Blanda - 01.01.1940, Side 68
66
um í þrjú ár, þá hallæriS aÖ ]>rengdi i Hundafjarðar-
dalsbotnum, sem lesa er af Hróars prófeta Mála-
bókar 12. kap. Því hann er ei bundinn viÖ nokkur
líkamleg metSöl, heldur hjálpar þá, sem liggur á
honum, blettuðum.
30. í þriðja lagi, mjóa rullan er eins í lögun
og ánamaðkur, langt og mjótt. Hún er höfð í skó-
þvengi Skraparots, hvar fyrir það er reiknað fyrir
hina mestu sælu hjá spámanninum Snjólfi í hans
Spádómsbókar 18. kap., að þefa af bróklinda Skrapa-
ters og bíta í ’nans skóþvengi. — En ef þér viljið
vita, af hverju þetta tóbakskyn er komið og tilbú-
ið, mun yður ei kynja á kost þess. Um það1) hefir
skrifað prófetinn Innkollur í sínum orðskviða 3. kap.,
af hverjum ég hef merkilegan lærdóm að taka með
textans fagurri útskýringu á þennan hátt, nefni-
!ega: Tóbakið er tilbúið af hundseyra, af kattar-
rófu og músarblóði. Mundu þessi fáfengilegu meðöl
fá dugað til að verka þennan ágætis gylliniplást-
ur, ef .hinn gráskeggjaði Skraparot púðraði þar ekki
að nreð sínum náðaranda, já, ef hann skellti ei þar
á sinurn líknarloppum, mundi veröa kerlingarkjaft-
ur fyrir oss aumum og margur mundi hafa ýlt og
vælt eftir þessu dýra djásni, er aldrei hefur haft af
dámnum að segja. Þvi skulum vér þakka Skrapater
soddan velgerning, þvílíkur meistari sem hann var
að tiíbúa tóbakið, og sýnum honum með auðmýkt
vort þakklæti, forsmáum og aldrei þennan forkostu-
lega dýrgrip, heldur tökum með þökkum, þó aldrei
sé það svo lítil tóbakslús af hans hendi, og skal
svo úttalað um það fyrra.
Það síðara, er eg lofaði á að minnast, er kertis-
skarið, sem er það fyrsta, sem oss er rétt af hendi
1) Hdr. hefur: á kost þessum. Það o. s. frv.