Hugur - 01.01.1989, Page 27

Hugur - 01.01.1989, Page 27
HUGUR INGIMAR INGIMARSSON Heidegger bjó lengst af í Svartaskógi. Eftir hann liggur fjöldi verka, bæði útgefinna og óútgefinna. Arið 1977 hófst heildarútgáfa á verkum hans og þar með eru taldir fyrirlestrar og námskeið. Upphaflega áttu bindin að verða 57 en þau eru farin að nálgast sjöunda tuginn.* * * * 5 Heidegger lést árið 1976 eins og fram er komið. Heimspekin Til að segja frá hugsun Heideggers þyrfti miklu meiri tíma en þær þrjátíu mínútur sem hér em í boði. Henni verður ef til vill best lýst með því að að segja að hún sé á mörkum heim- spekinnar. Sjálfur sagðist hann iðka fyrirbærafræði eða vem- fræði og vísaði þá í læriföður sinn Edmund Husserl.6 Lítið sem ekkert er til um Heidegger á íslensku, en til hans er hins vegar vitnað í nokkmm ritgerðum og greinum. Ytarlegast þó að ég held í bók Þorsteins Gylfasonar, Tilraun um manninn, og Páls Skúlasonar, Hugsun og veruleika, en í hvorugu tilvikinu þannig að það gefi einhverja heildarmynd af verkum hans eða áhrifum hans á heimspeki tuttugustu aldar.7 Ég ætla mér ekki að reyna að bæta úr þessu. Ég treysti mér einfaldlega ekki til þess hér. Hins vegar fullyrði ég að fáir ef nokkrir heimspekingar hafi haft jafn mikil Qg víðtæk áhrif á heimspekilega umræðu á með- umræðu um þetta. Ég er raunar þeirrar skoðunar að hún skipti engu um skilning á hugsun Heideggers. Sjá ennfremur Jacques Taminiaux: Lectures de l'ontologie fondamentale. Essais sur Heidegger. Editions Jerome Millon, Collection Krisis, Grenoble 1989. 5 Martin Heidegger. Die Griindprobleme der Phiinomenologie, Gesamtausgabe, Band 24, Vittorio Klostermann 1975, bls.471-476. 6 Edmund Husserl var uppi 1859-1938 og var sá samtímaheimspekingur sem mest mótaði Heidegger. Bók hans Logische Untersiichungen sem kom út aldamótaárið var eitt af eftirlætisverkum Heideggers, en þar er sett fram djörf kenning um merkingarhugtakið. Annað verk Husserls sem Heidegger hélt mikið upp á og mótaði alla hans hugsun er Philosophie als Strenge Wissenschaft, stutt rit frá 1911. Husserl hafði umtalsverð áhrif á Gottlob Frege, sem talinn er einn fremsti rökfræðingur þessarar aldar. Undirstöður reikningslistarinnar, HIB, Reykjavík 1989. Þá er ótrúlega algengt einhverra hluta vegna að vitnað sé í verk Husserls til stuðnings tilteknum kenningum í sálarfræði. Líklegast er það vegna þess að heiti margra verka hans vísa til sálarfræði, en ekki vegna þess sem um er fjallað íþeim. 7 Þorsteinn Gylfason. Tilraun um manninn, Almenna bókafélagið, Reykjavík 1970. Páll Skúlason. Hugsun og veruleiki, Hlaðbúð, Reykjavík 1975. 25
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.