Morgunblaðið - 20.11.2010, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 20.11.2010, Qupperneq 29
29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2010 Á fullri ferð Hundar vita fátt skemmtilegra en að fá að hlaupa frjálsir úti í náttúrunni og getur hraðinn á þeim jafnvel orðið slíkur að erfiðlega gengur að ná þeim í fókus. Árni Sæberg Á nýafstöðnum aðal- fundi Læknafélags Ís- lands var samþykkt samhljóða ályktun þar sem varað er við þeim mikla niðurskurði í fjárframlögum til heil- brigðisþjónustu sem fyrirhugaður er í fjár- lögum næsta árs. Al- þingi og ráðuneyti voru hvött til að íhuga vandlega afleiðingar á vissum landsvæðum þannig að öryggi þegnanna verði ekki skert. Bent var á að þörfin fyrir heilbrigðisþjónustu muni fara vax- andi og þessari þörf verði að mæta þrátt fyrir erfiða fjárhagsstöðu. Læknasamtökin lýstu sig reiðubúin til samstarfs við stjórnvöld um bestu leiðir að því marki. Boðaður 4,7 milljarða króna niðurskurður á framlögum til heil- brigðisþjónustu á næsta ári er 17% af niðurskurði ríkis- útgjalda. Alvarlegastar eru horfurnar á lands- byggðinni en fullyrt er að sjúkrahússtarfsemi víða úti á landi muni leggjast af í núverandi mynd ef þessi áform ganga eftir. Á sjúkra- húsum landsbyggð- arinnar er nú sinnt bráðaþjónustu vegna algengra vandmála í lyflækningum og skurðlækningum á göngudeildum eða með innlögnum og smærri að- gerðum en erfiðari tilfelli send á stærri sjúkrahús. Vel menntaðir sér- fræðilæknar hafa ráðið sig til starfa á landsbyggðinni og sinna mestum hluta sérfræðiþjónustu á staðnum. Þetta er skilvirk og góð þjónusta sem veitir landsbyggðarfólki nauð- synlegt öryggi. Afleiðingar af harkalegum nið- urskurði eru ófyrirséðar. Hætta er á því að læknar flytjist af landsbyggð- inni eða fáist ekki til starfa þar. Þann skaða yrði erfitt að bæta. Eft- irspurn og þörf fyrir þjónustu mun ekki minnka. Flutningur sjúklinga í stórum stíl til Landspítala og Fjórð- ungssjúkrahússins á Akureyri vegna veikinda sem unnt er að sinna vel á sjúkrahúsum í heimabyggð er óskynsamlegur af mörgum ástæð- um. Ekki hefur verið sýnt fram á að kostnaður við meðferð algengra vandamála á landsbyggðarsjúkra- húsum sé meiri en á stóru spítöl- unum. Víða um landið eru sam- göngur ótryggar og flutningur bráðveikra á milli staða mun leiða til áhættu og aukins kostnað. Ekki má gleyma því að ferðir vinnandi fólks um langan veg til sérfræðilækna kosta tekjutap fyrir einstaklinga og samfélagið. Sama er að segja um ættinga sem þurfa að fylgja sínum nánustu og styðja við innlögn á sjúkrahús. Skynsamlegt væri að vinna að hagræðingu í nánu sam- starfi við fagfólk á hverju lands- svæði og stjórnendur sjúkrahúsanna út frá heildarhagsmunum. LSH og FSA eiga fullt í fangi með þau verk- efni sem þessi sjúkrahús sinna nú þegar. Ástandið þar mundi versna til muna ef mikill fjöldi algengra vanda- mála af landsbyggðinni bætist við þeirra verkefni. Því er líklegt að stóru sjúkrahúsin væru betur sett með það góða samstarf sem verið hefur við landsbyggðarsjúkrahúsin. Læknasamtökin hafa mikla fag- þekkingu á heilbrigðisþjónustunni í landinu. Ætla mætti að náin sam- vinna við lækna um leiðir til að spara en varðveita jafnframt mikilvægustu þætti þjónustunnar væri nauðsynleg á þessum erfiðu tímum. Heilbrigð- isráðuneytið hefur þó ekki leitað eft- ir samvinnu við læknafélögin né önn- ur fagfélög svo vitað sé og ber því alfarið ábyrgð á þessum tilögum og afleiðingum þeirra. Þessar niðurskurðartillögur eru mistök sem gætu reynst afdrifarík og nauðsynlegt er að leiðrétta við af- greiðslu fjárlaga. Ríkisstjórnin ætti að breyta forgangsröðun sinni og hlífa heilbrigðisþjónustunni í sam- ræmi við fyrirheitin um að varðveita velferðarkerfið. Eftir Stein Jónsson » Þessar niðurskurð- artillögur eru mis- tök sem gætu reynst af- drifarík og nauðsynlegt er að leiðrétta við af- greiðslu fjárlaga. Steinn Jónsson Höfundur er formaður Læknafélags Reykjavíkur. Hættulegur niðurskurður Í 55. gr. Vínarsamningsins sem ber yfirskriftina virðing fyrir lögum og reglum við- tökuríkisins, segir í 1. tll. „Öll- um þeim sem njóta forréttinda og friðhelgi ber skylda til að virða lög og reglur viðtökurík- isins, en slík skylda skerðir þó ekki forréttindi þeirra og frið- helgi. Þeim er einnig skylt að skipta sér ekki af innanlands- málum í því ríki.“ Þennan samning er vert að hafa í huga þegar sú staðreynd blasir við að um er að ræða stórfellda fjármagnsflutninga til Ís- lands frá Evrópusambandinu til kynningar á sambandinu. Í umræðum á Alþingi frá árinu 1978 þeg- ar frumvarp til laga nr. 62/1978, sem banna fjárhagslegan stuðning erlendra aðila við ís- lenska stjórnmálaflokka og blaðaútgáfu er- lendra sendiráða á Íslandi, benti þáverandi þingmaður Framsóknarflokksins Páll Pét- ursson á þessa staðreynd í umræðum. Því er ljóst að fjáraustur sendiráðs ESB til kynn- ingar á málstað sínum og til- raunir til keyptra skoð- anamyndana eru ólöglegar að íslenskum lögum auk Vín- arsamningsins. Erlend sendi- ráð njóta friðhelgi og þeim er óheimilt að hafa afskipti af inn- anríkismálum. Íslendingar eru því tvívarðir við áróðri þessum. En hvert var upphaf þess að lög nr. 62/1978 voru sett? Á þessum tíma hafði Alþýðu- flokkurinn átt erfitt uppdráttar og hafði nær þurrkast út. Ef rýnt er í greinargerð með frumvarpinu kemur ástæðan fram: „Orsök þess, að flutningsmenn flytja nú þetta sér- staka frumvarp sem varðar einn þátt máls- ins, er hins vegar sú, að upp komst nú í vet- ur og liggur fyrir játning eins stjórnmálaflokks, Alþýðuflokksins, að hann hafi leitað fjárframlaga erlendis frá og fái nú þaðan peninga til þess að kosta útgáfu blaðs síns og standa straum af annarri stjórnmálastarfsemi á landi hér.“ – Gleym- um ekki að Alþýðuflokkurinn hefur nú geng- ið í gegnum nafnabreytingu til að skrúbba af sér fortíðina, þrátt fyrir að gömlu belg- irnir sitji sem fastast. Hér er brot úr 30 ára gamalli ræðu, og gæti eins átt við í dag, sem fyrsti flutnings- maður frumvarpsins, Stefáns Jónsson, hélt: „Svo að tekið sé nærtækt dæmi úr sögunni, þá er það vafalaust að Norðmenn, Danir og Svíar reyndust okkur minni vinir í baráttu okkar um landhelgina en ýmsir höfðu vænst og gengu raunar í yfirlýsingum sínum þvert gegn okkur á þýðingarmiklum vettvangi þegar mikið var í húfi. Forustumenn verka- mannaflokkanna þar voru okkur engu þarf- ari en annarra flokka forustumenn í því máli og þó raunar þeim mun verri sem þeir voru valdameiri í löndum sínum á þeim tíma.“ Áhyggjur þingmanna af fjáraustri syst- urflokka Alþýðuflokksins inn í flokkstarf sitt hér á landi fyrir 30 árum eru enn í fullu gildi. En þessi ummæli segja þó meira en nokkuð annað um stöðu Samfylkingarinnar í dag, en þau eru úr ræðu Stefáns Jónssonar er að ofan er getið: „Ljóst er einnig, að tengsl þessara flokka við sósíaldemókrata í Þýskalandi, sem mestir eru nú áhugamenn um viðgang Efnahagsbandalagsins, eru slík, að einnig þaðan er okkur hætta búin í gegn- um fyrrnefnd stjórnmálasamtök á Norð- urlöndum. Hefur reyndar komið í ljós, að verkamannaflokkarnir á Norðurlöndum hafa miðlað fé þaðan beinlínis í því skyni að dylja uppruna þess.“ Nú hefur peningasamband Alþýðuflokks- ins sáluga við verkamannaflokka Norður- landanna endurnýjast í peningasambandi Samfylkingarinnar og Evrópusambandsins. Heldur Samfylkingin að fjármagn ESB geti keypt skynsama og vel upp lýsta þjóð til fylgis við sig? Hví breytist ekkert hér á landi? Eftir Vigdísi Hauksdóttur »Nú hefur peningasamband Alþýðuflokksins sáluga við verkamannaflokka Norður- landanna endurnýjast í pen- ingasambandi Samfylking- arinnar og ESB. Vigdís Hauksdóttir Höfundur er lögfræðingur og þingmaður Framsóknarflokksins. Vínarsamningurinn, Samfylkingin og erlend sendiráð

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.