Morgunblaðið - 20.11.2010, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 20.11.2010, Qupperneq 11
Hugsi Ok, átti ég að fara fyrst þarna, og síðan þarna? Eða síðan þarna og þá ... æ bíddu, hérna ... Athyglisvert. Ég fílaði þetta, þetta keyrði hausinn í gang og minnti á sérkennilegan jógatíma. Því næst lögðumst við á gólfið og áttum að vera eins og tuskur. Eftir það stóð- um við upp og slompuðumst um (hinn svofelldi Kaliforníumaður) og svo stig af stigi þar til við vorum hlaupandi um, öskrandi, æpandi, hlæj- andi og grátandi. En þegar hér var komið sögu hafði ég dregið mig í hlé. Ég sá að stelpurnar voru bæði orðnar þreyttar og óöruggar og vissi sem var að voðinn yrði vís þegar brjálsemin yf- irtæki hópinn á lokastigi þessara tilfinninga og tjáningar. Ég smokraði mér því út í horn með stelpurnar í fanginu og fylgdist með. Endað var á því að skipta fólkinu upp í hópa og þeir látnir spinna verk á staðnum. Ég tók ekki heldur þátt í því, en nú voru hvatirnar orðnar annarlegri. Ég hefði vel getað tekið þátt í þessum hluta með stelpurnar mér við hlið, enda þessi partur til muna rólegri og yf- irvegaðri. Ég held hins vegar, svei mér þá, að ég hafi fengið „cold feet“ eins og það er kallað upp á ensku. Ég þorði ekki, fannst eitthvað óþægilegt og verð að viðurkenna, þetta með hláturinn og grátinn var nokkuð sem ég hefði veigrað mér við að fara út í. Ég notaði því dæturnar sem hálfgildings afsökun fyrir því að bakka rólega út úr þessu. Ég hef enga skýringu á því af hverju ég gerði þetta. Und- arlegt fyrir mann sem getur vart verið í klæð- um með góðu móti og er haldinn óstjórnlegri sýndarþörf. Tímanum sjálfum var stjórnað af miklum sóma og ekkert við hann að athuga. En ég þarf greinilega að hugsa það aðeins bet- ur hvort ég eigi að gera alvöru úr því að sækja um … Rrrrrrr!!! Hinar ógurlegu, lifandi sláttuvélar létu heldur betur til sín taka! Æææ Það hefði nú mátt fótósjoppa bumbuna. Andakt Ó, himneski faðir, lýs mér leið... Hljóð voru reynd, hópurinn sönglaði með sínu nefi og reyndi að ná samtóni, m.a. með því að hver settist upp við bakið á öðrum og reigði hrygg- inn og ýlfraði eins og sláttu- vél. Athyglisvert. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2010 Viðskiptavinir með íbúða- og fasteignalán hjá Landsbankanum geta lækkað höfuðstól lána sinna með því að óska eftir 110% aðlögun eða 25% höfuðstólslækkun lána í erlendri mynt. LAUSNIR FYRIR HEIMILI | landsbankinn.is | 410 4000 Við tökum vel á móti þér um land allt. 110% aðlögun · Höfuðstóll íbúða- eða fasteignalána er færður niður í 110% af virði eignar · Fyrir þá sem eru með íbúða- og fasteignalán með höfuðstól umfram virði eignar 25% höfuðstólslækkun lána í erlendri mynt · Höfuðstóll lána í erlendri mynt færður niður um 25% samhliða breytingu í verðtryggt eða óverðtryggt íbúðalán í íslenskum krónum · Fyrir þá sem eru með lán í erlendri mynt N B I h f . ( L a n d s b a n k in n ) , k t . 4 7 1 0 0 8 - 0 2 8 0 . E N N E M M / S ÍA / N M 4 4 2 8 3 Lægri höfuðstóll

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.