Blanda - 01.01.1940, Blaðsíða 200
198
en tengdamóðir Björns yngra Þorleifssonar,
vinar Ögmundar biskups. — Líklegast þykir,
að það sé þessi ögmundur Eyjólfsson, sem er
skjalvottur 8. júní 1468 og 4. febr. 1469, norð-
ur í Tungu og Holti í Fljótum1 2), því að Salný
kona Snjólfs Brandssonar-) á Óslandi í Óslands-
hlíð norður (ekki Snjólfs Hrafnssonar, sem bjó
undir Ási í Fellum) hefir ekki verið systir Ög-
mundar biskups, þó að séra Þórður í Hítardal
segi, að hún „sé sögð (Pálsdóttir) systir Ög-
mundar“, heldur hlýtur Salný þessi að hafa
verið móðursystir ögmundar biskups og dóttir
fyrrgreinds ögmundar Eyjólfssonar, sem flutzt
hefir norður vegna þess, að kona ögmundar
mun hafa verið dóttir Þórólfs Brandssonar og
Guðrúnar Björnsdóttur, Nikulássonar frá
Flatatungu, Broddasonar, og mun þaðan nafn
Þórólfs Ögmundarsonar, sem kallaður var
„biskup“ eins og Þórólfur (afi hans) Brands-
son, Þorleifssonar prests, Bergþórssonar, sjálf-
sagt Brandssonar á Skinnastöðum, Bergþórs-
sonar, Einarssonar (auðmanns), Auðunarson-
ar (Bisk. s. Bmf. I, 369), Kárasonar ábóta á
1) Dipl. ísl. V, bls. 520.
2) Biskupasögur Bmf. II, bls. 301, og er það rétt,
að Snjólfur maður Salnýjar var Brandsson hins ríka
á Barði, Halldórssonar, en alls ekki sonur Hrafns lög-
manns Brandssonar, sem yngri ættatölur segja. Það er
því misskilningur ættfræðinga síðari tíma, að Salgerð-
ur, síðari kona Vigfúsar Erlendssonar hirðstjóra, hafi
verið systurdóttir Ögmundar biskups. Salný, kona
Snjólfs Brandssonar, hefir og ekki verið Pálsdóttir né
systir Ögmundar biskups, heldur Ögmundardóttir
Eyjólfssonar, móðursystir biskups. Hitt fær ekki stað-
izt vegna aldurs Salnýjar og vegna þess, að Eiríkur,
sonur Snjólfs Hrafnssonar, átti systurdóttur Ögmund-
ar biskups.