Morgunn - 01.06.1976, Blaðsíða 18
16
MORGUNN
að sjá innri líkamshluta Lammers, heldur var honum í þess
stað sagt að lesa fyrir stjörnuspá hans.
Það brást ekki frekar en fyrri daginn að hinn sofandi Cayce
færi að því sem lagt var til. Og svo kom stjömuspáin í mjög
stuttum setningum, eins og simskeyti. Þá gerðist það rétt undir
lok dálestursins, i þessum sama snögga stuttorða stíl, að fram
kom þessi einkennilega setning: „Hann var eitt sinn munkur.“
Það var víðsfjarri því að þetta seðjaði forvitni Lammers.
Þvert á móti jók þetta áhuga hans um allan helming. Þegar
Cayce vaknaði fann hann Lammers í áköfum viðræðum við
hraðritarann og einkaritarann, Linden Shroyer, um það, hvað
af því mætti ráða sem fram hefði komið. Taldi Lammers að
ef hægt væri að sanna að endurholdgunin væri sannreynd,
þá hlyti það að hafa í för með sér algjöra endurskoðun á heim-
speki, trúarbrögðum og sálfræði. Ef Cayce væri fáanlegur til
þess að hafa fleiri dálestra um þetta efni, þá kynnu þau að
geta komist að því hvernig lögmál endurholdgunarinnar verk-
uðu. Hvernig var hún til dæmis tengd stjömuspáfræðinni?
Og hvernig útskýrði hvorttveggja mannlifið, persónuleikann
og örlögin?
Lammers vildi nú ólmur fá fleiri dálestra um þetta efni.
Cayce, sem á þessu stigi málsins varla vissi hverju hann ætti
að trúa, féllst á það, en þó hálfhikandi. Svör við áköfum
spurningum Lammers í dálestrunum urðu nú smám saman
ákveðnari og skýrari í einstökum atriðum, bæði að því er
snerti fyrri lífsreynslu hans sjálfs og hin víðtæku vandamál
sem hann hafði byrjað að rannsaka. Samkvæmt dálestrunum
felst nokkur sannleikur í stjörnuspám. Sólkerfið sá um það,
að hver sál fengi sín reynslutímabil sér til þroska. Lífsreynsla
mannsins skiptist á að eiga sér stað á jörðinni og í öðrum
vitunarviddum. Þessum vitundarviddum hafði með tímanum
verið gefin nöfn plánelanna, sem þannig urðu einheitingar-
tákn í hugsuninni um þær. Stjörnuspár, eins og þær eru nú
framkvæmdar ganga þó aðeins nokkuð í sannleiksátt. Þær geta
ekki orðið nákvæmar, í fyrsta lagi vegna þess, að þær taka
endurholdgunina ekki með í reikninginn, og í öðru lagi, þá