Morgunn - 01.06.1976, Blaðsíða 92
90
MORGUNN
drauminn, og réðu þau hann öll á sömu leið og ég sjálf. Sólar-
hring síðar fékk amma mín mjög hægt andlát.
Stuttu eftir lát hennar fór móðursystir mín til útlanda í
þriggja vikna ferð, sér til hvíldar og hressingar. En varla var
hún aftur komin heim, þegar mig dreymdi annan draum.
Þykir mér nú sem ég sé stödd í Iðnaðarbanka íslands, þar
sem frænka mín vann og þar sem ég hafði einnig unnið.
Þykir mér við báðar ætla í kaffi upp í kaffistofu, sem þar er
til húsa, og ætluðum með lyftunni. Ég ýti á hnappinn svo
lyftan komi niður og gerir hún það. Dagbjört frænka mín fer
inn í lyftuna á undan. En um leið og ég ætla á eftir henni
lokast lyftudyrnar með skelli og stígur hún upp. Ég ákveð að
bíða næstu ferðar. En þegar lyftan kemur niður aftur og
opnast, koma út úr henni nokkrir samstarfsmenn Dagbjartar,
klæddir í kjól og hvítt og með pípuhatta. Þeir bera líkkistu á
milli sin, fara með hana innfyrir afgreiðsluborðið og leggja
hana á skrifborð það, sem Dagbjört hafði til umráða. Við
þetta vaknaði ég og leið mjög illa.
Skömmu síðar komust læknar að því, að Dagbjört væri með
krabbamein. En sá sjúkdómur dró hana að lokum til dauða
á besta aldri. Hún lést i Borgarspítalanum í Reykjavík. Vil ég
taka það fram hér sérstaklega, að samstarfsfólk hennar í bank-
anum sýndi henni framúrskarandi alúð og hjálp í veikindum
hennar. Hún þurfti að styðjast við tvo stafi til þess að komast
ferða sinna. Svo var af henni dregið undir lokin. Ég nefni
þetta sérstaklega, vegna þess sem hér fer á eftir.
Skömmu eftir lát Dagbjartar finnst mér ég í draumi vera
sótt af einhverjum, sem ég að vísu sá ekki, en skynjaði. Það
er tekið í hönd mér og ég svif af stað. Þykir mér ég að
lokum koma á stórt sjúkrahús eða hvíldarheimili. Þarna er
mér sýnt rúm og þar liggur Dagbjört. Hún virðist vera í eins
konar móki og verður því ekki vör við mig. Ég sé þarna lækna
og hjúkrunarkonur á ferð fram og aftur. Allt er þarna hvítt,
mjög bjart og rúmgott.
Næst vissi ég af mér i rúminu minu. Ég var glaðvakandi
og draumurinn mjög skýr í huga mér.