Blanda - 01.01.1940, Side 228
226
brekku norður fyrir og um 1350; — ekki
son „ísleifs Þorvaldssonar, Klængssonar“,
sem ég gizkaði á í „Blöndu“ VI, 386. bls„
að lítt rannsökuðu máli. En „ísleifur Þor-
valdsson, Klængssonar“ má þó hafa til ver-
ið, þótt hann sjálfur sé hvergi nefndur í
nú kunnum skjölum. — Faðir þeirra Eiríks
og Gizurar hefir verið:
3) ísleifur ,,bóndi“ í Ásgarði í Hvammssveit,
fæddur c. 1260, enn á lífi 27. sept. 1327, og
segir svo í Sælingsdalstungumáldaga, þá
dagsettum: „Ártíðardag hvern föður og
móður ísleifs bónda úr Ásgarði skal segj-
ast sálumessa í Tungu (þ. e. Sælingsdals-
tungu) og svo hans, þegar hann andast“
(D. í. II, bls. 634). Af þessu má ráða, að
foreldrar ísleifs hafi verið grafin í Sæl-
ingsdalstungu og verið skyld eða tengd Ás-
grími Snorrasyni, er þar bjó 1337 (D. f. II,
717), föður þeirra Ketils þar og Brands á
Holtastöðum (áður á Flugumýri í Skaga-
firði), föður þeirra Snorra og Sölva prests,
föður þeirra Brands, ísleifs (bréf 1394, á
Holtastöðum), Magnúsar (1402) og Þor-
gríms á Marðarnúpi, síðara bónda Stein-
unnar Hrafnsdóttur lögmanns, Bótólfsson-
ar. Enda má nú með nokkurri vissu finna
framætt ísleifs og skyldleik hans við Ás-
grím Snorrason, og hefir dr. Jón Jóhann-
esson bent mér á, að ísleifur þessi, sem
hann telur líklegast, að sé faðir Eiríks,
föður Guðmundar, föður Hrafns lögmanns
(sjá og ritgerð mína í „Blöndu“ VI, 386.—
388. bls.), og Ásgrímur Snorrason muni
verið hafa systkinasynir, þannig, að for-