Blanda - 01.01.1940, Page 370
368
ast þeir Jón og Bjarni Pálssynir (bræður) í
Hornafirði (Alþb. II, bls. 99). 1606 er ómaginn
Knútur Nctrfason dæmdur á Jón Pálsson eða
(ónafngreinda) systur hans (Alþb. IV, bls. 15),
og hefir Knútur þessi verið náfrændi Jóns Páls-
sonar á Kálfafelli og séra Lofts Narfasonar,
sem þá er látinn. Synir Jóns Pálssonar, sem
lengi bjó á Kálfafelli (ytra) fyrir 1608, voru,
auk séra Jóns á Staðarhrauni:
a) Koðran Jónsson á Kálfafelli 1633.
b) Páll Jónsson, f. c. 1555, dáinn fyrir 1633.
Sonur Páls þessa nefnist:
aa) Bjarni Pálsson og virðist vera á Kálfa-
felli 1633 (Alþb. V, bls. 316—317). —
Annar sonur Páls, bróðir Bjarna, hygg
ég hafi verið:
bb) Jón Pálsson á Syðri-Steinsmýri, f. c.
1590—95, faðir Jóns á Þverá, f. c. 1620,
er átti Halldóru Eyjólfsdóttur. Synir
þeirra Halldóru voru:
A) Jón á Núpstað (f. c. 1655), er átti
Elínu Eiríksdóttur.
B) Eyjólfur í Dal, faðir þeirra Jóns í
Dal og Runólfs (Steingríms ætta-
tölur, bls. 1089, og Manntal 1703,
bls. 437). — Frá Eyjólfi í Dal er
kominn í karllegg Vilmundur lancl-
læknir Jónsson.
C) Bjarni Jónsson, faðir Jóns nokk-
urs, er bjó einhvers staðar í Meðal-
landinu.
Faðir Jóns Pálssonar (eldra) á Kálfafelli,
föður séra Jóns gamla, hefir verið: Páll Sæ-
mundarson, bróðir Jóns í Hoffelli í Hornafirði
(Sýsl.æf. I, bls. 37), þar sem Sæmundur faðir