Blanda - 01.01.1940, Síða 219
217
mun hafa verið bróðir þeirra Sturlu Bergþórs-
sonar (bréf gert á Hólum í Hjaltadal 12. júní
1430, um veitingu Grenjaðarstaðar), og Sveins
Bergþórssonar, er átti Guðnýju, dóttur Jóns
Hákonarsonar í Víðidalstungu (sbr. D. I. IV,
nr. 639, bls. 599). Tumi þessi er í bréfi nokkru
talinn „Þorbergsson" (D. í. IV, bls. 359), og er
þar vafalaust átt við Tuma Bergþórsson (sbr.
t. d. Þorstein koll (hvítakoll?) Bergþórsson eða
,,Þorbergsson“, í Sturlungu, líklega bróður, að
faðerni, Ásgríms í Kaldaðarnesi, og Magnús
prest í Laufási Bergþórsson eða „Þorbergsson",
Kárasonar prests, Bergþórssonar), bróður Ein-
ars Bergþórssonar (D. í. III, IV og V). En
Tumi er þá (14. júní 1428) staddur í Hvammi
í Hvammssveit. Tumi Bergþórsson og Guðrún
Hallsdóttir, kona hans, áttu Ásgarð, og er Tuma
getið í bréfum nyrðra og vestra 1418—1449.
Synir hans og Guðrúnar voru:
a) Ólafur prestur á Eyri í Bitru, faðir Tuma,
Guttorms og Jóns á Eyri í Bitru o. fl.
b) Guðmundur, er bjó í Ásgarði „langa ævi“
og er látinn fyrir 2. júní 1470, og
c) Egill Tumason, máske faðir Jóns, föður
Egils, föður Ólafs (bréf 1536), vestra.
Þeir bræður erfðu Ásgarð eftir foreldra sína
(D. I. V, nr. 508, bls. 567—568).
30. maí 1456 á Mel í Miðfirði gefur Skúli
Loftsson (hins ríka og Kristínar Oddsdóttur
Jepps) Guðna Jónssyni (Ásgeirssonar) og Krist-
ínar Guðnadóttur, Oddssonar lepps „systur
syni sínum“ (systrungi), 60 hundraða til kvon-
ai'mundar og skilur þar í hálfan Ásgarð í
Hvammssveit, „ef Guðni giptir sig í þann stað,
sem Skúli vill“ (D. I. V, nr. 131, bls. 142—143).