Hlín - 01.01.1922, Blaðsíða 37
Hllri 35
því ekki að vera lengi atvinnulaus í Birmingham, því
dýrtíðin óx hröðum fetum.
í útjaðri borgarinnar á sjer aðsetur fjelag, er Electric
& Ordnance Accessories Co. Ltd. heitir, og hefir stöðvar
víðsvegar um land og heitir í raun og veru í heild sinni
»Vickers Ltd.« margir kannast við nafnið, af því að þetta
fjelag bjó til fyrstu flugvjelina, er komst yfir Atlantshafið.
Jeg vann þar frá því í des. 1915, og þangað til haustið
1919, er jeg fór heim til fslands, fyrst því nær heilt ár
að sprengikúlnahylkjagerð og síðar sem bílstjóri. — Verk-
smiðjan stendur, sem áður er sagt, utan við bæinn, og
strax og komið er út úr dyrum, andar maður að sjer
sveitaloftinu og við auganu blasa skógar og engi.
Parna var ein hin stærsta hergagnaverksmiðja á Eng-
landi, að undantekinni Woolwich Arsenal. Inn í verk-
smiðjuna mátti fara um tvö hlið, og var fjarlægðin milli
þeirra 1 ensk míla og fólksfjöldinn var 24.000. Fyrir-
komulag verksmiðjunnar var, að því er öllum bar saman
um, hið ágætasta, enda var yfirstjórnandi hennar ágætur
maður, Mr. Dallow frá Lundúnum. Annars voru í stjórn
verksmiðjunnar um 300 manns. Kaupgjald var að minsta
kosti helmingi hærra en hjá Birmingham Metal & Muni-
tion Co. og má af því sjá, að enskar verksmiðjur áttu
og eiga ekki sammerkt nema að nafninu. Pótt stjórnin
borgaði sömu upphæð til allra staða fyrir sömu fram-
leiðslu, þá var það undir stjórn verksmiðjunnar komið,
hvort einstaklingar sættu sæmilegum kjörum eða ekki,
það er að segja, hvort stjórn verksmiðjunnar dró undir
sig nokkurn hluta kaupgjaldsins eins og víst þótti um
B. Met. & Mun., þar sem verkföll og uppþot komu
fyrir á mánuði hverjum, og þar sem við sjálft lá eitt sinn
að yfirstjórnandi fjelagsins væri tættur sundur, er hann
talaði til fólksins frá mótorvagni sínum.
Vickers Ltd. höfðu aldrei af slíkum óeirðum að segja.
3’