Blanda - 01.01.1940, Page 343
341
suður undir Galtará, þar sem Leyningsöxl heit-
ir í vesturfjallinu. Væri farið vestan megin
Torfufellsár, hafa tvær þverár orðið á leið
manns, Svartá, sem kemur úr Svarfdal, og hef-
ir hann áður verið nefndur, og Lambá, sem
steypist niður fjallið allmiklu sunnar. Er svo
haldið upp öxlina, og er þar allhátt upp að
fara og bratt, en klettalaust á þeim parti. Vest-
an við brúnina eru 2 vötn, Galtárvatn sunnar
og Lambárvatn norðaustur, og er farið á milli
þeirra og síðan stefnt sem næst í hávestur, yfir
svipaðar grjótöldur og urðir, sem eru á syðri
leiðinni, og er landið sízt lægra þarna. Galtár-
drög eru á vinstri hönd fyrst í stað, en þar, sem
þau beygja meira til norðurs, er farið- yfir þau.
Er skammt á milli efstu greina þeirra og Tinn-
árdalsdraga frá Austurdal. Vatnaskil eru þó
óglögg, og á svo að segja engu er að átta sig
þarna í dimmviðri. Lausgangandi maður hélt
sig venjulega norðanvert við Tinnárdalinn, þar
til kom vestur hjá svokölluðum Illugiljum, sem
kunn voru um eitt skeið fyrir surtarbrand eða
kolamyndun, sem finnst þar. Var þar farið
niður í dalinn og svo út hann og komið á sumar-
leiðina hjá eyðibýlinu Tinnárseli í norðanverðu
dalsmynninu. En væri verið með æki, sem all-
títt var, þá var farið yfir Tinnárdalsdrögin
ofan við dalsbotninn og vestur eftir suðurbrún
dalsins og kallast þar Sandafjall, og svo niður
þar, sem heitir Nýjabæjarbyrða ofan við Nýja-
bæ.
Talið er, að um 9 klst. gangur sé þarna á
milli bæja.
Þessi leið var sjaldan eða aldrei farin með
hesta.