Blanda - 01.01.1940, Page 175
173
12 mennirnir inni um nóttina. Grettir virðiat
eiga að hafa verið 19 ára, þegar þetta gerðist.
Hann gat því varla verið svo ferlegur, að 12
karlmönnum, væntanlega á bezta reki, yrði mjög
felmt við hann. Sýldur gat hann ekki heldur
verið eftir sund stutta stund í sjó, því að fötin
gátu ekki frosið að honum á meðan, því að hit-
inn frá líkama hans, sjávarvatnið og hreyfing-
in á sundinu girtu fyrir það. Og ólíklegt er, að
12 menn, enda þótt þeir væru eitthvað við skál,
hefðu ekki getað haft í fullu tré við hann og
varnað honum eldsins. Þá mundi hver óvitlaus
maður í sporum Grettis hafa sagt þeim erindi
sitt, enda máttu þeir sjá það, er hann hafði
kerald fest við mittisband sitt, hvert erindið
hlyti að vera, eins og á stóð. Loks er það frá-
leitasta af öllu í sögunni, að 12 menn, ungir og
hraustir, hefðu látið sig brenna inni í sæluhús-
kofa. Þeir voru þó vakandi, þegar Grettir fór
frá þeim, og ættu einhverir þeirra að hafa séð
eldhættuna. Höfundur sögunnar hefir heyrt um
víg sonar eða sona Þóris í Garði. Hann — eða
alþýðusögnin — fegrar málstað Grettis, gerir
það óviljaverk, sem verið hefir morð eða að
minnsta kosti venjulegt mannvíg. Það er og
næsta ólíklegt, að margir og ríkir frændur Grett-
is hefðu ekki getað orkað því við Þóri í Garði,
að Grettir yrði sýkn, ef málstaður hans hefði
verið slíkur sem sagan vill vera láta.
Af sama toga sem brennusagan virðist frá-
sögn Grettissögu um járnburð Grettis vera.
Járnburður tíðkaðist víst eitthvað hér á landi
á 12. öld, en var numinn úr lögum kirkjunnar
á kirkjuþinginu í Laterani 1215, og hefir ekki
tíðkazt eftir það, því að klerkar máttu ekki síð-