Blanda - 01.01.1940, Síða 232
230
ar. Móðir Sighvats var Herdís Arnórsdótt-
ir, Ásbjarnarsonar. Móðir Herdísar var
Þuríður Kuggadóttir, Þorkelssonar (ísl.s.3
I, 354), án efa Þorsteinssonar í Ljárskóg-
um (d. 1027), Þorkelssonar kugga, Þórð-
arsonar gellis. Móðir Herdísar Sighvats-
dóttur var Yngvildur Skúladóttir skálds,
Illhugasonar (,,Huga“) Bryndælaskálds,
Þórðarsonar í Brynjudal, Illhugasonar,
Þórðarsonar, Þorsteinssonar, Sölmund-
arsonar, Þórólfssonar smjörs. Þórður
eldri Önundarson mun fæddur c. 1165,
og er hann annar en sá Þórður (bróð-
ir hans inn yngri), sem Guðmundarsaga
dýra (Sturl.3 I, 200) segir, að hafi verið
grið gefin í brennunni í Lönguhlíð (1197)
og hafi sá Þórður þá verið barn að aldri
og þá nývígður til prests. Bræður þeirra
Þórðarsona voru þeir: Þorfinnur, Brúsi
prestur, Hámundur og Vigfús, en systur
þeirra: Guðrún og Þórunn.
7) Önundur Þorkelsson bjó fyrst á Lauga-
landi í Hörgárdal, en síðan í Lönguhlíð,
f. c. 1140, brenndur inni 7. maí 1197. Hann
átti goðorð og frændsemi við Einar, son
Halls prests á Möðruvöllum í Eyjafirði
(d. 1201), Gunnarssonar lögsögumanns
(1145—1155), Úlfhéðinssonar1 *) (Sturl.3 I,
158—159. — Þess er og getið, að þau Þor-
finnur Önundarson og kona hans, Ingi-
1) Gunnar lögsögumaður hefir ekki verið son Úlf-
héðins lögsögumanns Gunnarssonar, sem menn hafa
ætlað, heldur systursonur hans, sonur Úlfhéðins á Víði-
mýri, Kollasonar; sjá hér á eftir.