Blanda - 01.01.1940, Síða 204
202
Finnssonar1), og er frá þeim fjölmenn ætt
komin.
2) Anna Snjólfsdóttir, gift fyrir 22. des.
14872) Ólafi bónda í Vík á Seltjarnarnesi,
Ásbjarnarsyni. Þau seldu (22. des. 1487, í
Viðey) Þorvarði syni Steinmóðar ábóta y%
Búland í Skaptártungu fyrir 20 hundruð í
Vík (Reykjavík). Anna var síðan í Viðey
á vegum ögmundar ábóta frænda síns.
Synir ólafs og önnu voru þeir Ólafur í
Reykjavík og Jón lögréttumaður syðra,
faðir Ásbjarnar, föður þeirra Jóns og
Þórðar, Víkurbræðra.
3) N. N. Snjólfsdóttir, systir önnu, hefir átt
Þorstein Þorvaldsson, Finnssonar, Gamla-
sonar, bróður Finns á Ánastöðum3).
Þórður prestur Jónsson í Hítardal (fæddur
1609, dó 1670), sem var 4. maður frá Elínu,
systur Ögmundar biskups, segir svo frá for-
eldrum biskups:
„Biskup ögmundur var Pálsson, Guðmunds-
1) Bisk.s. Bmf. II, bls. 288.
2) D. I. VI, nr. 542, bls. 610—611. H. Þ. telur Önnu
þessa dóttur Snjólfs, Steinmóðarsonar ábóta í Viðey
(Sýsl. æf. IV, 87, 579) og hyggur hana bróðurdóttur
Þorvarðar Steinmóðarsonar, sem seldi Ólafi Ásbjarnar-
syni bónda Önnu 20 hundr. í Vík. En þessi ættfærsla
H. Þ. er skökk, og óhugsandi að koma henni heim við
rækt Ögmundar Pálssonar við Önnu, sem engu lýsir
öðru en mjög náinni frændsemi þeirra. Enda hafa þau
Ögmundur Pálsson og Anna Snjólfsdóttir verið systra
börn að frændsemi, sem hér er sýnt.
3) Svo sýnist mér rétt að skilja bréfið í D. I. IX, nr.
161, bls. 184—185, borið saman við önnur gögn samtíða,
Anna hét og dóttir Finns Þorvaldssonar. En móðxr
Finns og Þorsteins var dóttir Eyjólfs yngra Arnfinns-
sonar.