Vikan - 02.12.1965, Side 79
hans á hænsnum föður sfns.
Zephyrinn frá Bílnum stendur of-
an á hlaði þar sem við hann var
skilið, dökkblár og gljávotur f rign-
ingunni og rafmagnsljósunum. Við
rennum honum upp snarbratta
heimreiðina upp á veg og upp úr
hjólfarinu hrekkur brúnn ítali úr
skjóli sfnu og hleypur gaggandi í
átt til húsanna, með þessu sér-
kennilega fluglausa vængjablaki
hænsnanna. Það er minni úrkoma
núna en svo jarðdimmt að ekki
greinist hvar jörð endar og myrkur
byrjar. Við tölum fátt fyrst í stað.
Hugurinn er enn ekki farinn frá
Kirkjubóli.
Guðmundur sagði nefnilega ekki
satt, þegar hann sagðist vera með-
almennskan uppmáluð.
Sem betur fer.
★:
Hvernig á að halda jól?
Framhald af bls. 16.
Nægir þar að benda á fjölbreytt-
ara matarval og gjarnan ofneyzlu
matar án tiltakanlegrar ánægju,
kaffærandi jólagjafaflóð ásamt
harðvítugri kaupmannavertfð, sem
þessu hvoru tveggja fylgir, jóla-
sveinarnir gömlu íslenzku horfnir f
skuggann af heilögum Kláusum, og
síðast, en ekki sízt, þverrandi trú-
ariðkunn, þrátt fyrir að jólin eru
enn að grundvelli til og f orði
kveðnu fæðingarhátíð frelsarans.
Af þessu tilefni hefur VIKAN snú-
ið sér til hóps manna og lagt fram
spurningu, sem ef til vill má segja
að sé „absurd", þar sem í henni
felst alræðisvald gefið einum f
senn, sem vitanlega er óhugsandi,
þar sem jólahald er eins og aðrir
þættir þjóðllfsins, spegilmynd al-
mannavenja og almenningsálits. En
tilgangurinn með spurningunni var
meðal annars sá, að reyna að
skyggnast ofurlítð undir yfirborðið
og kanna hugi einstaklinganna; fá
svör annað hvort í alvöru eða
gamni, vitandi að öllu gamni fylg-
ir nokkur alvara. Þótt enginn einn
geti breytt almenningsáliti á svip-
stundu með einu orði, getur það
sáðkorn frá einum fallið, sem siðan
þroskast og ber ávöxt.
Þvf orðið er til alls fyrst.
Stefán M. Gunnarsson
Framhald af bls. 16.
minnsta kosti einu sinni um hver
jól.
í kirkjunum skyidi ég láta presta
mína lesa jólaguðspjall og prédika
um frið, frið é jörðu með öllum
mönnum. Hver jólamessa skyldi
hefjast á þessum sálmi Stefáns frá
Hvítadal:
Gleð þig særða sál,
lífsins þrautum þyngd.
Flutt er muna mál,
inn er helgi hringd.
Minnstu komu Krists
hér er skuggaskil.
Fagna komu Krists,
flýt þér tíða til.
Kirkjan ómar öll,
býður hjálp og hlíf,
þessi klukkna köll
boða Ijós og líf.
Heyrið málmsins mál.
Lofið Guð sem gaf.
Og mín sjúka sál
verður hljóma haf.
Og ég skyldi segja öilum að
syngja og láta syngja mikið.
Til þess að koma hinum v*ri að-
stæðum í sæmilegt horf, þyrfti ég
liklega að gera nokkrar harkalegar
ráðstafanir, t.d. að loka verzlun-
um, nema matvöru- og miólkur-
búðum, frá 17. desember og fram
yfir jól. Banna sölu áfen'gra drvkkja
yfir sama tímabil og síðast en ekki
sfst, að banna allar auglýsingar f
útvarpi, sjónvarpi og blöðum, um
jólavörur. Hins vegar myndi ég láta
ríkissjóð gefa öllum heimilum jóla-
tré og þau öll í sömu stærð og
sýna þannig fram á að allir eru
jafnir fyrir jólunum, að fögnuður
jólanna á að veitast öllum lýðn-
um.
Jólin eiga ekki að vera kaup-
stefna. Jóiin eiga ekki að vera
fjárhagsléga ofviða venjuiegum
launþega. Jólin eiga að vera hátið
en ekki veizla.
„Þér gjöri ég ei rúm með grjót
né tré,
gjarnan læt ég hitt í té,
vil ég mitt hjartað vaggan sé,
vertu nú hér, minn kæri.
Með vísnasöng ég vögguna þína
hræri".
Þegar þegnar mínir hafa tileink-
að sér þennan boðskap, þá þurfa
þeir ekki lengur kóng til að stjórna
jólahaldi sínu.
Sfefán M. Gunnarsson.
Guðmundur
Daníelsson
Framhald af bls. 17.
Ljósin gömlu sé ég aftur mfn!
Ég er aftur jólaborðin við,
ég á enn minn gamia sálarfrið".
Ætti ég að fyrirskipa þjóðinni að
taka upp jól Matthíasar frá öldinni
sem leið?
Vonlaust. Þarna rennur saman í
eitt jólahald og jólahelgi, en for-
sendan fyrir að svo megi verða er
einlæg trú á jólaboðskapinn.
í nútímanum er jólahelgin að
mestu týnd úr jólahaldinu. Hin
kristna hugræna hlið jólahaldsins
er um það bil liðin undir lok á
íslandi, og það er á einskis manns
færi að endurheimta hana þjóðinni
til handa með reglugerð eða vald-
boði, sama hversu margar messur
eru sungnar, hversu rriörg skraut-
Ijós eru kveikt.
Ég er alinn upp í sveit, á erfið-
um tímum, þegar spdrsemin var
enn sú dyggð, sem flestir 'voru
gæddir, enda lífsnauðsynleg dýggð.
Eigoist nýja vini!
Pennavinir frá 100 löndum óska eftir
bréfaskriftum við yður. Upplýsingar á-
samt 500 myndum verða send til yðar
án endurgjalds.
CORRESPONOENCE CLUB HERMES
Berlin 11, Box 17, Germany
EGGERT KRISTJANSSON & CO HF
SlMI 11400
VIKAN 48. tbl. 70