Morgunn - 01.06.1976, Blaðsíða 44
42
MORGUNN
markvisst og skipulega þjálfuðu sig til þess að öðlast trúar-
lega reynslu og upplifun, sem héldu þessari trú lifandi í ald-
anna rás.
Trúin var uppspretta, sem greip og gagntók allan persónu-
leikann og átti upptök sín í reynslu og upplifun, í áþreifan-
legri sannleiksupplifun. Trúin er sá innblástur, sem ákveðin
þekking getur veitt. Hún varð ekki til sem nein andstæða
gegn þekkingu mannsins, lieldur sem afleiðing hennar. Ein-
ungis á síðustu tímum finnum við þessa andstæðu milli trú-
ar og þekkingar. Hún er ekki almennt hugmyndasögulegt
fyrirhæri, heldur eitthvað sérstakt og einkennandi fyrir nú-
tímann.
Þegar einn af lærisveinum Búddha spurði eitt sinn meist-
arann, hvernig hann ætti að trúa, þá svaraði Búddha, að
hann ætti ekki að trúa á grundvelli neinna ytri fyrirmæla,
ekki heldur á grundvelli neinnar sögulegrar hefðar, já, hann
mátti ekki trúa á neitt, þótt hann fyndi, að það væri gott og
rétt og félli að því, sem hann kannski vildi trúa. Hvernig átti
hann þá að trúa, spurði lærisveinninn. Hann gæti þá fyrst
raunverulega trúað, svaraði Búddha, þegar eitthvað væri orð-
ið að persónulegri reynslu og upplifun hans.
Við eigum erfitt með núorðið að gera okkur grein fyrir því,
hvernig trú verður til á grundvelli þekkingar og upplifunar,
vegna þess að öll hugtök okkar yfir upplifun og allar hug-
myndir okkar um reynslu eru hundnar þeirri vanahugsun,
sem alþýðuvísindalegar skýringaraðferðir hafa komð inn hjá
okkur. En það er til nú á timum táknrænt dæmi um það,
hvernig trú sprettur upp af þekkingu, hvernig það, sem mað-
urinn trúir á í raun og veru, fær innblástur frá upplifun hans
og vitundarlífi. Þetta dæmi er ekkert annað en trúin á nátt-
úruvísindin. Það, sem maðurinn raunverulega trúir á nú á
tímum, hverju, sem hann sjálfur heldur fram, það sem mað-
urinn trúir á og styður sig við og játast undir, það er hin
náttúruvísindalega innsýn í raunveruleikann.
Einhvern furðar e. t. v. á að heyra talað um ,,trúna á
náttúruvísindin“. Vísindin eiga einmitt að vera algjör and-
j