Morgunn - 01.06.1976, Blaðsíða 17
SVO SEM MAÐURINN SAIR . . .
15
arinnar. Hvaða heimspekikerfi kæmist til dæmis næst sann-
leikanum? Ef tilgangur lífsins var nokkur, hvert var þá mark-
mið tilveru mannsins? Var nokkur sannleikur í ódauðleika-
kenningunni? Og ef svo væri, hvað henti þá manninn eftir
dauðann? Kynni skyggni Cayces nú að geta veitt svör við
slíkum spurningum?
Það vissi Cayce ekki. Háspekilegar vangaveltur höfðu aldrei
hvarflað að honum. Hann hafði athugasemdalaust aðhyllst
þær kenningar sem að honum hafði verið haldið í kirkjunni.
Vangaveltur um það, hvort þær væru nú sannar þegar þær
væru bornar saman við heimspeki, visindi eða kenningar ann-
arra trúarbragða, voru hugsanahætti hans algjörlega fram-
andi. Ástæðan til þess að hann hafði fallist á að sofna með
þessum undarlega hætti, átti eingöngu rætur sínar að rekja
til göfugrar löngunar hans til þess að hjálpa þjáðum með-
bræðrum sínmn.
Lammers var þamiig fyrsti maðurinn, sem sá aðra mögu-
leika í þessum hæfileikum en að lækna sjúkdóma. Og þetta
vakti nokkra forvitni hjá Cayce sjálfum. Sjaldan hafði það
borið við, að ekki kæmu skýr svör við hinmn margvíslegustu
spurningum sem fram var varpað. Hvers vegna skyldu ekki
einnig koma fram svör við spurningum Lammers?
Sökmn kaupsýsluanna sinna gat Lammers ekki haldið kyrru
fyrir í Selma, og bauð hann þvi Cayce að koma til sin og
dveljast hjá sér sem gestur i eina eða tvær vikur í Dayton.
Það hvarflaði nú að Cayce, að ef til vill ætlaði guð að opna
honum nýjar leiðir dl þjónustu við sig og hann féllst á að
fara.
Áhugi Lammers hafði nýlega vaknað á stjörnuspáfræðum.
Hugmynd hans var sú, að ef nokkmt mark væri takandi á
stjörnuspám, þá kynni einnig að finnast í þeim skynsamleg
skýring á sambandi mannsins við alheiminn. En einmitt þetta
fannst honum alveg tilvalið að byrja á að rannsaka með
skyggni Cayces.
Þegar Cayce lagðist til svefns síðdegis i október 1923 á
Phillipshótelinu í Dayton var hann því ekki sefjaður til þess