Blanda - 01.01.1940, Page 126
124
brands biskups, vera í fjórmenningsfrændsemi
frá Grundar-Helgu talið, og var ætt hvors rakin
lið fyrir lið í málum þessum þannig:
Grundar-Helga
Björn- Kristín- Sólveig- Jón Sigmss.
Ingigerður- Jón- Þorvaldur- Björg.
Vildi Guðbrandur biskup sanna, eins og alkunn-
ugt er, að Ingigerður þessi, langamma Bjargar,
hefði alls ekki verið dóttir Grundar-Helgu. Ef
Guðbrandur biskup hefði ekki tekið sér fyrir
hendur að rannsaka mál afa síns af skjölum
stólsins, er óséð, hvort hann hefði getað rakið
sig nema til Vatnsf jarðar-Kristínar. 16. aldar
menn virðast lítt hafa vitað um Björn Jórsala-
fara og Grundar-Helgu,1) móður hans. Að
minnsta kosti rugluðu sumir þeirra honum sam-
an við dótturson hans, Björn ríka, og héldu, að
Ólöf Loftsdóttir hefði verið kona hans, sem síð-
ar verður vikið að. Og öll líkindi eru á því, að
Guðbrandur biskup hafi alls ekki þekkt foreldri
Grundar-Helgu, en 6. maður var hann frá
henni, og um 150 ár hafa verið milli andláts
hennar og fæðingar biskups.
Björn á Skarðsá (f. 1574), einn mestur fróð-
leiksmaður sinnar tíðar, rekur ætt föður síns
um 3 liði til Orms skipara Runólfssonar. Hefir
Ormur sá sennilega verið nokkuð kunnur mað-
ur í sínu byggðarlagi (,,skipari“). Björn kemst
þar til langafa síns, sem hann veit, hvers son
var. Móðurætt föður síns rekur Björn til Árna
nokkurs gulls, og er Björn 6. maður frá honum.
1) Þessi kona er nú að minnsta kosti fjórfeðruð
meðal ættfræðinga vorra: Bjarnardóttir Þorvaldsson-
ar, Bjarnardóttir Loftssonar, Þórðardóttir Kolbeinsson-
ar og Jónsdóttir (Björnssonar).