi voðalegi skammarkjaftur á Job að Drottni datt vatnahesturinn í hug sem hliðstæða — en hann er ákaflega munnstór. Vitaskuld mátti ekki tilgreina þessi morð í hinni helgu bók, sem að Drottni frátöldum er fyrst og fremst rituð spámönnum ísra- els til lofs og dýrðar". Sjálfur var Runólfur orðinn spámaður þegar ég kynntist hon- um, dálítið feitlaginn sem slíkur, með stórt andlit, teiknað mynd- letri tvennskonar hugarstríðs í nær sextíu ár, krýnt hvítu hári yfir þessháttar enni sem varla sjást nema á málverkum af tón- snillingum fyrri alda, skreytt blá- um augum sem voru í senn barnslega saklaus og vizkumyrk af athugun sinni á lögmálsbrot- um íslandslýðs í hálfa öld og loks stílhreinu og miklu höfð- ingjanefi yfir nettum en óstýri- látum munni. Hann var jafnaðarmaður af öðrum heimi í afstöðu sinni til fjármuna og staðhæfði að sá sósíaldemókrat, sem þægi auka- spozlu fyrir störf í þágu samfél- agsins gerðist þar með sekur um stuld úr eigin vasa. Það var lög- málið. Sjálfur geymdi hann pen- inga í ytri jakkavasa hægra meg- in. Sá vasi var eins oft tómur, en honum brá við hvorugt. Einu sinni mættum við þurf- andi manni við gamla verka- mannaskýlið á Tryggvagötu. Þá kom hann með þúsund króna seðil upp úr vasanum og sagði: ,, Á hundrað krónum átti ég von en ekki þessu og nú rennur ekki af þér fyrir helgina úr þessu Guðmundur rottubani". í annað sinn mættum við þyrst- um manni á Skúlagötu. Þá reynd- ist þessi vasi tómur og Runólfur sagði: „Fátæktin er löstur Karl vondalykt og bíddu nú hérna hjá honum Stefáni á meðan ég skrepp inn í Nýborg og slæ Ólaf Sveinsson fyrir einni, en hann er göfugmenni“. Eftir á sagðist hann sjaldan blygðast sín fyrir efnaskort eins og þegar hann ætti ekki fyrir brennivíni handa nauðstöddum manni. „Og þó er ég raunar enn verr á vegi staddur heldur en hann, því mig langar ekki í vín og hef ekkert að gera eftir há- degið en hann hefur þó markmið í lífinu“. Hann sagðist alltaf hafa skammast sín fyrir að gerast ekki ofdrykkjumaður, en ekki getað það. Hann hefði gutlað við brennivínsdrykkju án nokkurrar köllunar og í algjöru siðleysi en getuleysið til að verða forfallinn stafaði kannski af sálarlífstrufl- un í æsku. Þetta væri dofi í sál- inni: „En að verða forfallinn drykkjumaður og frelsast er ein- hver dásamlegasta lífsreynsla sem hugsazt getur. Það er sjald- gæft eins og happdrættisviiming- ur. Það þarf margra manna kvöl í eina frelsun. Nýtingin er léleg eins og þeir segja á síldarplönun- um -— kannski ekki nema fimm prósent sem frelsast af öl'lum þeim sem verða forfallnir. Stefán Þvær, hreinsar. og gefur ferskan liáralðt Þegar æfi líður á, fölnar æskuljómi hársins. Wellaton qefur hárinu nýjan og ferskan blæ og þvær um leið eins og bezta shampoo . Wellaton uppfyllir kröfur allra kvenna, því fjölbreytt litaval gefur konunni kost á að velja sér fagran og' persónulegan hárblæ. weiaTon Heildverzlun: HALLDÓR JÓNSSON H. F. Slml 23995 09 12586 Hafnarstræti 18 J2 VIKAN 4*. tu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.