Blanda - 01.01.1940, Page 3
Æviágrip
dr. Hannesar Þorsteinssonar
þjóðskjalavarðar.
Æviágrip þetta saradi dr. Hannes Þorsteinsson i tilefni
ai því, er heimspekisdeild Háskóla íslands kjöri hann heið-
ursdoktor í islenzkum fræðum þann 23. des. I925- Var
það samiS 18.—21. nóv. 1926 og ætlaS til birtingar í Ár-
bók Háskólans þaS ár. En er til þess kom, reyndist þaS
of langt, miSaS viS æviferilsskýrslur þær, er tiSkast við
slik tækifæri, og samdi dr. Hannes því annaÖ ágrip, ör-
stutt, dagsett 23. nóv. s. á., og var þaS síSan prentaS í
Arbókinni (1925—1926, bls. 31—33). En hið ýtarlegra ævi-
ágrip hefur hins vegar legiÖ óprentað þar til nú. Hefur
það, eins og vænta má, ýmsan fróðleik að geyma, ekki
sízt um æskuár höfundarins, og þótti þvi sjálfsagt aS birta
það hér i þessu riti, sem hann lagði sjálfur um langt
skeið svo mikla alúð við að gera sem bezt úr garSi.
Aftan viS æviágrip þetta ’nefur dr. Hannes ritaS svo-
fellda athugasemd síSar: „á árunum 1926—1928 reit eg
allýtarlegar endurminningar minar, sem hvorki eiga né mega
birtast fyrr en á aldarafmæli minu (1960), ef þær þá þykja
þess verðar. En eitthvaÖ gæti verið á þeim að græða um
menn og málefni þeirra tima, sem eg hef haft nánust
kynni af.“
Vafalaust mun þaS eigi ofmælt, sem dr. Hannes segir
um þetta rit, og ætla eg, að það verði mörgum kær-
komið á sínum tíma. En meSan það má eigi prenta, verð-
ur að hlíta við ágrip þetta. Þær fáu skýringar, sem eru
ueðan máls, hefi eg sett, nema annars sé getið.
Guðni Jómsson.
Rlancla VII
1