Skírnir - 01.01.1917, Blaðsíða 17
’íIO llm launa- og eftirlaunatill. launanefndarinnar. [Skírnir
Slasist embættismaður svo í embættisrekstri, að hannverði
að fara frá, fær hann 2/3 launa, og sé embætti manns lagt
niður, fær hann einnig ®/s launa sem biðlaun í 5 ár en
síðan lögmælt eftirlaun, hafi hann ekki fengið annað em-
bætti. E k k ] a embættismanns fær Vs hluta hreinna launa
embættismannsins, þó aldrei meira en 1200 kr. á ári.
Almenningur rak íljótt augun í h æ s t u eftirlaunin,
.enda voru þau óþarflega há. Lækkun og jafnvel af-
námi eftirlauna hefir því oft verið hreyft á þingi, enda
voru eftirlaun lækkuð mjög á alþingi 1903, eins og 1 ö g-
in frá 1 9 04 bera skýrastan vottinn um. Þau lög gera
að vísu þeim embættismönnum, sem missa heilsu sína út
af embættisverki eða verða að fara úr embætti af því að
-embætti þeirra er lagt niður, sömu skil og tilskipunin,
en annars 1 æ k k a þau að stórum mun e f t i r 1 a u n e m-
bættismanna sjálfra og lækka auk þess tilfinnanlega
eftirlaun ekknanna. Eftir lögunum frá 1904 fær hver
e m b æ 11 i s m a ð u r að vísu l/6 hreinna launa sinna,
hvort sem hann situr lengi eða skamt í embætti, en svo
fær hann ekki nema 20 kr. fyrir hvert embættisár úr því.
3000 kr. embættismaður fær samkvæmt þeim lögum 640
kr. eftirlaun eftir 2 ár, 900 kr. eftir 15 ár og 1180 kr.
eftir 29 ár. En auk þessara eftirlauna úr landssjóði, verð-
ur hann að leggja fram árlega 2 °/0 af launahæð sinni
frá sjálfum sér til ellistyrks eða V/3% til lífeyriskaupa og
fyrir það árgjald fengi hann 155 kr. 5 aura ellistyrk eftir
29 ár, reiknað með 4'/20/0 vöxtum, eða 253 kr. 52 aura
lífeyri. Ek k j a slíks embættismanns fær eftir lögunum l/10
hluta hreinna launa mannsins, ekkja eftir embættismann
með 3000 kr. launum þannig 300 kr. á ári, þó aldrei
-meira en 600 kr., hversu há sem laun mannsins voru.
Eins og menn sjá, er þetta ekki litil lækkun frá því
sem áður var.
Þannig var ástatt um laun og eftirlaun
embættismanna um það leyti, sem nefndin
settist á rökstóla. Hún átti, eins og þegar er get-
.ið, að rannsaka afnám eftirlauna og launakjör embættis-