Blanda - 01.01.1940, Síða 22
20
höf'öum lagt frá Mælifelli, og þótti ferö okkar dá-
litið gapaleg með svo illum útbúnaði um það leyti
árs. — Á fyrsta skólaári mínu haustið 1880 veittist
mér sá mikli og óvænti styrkur, að Jón Pétursson
háyfirdómari og frú hans buðu mér að borða ó-
keypis miðdegisverð hjá sér, meðan eg vildi og
þyrfti, og varð mér þetta svo mikil hjálp, sam-
fara námsstyrknum (optast 200 kr. á ári) og því,
sem eg vaun mér inn á sumrum, að eg hafði elcki
af verulegum fjárhagsörðugleikum að segja á skóla-
árum mínum og gat meira að segja varið nokkru
fé til bókakaupa auk námsbókanna. — Sumarið
1881 var eg í kaupavinnu hjá foreklrum mínum á
Brú, þeim til styrktar fyrir fremur lítið kaup, en
sumarið eptir (1882) var eg i kaupavinnu norður í
Laufási, hjá séra Birni prófasti Halldórssyni, föð-
ur Þórhalls biskups. Gæti eg ýmislegt sagt frá ferð
tninni norður á því harðindavori, en verð að sleppa
því. Voru þá hafþök af ís fyrir Norðurlandi þang-
að til siðast i ágúst, kalsaveður (2.—3. st. R.) á
hverjum degi og nýting heyja afarill, mislingasótt,
manudauði og matarskortur vegna siglingaleysis
og allt ömurlegt. Frá viðtökunum i Laufási gæti
eg sagt einkennilega sögu og hvernig vinnumenn-
irnir þar tóku sig saman, án þess að eg vissi, til að
reyna í mér þolrifin og vita, hvort nokkurt mann-
tak væri í þessum skóladreng, og mun þetta hafa
verið á vitorði prófasts, en eptir að eg hafði óvit-
andi staðizt reynslupróf þetta, var hann mér hinn
allra bezti, og fékk eg þar 18 kr. um vikuna, hæsta
kaup þar um slóðir þá. Hef eg óviða unað hag mín-
um betur en þetta sumar i Laufási, þrátt fyrir veðr-
áttuna, og var ráðinn aptur þangað til kaupavinnu
næsta sumar, en úr því varð ekki, þvi að séra Biörn
varð bráðkvaddur 19. des. 18S2, og var mér sökn-