Blanda - 01.01.1940, Blaðsíða 216
214
Jón Guðmundarson, prestur í Hítardal 1590
— dó 7. febr. 1634, 75 ára, fæddur eftir því
1559 (Bisk.s. II, 280). Guðmundur lögréttu-
maður Jónsson á Hvoli í Saurbæ, faðir séra
Jóns, dó 30. okt. 1595 (Bisk.s. II, 278) og er
II, 292), þau Þórður Arnbjarnarson á FellsencLa og Elín
Pálsdóttir. En það hefir lengi verið ókunnugt, hver
Þórður, bóndi Elínar Pálsdóttur, var. Hann er hvergi
feðraður í ættatölum. Þórður Arnbjarnarson kemur við
bréf nyrðra og vestra 24. apríl 1478—27. maí 1514. En
fyrst getur hans norður á Helgastöðum í Reykjadal
(24. apríl 1478: D. í. VI, nr. 134, bls. 135). Af því má
draga, að faðir Þórðar (og máske Rúnólfs og Kristalls
Arnbjarnarsona) hafi verið:
Arnbjörn Markússon, sá sem Jón biskup Vilhjálms-
son veitir staðinn á Helgastöðum 1429 fyrir bænastað
Lofts ríka og Ingibjargar Pálsdóttur, konu hans (D. L
IV, nr. 424, bls. 389). Hafði Arnbjörn áður verið sveinn
Lofts og honum og konu hans tengdur, og þá sjálfsagt
helzt Ingibjörgu konu Lofts, og er það þannig, að Arn-
björn hefir verið náfrændi Halls Ólafssonar, Þorsteins-
sonar lögmanns, Eyjólfssonar. En Hallur átti Ragnhildi
Pálsdóttur, systur Ingibjargar, konu Lofts ríka.
4. maí 1430 veitir Jón biskup enn Arnbirni Helga-
staði „frá næstum fardögum og til annarra“ (D. I. IV,
nr. 451, bls. 409—10). Arnbjörn er enn skjalvottur á
Hólum í Hjaltadal 8. des. (1435) og Mælifelli í Skaga-
firði 5. júní 1436 (D. í. IV, nr. 591, bls. 553—554); en
ekki er hans síðar getið. Þórður Arnbjarnarson hefii'
því verið allgamall 1514, þegar hans getur síðast. Bróð-
ir Arnbjarnar hefir verið Magnús Markússon, virð-
ingarmaður nokkur i Þingeyjarþingi, fyrstur af leik-
mönnum meðal skjalvotta að Héðinshöfða á Tjörnesi
3. maí 1430 og í Húsavík 2. jan. 1431 (D. í. IV, nr. 483,
bls. 436), faðir: a) Markúsar nyrðra (bréf 1471—1478),
föður þeirra Magnúsar nyrðra (bréf 1477) og Jóns
(bréf nyrðra og syðra 1483—1534, er var prestur á
Breiðabólstað í Pljótshlíð, svo í Vallanesi og síðast
príor að Skriðuklaustri (1530—1534), föður Markúsar
sýslumanns í Múlaþingi (bréf 1536 og síðar); — °S