Morgunn - 01.06.1976, Blaðsíða 99
FRÁ RANNSÖKNARSTOFNUN VITUNDARINNAR:
„HVER ER Ég“ - ÆFINGIN
SÁL V AXT ARLEIÐIR
Seztu niður og slakaðu á þar sem þú getur verið ótruflað-
ur/ótrufluð um stund. Einbeittu þér að því að skynja þína
eigin meðvitund. Ekki taka afstöðu til neins af því, sem þú
tekur eftir, skynjaðu það bara, festu þig ekki við að hugsa
um það.
Þú tekur eftir ýmsum þáttum sálarlífs þíns, svo sem skynjun-
um, utanaðkomandi og frá eigin likama, tilfinningum, hugs-
unum, ímyndunum, festu ekki athyglina við neitt af þessu,
taktu bara eftir öllum þínum sálrænu hrærinum og láttu at-
hyglina fljóta, fljóta með andardrættinum frjálst og létt.
Undir þessum kringumstæðum geturðu líka tekið eftir því,
að sjálfsvitundin er sérstakur þáttur vitundar þinnar, sá hluti,
sem horfir á það sem er að gerast á leiksviði meðvitundar
þinnar. Með þvi að láta athyglina fljóta og halda áfram að
slaka á, geturðu fundið skýrar og skýrar fyrir sjálfsvitund
þinni. Ekki reyna á þig, heldur slakaðu betur og betur á og
haltu athyglinni skýiTÍ og fljótandi. Ein leið sem mörgum
reynist vel til þess að ná þessu er að segja við þig i huganum
um leið og þú andar: „1 hvert skipti, sem ég anda frá mér
slaka ég enn betur á. 1 hvert skipti, sem ég anda að mér
verður vitund mín skýrari.“ Má á þennan liátt ná því að
komast í skýrt og rólegt sálarástand.
Þú skalt hafa blað fyrir framan þig og eftir 10-15 minútur
skaltu skrifa efst á blaðið Hver er ég og dagsetninguna fyrir
neðan. Skrifaðu svör þín við þessari spurningu eins frjálst og
opinskátt og þú getur. Skrifaðu allt, sem í hugann kemur án
þess að velja eða hafna.
7