Blanda - 01.01.1940, Page 27
25
mest við kvennaskólann og barnaskólann og i 3
neöri bekkjum lærða skólans (trúbrögð), enn frem-
ur piltum undir skóla, þar á meðal bræðrunum
Þórði Pálssyni (lækni) og Árna Pálssyni (bóka-
verði), Þórði Edilonssyni (lækni) o. fl. að nokkru
leyti. Hafði eg opt 4 pilta í senn í sömu kennslu-
stund og tók þá 25 aura fyrir hvern, svo að eg
hafði alls 1 krónu fyrir tímann, en annars var tíma-
kennslukaupið við skólana þá aðeins 50 aurar, og
urðu því daglaunin ekki mikil, þótt lengi væri
unnið. Fann eg fljótt, að eg mundi ekki lengi end-
ast við þann þrældóm og yrði að leita mér annarrar
framtiðaratvinnu. Eg sótti því um Mosfell í Mos-
fellssveit vorið 1890, prédikaði á Lágafelli og í
Brautarholti, og féll fólki það vel í geð, að mér
virtist, en ein 2 atkvæði fékk eg við kosninguna
(séra Ólafur Stephensen var þá kosinn). Var það
sérstaklega einn ungur og framgjarn bóndi, (sem
enn býr þar i prestakallinu), er lagðist mjög fast
gegn kosningu minni, og hef eg verið honum þakk-
látur fyrir það síðar, en miður þá. Svo fór urn þessa
síðustu tilraun mína að kornast i hempuna, því að eg
hef ekki reynt það síðan. Var auðsætt, að mér átti
ekki að heppnast það, og harma eg það ekki nú.
Eptir að eg lauk embættisprófi sté eg tvisvar í stól-
inn í dómkirkjunni, fyrra skiptið á gamlárskveld
1888, og var sú ræða prentuð 1889, og síðara skiptið
á aðfangadagskveld 1889; einnig hélt eg 1—2 hús-
kveðjur. Eru þá upptalin þau kennimannleg verk,
er eg hef unnið á ævinni. — Árið 1890 lauk eg við
að semja Guðfræðingatal mitt (um íslenzka guð-
fræðikandidata frá Hafnarháskóla síðan 1707),
er eg hafði haft í smíðum, frá því að eg var á presta-
skólanum, og fékk eg 450 kr. verðlaun fyrir rit
þetta úr gjafasjóði Jóns Sigurðssonar 1891, en