Blanda - 01.01.1940, Page 209
207
Grímur mun hafa átt dóttur Magnúsar í Bæ,
Gizurarsonar galla. Faðir Stakka-Gríms hefir
verið:
Ketill Grímsson í Hvammi á Vatnsnesi, f. um
1315—20, enn á lífi 29. janúar 1372. Hann átti
viðreka allan á Rúteyjarströnd (Hrúteyjar-) á
Hornströndum, milli Hvalár og Dögurðardals-
ár1). En þar höfðu Seldælir og Sturlungar áð-
ur átt reka og má af því vita, hverrar ættar
Ketill var og hefir faðir hans verið:
Skálla-Grímur Auðunarson í Selárdal (f. um
1280, d. 1353), áður nefndur, og mun hann hafa
átt systurKetils hirðstjóraÞorlákssonar, Narfa,-
sonar. Faðir Skalla-Gríms var:
Auðunn Kráksson prestur, líkl. í Selárdal, f.
um 1250, dó 1330; hans faðir:
Krákur Thómasson (dó 1302), er átti Þóru,
dóttur Orms Svínfellings (yngra, d. 1241),
Jónssonar2). Úr því er ættin auðrakin í fjölda
gveina til landnámsmanna. Sannast þannig orð
séra Þórðar í Hítardal, að Margrét, móðir Ög-
niundar biskups, hafi verið af miklum ættum.
Ef áætlað er, að Ögmundur Eyjólfsson, móð-
urfaðir ögmundar biskups, hafi verið sonur Eyj-
úlfs mókolls elzta (I.) Halldórssonar 1 Hauka-
dal í Dýrafirði, yrði skyldleiki Ögmundar bisk-
ups og Haga-Eyjólfs mókolls (III.) Gíslasonar
°1 fyrndur til þess, að biskup hefði verið lík-
legur að sýna Eyjólfi Gíslasyni og börnum hans
slíka frændrækni sem raun varð á. Frændsemi
Eyjólfs mókolls Gíslasonar og ögmundar bisk-
uPs yrði þá svo:
!) D. í. III, nr. 228, bls. 273—274.
2) Sturl. 31, 50, 51.