Blanda - 01.01.1940, Page 96
94
sem skírður var Jón. Liklegt er, að Jón þessi haíi
alið aldur sinn þar sy'Öra. Sagt er, að hann hafi átt
son, er Eyvindur hét. Árið 1807 er vinnukona á
Miðeyjarhólmi í Landeyjum Guðrún Þorsteins-
dóttir. Þann 8. ágúst það ár fæðir hún son, sem
skírður var Þorsteinn. Lýsir hún föður að barninu
Eyvind Jónsson, vinnumann á Miðeyjarhólmi. Þor-
steinn þessi bjó síðar á Miðhúsum í Landeyjum.
Börn hans voru Einar, Guðlaug og Eyvindur. Ein-
ar var fæddur 1853; bjó hann lengi á Arnarhóli í
i Landeyjum. Guðlaug, systir Einars, átti Áma
Gestsson bónda í Akurey. Þeirra sonur er Eyvindur
líkkistusmiður í Reykjavík. Einar á Arnarhóli segir
Fjalla-Eyvind forföður sinn, og getur það staðizt
tímans vegna.
Líkur eru nú fyrir, að þessi sögn sé sönn. Rafn,
sonur Fjalla-Eyvindar, er til heimilis í Haukholtunr
í Hrunamannahreppi síðustu ár ævi sinnar. Hann
deyr í Haukholtum 1814. Steinunn, dóttir Rafns, er
lika til heimilis í Haukholtum og víðar í hreppnum.
Hún deyr 1855. Líklegt er, að sonur Eyvindar og
sonardóttir hefðu vitað um þetta með vissu, og fólk,
sem var þeim kunnugt og lifði samtímis þeim, hefði'
munað þetta rétt.
Sama ár og Eyvindur strýkur burt frá Traðar-
holti fæðist honum sonur, sem skírður var Rafn.
Móðir hans hét Þóra. Var faðir hennar danskur og
hét Jörgen Möller og var þjónn í Skálholti. Móðir
Þóru hét Guðrún Nikulásdóttir, vinnukona í Skál-
holti, og þar er hún enn 1729, en þá er Jörgen
farinn þaðan. Rafn Eyvindsson er bóndi á Læk f
Flóa 1801, þá talinn 55 ára, 0g er því fæddur um
1746. Hve lengi Rafn hefir búið á Læk, er ekki
hægt að segja með vissu. Hafi börn hans öll fæðzt
þar. þá hefir hann búið þar lengi. En árið 1806 er