Vikan - 02.12.1965, Qupperneq 82
Fullkomnasta
trésmíöaverkslæöið
á minsta gólffletí
fyrir heimili, skóla og verkstœði
Hin fjölhæfa 8-11
verkefna frésmiðavél:
Bandsög, rennibekkur,
hjólsög, frœsari, band-
slípa, diskslípa, smergel-
skífa og útsögunarsög.
Fóanlegir fylgihlutir:
Afréttari þykktarhefill
og borbarki.
— og mættum við þá gjarna snúa
okkur aftur að ýmsum ævafornum
jólasiðum, þeim sem kunnir eru af
bókum, svo sem að halda sam-
hengi í tilverunni og kallast á við
það fólk sem lifði í landinu endur
fyrir löngu.
Nú geta menn spurt: hvað segði
kirkjan? í trausti þeirrar ráðs-
mennsku sem Vikan hefur falið
mér, myndi ég þá leggja að kirkj-
unni að hún tæki upp þá guðfræði,
að páskarnir séu merkilegust trú-
arhátíð og margfalt þýðingarmeiri
en jól, að ríkiskirkjan verði „Kirkja
Krists hins upprisna" og haldi upp
á þá hátíð með miklum tilþrifum,
skrúðgöngum, helgileikjum, tón-
leikahaldi — og auðvitað tíðasöng.
Árni Bergmann.
Örn Ingólfsson
Framhald af bls. 18.
höndum saman við kirkjuna að
koma því til leiðar, að æskufólkið
verði virkur þátttakandi í hinu
kristilega starfi jafnskjótt og það
sezt á skólabekk.
Slíkar aðgerðir gætu vel — á-
samt öðru — orðið til að skapa þá
hugarfarsbreytingu, að menn færu
að gefa sér tíma til að halda jólin
hátíðleg f þeim anda, sem við á.
Sölumaður dauðans
Framhald af bls. 37.
við málunum, tók Lange að sér hið
eðlilega hlutverk sitt sem aðstoðar-
foringi, sá um öll smáatriði með
smámunasamri nákvæmni. Þegar
Craig hafði tekið við stjórninni, var
of seint fyrir hann að uppgötva,
að ekki voru allir frelsishermenn
föðurlandselskendur, né allir Frakk-
ar svín. Hann hékk á önglinum og
hann vissi það, og í fyrstu var hon-
um alveg sama. Þegar hann að
lokum ákvað að hætta, voru eftir-
leitarmennirnir þegar komnir á slóð
hans og hann varð að halda áfram
í félagsskapnum, til að vernda
hina, Það höfðu verið hin örlaga-
þrungnu mistök. Þeir voru allir
dauðanum markaðir: Rutter, Lange,
Baumer.
Lange hafði alltaf krafizt þess,
að þeir hittust í hóruhúsum, á nekt-
arsýningum eða næturklúbbum, þar
sem aðeins klúr skemmtiatriði voru
á boðstólum. Hann vissi, að ævi
hans yrði stutt, og hann reyndi að
gera sér sem mestan mat úr henni.
Craig hafði beðið hann að fara
gætilega, en hann hafði dáið. Sam-
kvæmt dómsúrskurði hafði það ver-
ið bílstys. Það hafði verið stúlka
með honum og hún hafði einnig
dáið; fórnarlamb í orrustu, sem
háð var þúsund mílur f burtu. Craig
vissi, að hann átti einnig hlut f
dauða hennar. Það fór hrollur um
hann, og hann tók að hugsa um
mann að nafni McLaren.
Hann hafði fyrst hitt McLaren í
hvíldarbúðum á Sikiley 1943. Hann
hafði þá verið liðsforingi í Komm-
andosveit, hávaxinn, grannur mað-
ur, brúnn eins og Arabi með mjúka
Hálandarödd, sem lét ekkert uppi
orku né þolni þess, sem talaði.
McLaren hafði fundið viskíflösku.
Fundið var orðið, sem herinn not-
aði fyrir hluti eins og viskí, og
hann langaði til að deila henni
með öðrum. Craig sem þá var nítj-
án ára, skipti sér ekki af orðavali
hans. Þeir skiptu flöskunni á milli
sín, drykk eftir drykk, og Craig
bátsformaður hafði haft vit á því
að skynja, að McLaren liðsforingi
myndi ekki vera ánægður með
venjulegan ofsa eða fýsn. McLaren
liðsforingi var heimspekingur og
fékk útrás í samræðum. Tuttugu og
fimm ára að aldri var hann ómæl-
anlega mikið eldri en Craig, og
hræðilega viss um nálægð dauð-
ans. Hann hafði drepið of oft til
að efast um, að röðin kæmi bráð-
lega að honum, svo hann talaði,
meðan þeir drukku viskíið sitt sam-
an. Af öllum [ búðunum hafði hon-
um þótt Craig einn hæfur til að
deila með honum flöskunni og
Craig var stoltur af. Það hvarflaði
ekki að honum, að hlffðarlaus
dugnaður hans færi langt fram úr
getu liðsforingjans, og McLaren
hefði þessvegna valið hann sér til
félagsskapar. Dapurlega, með eft-
irsjá, hafði McLaren liðsforingi
kvatt menninguna, meðan Johnny
Walker hvarf ofan í þá. Stríðið var
endir alls; það var hann viss um.
Aldrei framar myndi nokkur finna
þörfina til að berjast fyrir nokkru
nema sinni eigin lífsafkomu eða í
einstaka tilfellum, þægindum. En
það yrðu aðeins hinir sjaldgæfu og
betur gefnu,- því meðalmennskunni
væri nóg aðeins að lifa. Svo hall-
aði hann flöskunni og rétti Craig.
Þegar friðurinn kæmi myndi fara
Tryggvagötu 10 — Simi 15 8 15.