Málfríður - 15.10.2007, Qupperneq 17
MÁLFRÍÐUR 1
koma auga á tækifærin til þess að geta nýtt þau. Til
að mynda var nefnt dæmi um að bankarnir væru
með höfuðstöðvar sínar í Frankfurt og London en
algengt væri að í þeim samskiptum væri einvörð
ungu notuð enska. Hins vegar myndu viðskipta
menn frekar ná samningum ef að þeir töluðu móð
urmál viðskiptaaðila sinna. Með því að tala þeirra
tungumál kæmust þeir bæði nær viðskiptaaðilum
sínum og eins væri viðhorfið strax jákvæðara og
með því væri um leið mikið unnið. Með aukinni
alþjóðavæðingu myndu því ávinnast ýmis tækifæri
sem gætu nýst Íslendingum vel ef þeir kæmu auga
á þau.
Allir viðmælendur mínir nefndu hið stóra mál
svæði þýskumælandi landa í Evrópu sem rökstuðn
ing fyrir mikilvægi þýsku sem erlends tungumáls.
Samkvæmt viðmælendum mínum er þörfin fyrir
þýskukunnáttu í íslensku atvinnulífi mikil og fer
vaxandi. Sameiginlegt álit þeirra var enn fremur að
þýskukennarar gætu eflt áhuga nemenda sinna með
því að sýna fram á fjölbreytt notagildi tungumáls
ins þegar út á vinnumarkaðinn væri komið og með
því að undirstrika mikilvægi tungumálakunnáttu í
nútímasamfélagi almennt.
Í rannsókninni kom það mjög vel í ljós að þörfin
fyrir þýskukunnáttu þar sem samskipti við þýsku
mælandi lönd fara fram er alls staðar mikil og að
með opnun landamæra og aukinni alþjóðavæðingu
myndi þessi þörf stöðugt aukast. Í gögnum frá
Hagstofu Íslands kemur fram að þýskir ferðamenn
eru stærsti hópur ferðamanna á Íslandi sé miðað við
gestakomu. Eins er Þýskaland (ásamt Austurríki og
Sviss) mikilvægasta viðskiptaland Íslands, ef tekinn
er saman bæði innflutningur og útflutningur. Í ljósi
þessa liggur beint við að þörfin fyrir þýskukunnáttu
í íslensku atvinnulífi hlýtur að vera mikil.
Að lokum
Niðurstöður rannsóknarinnar voru bæði afar áhuga
verðar og ánægjulegar og geta reynst þýskukenn
urum nytsamlegar til þess að draga hinn fjölbreytta
og hagnýta tilgang þýskunámsins betur fram í
dagsljósið. Til þess að efla áhugahvöt nemendanna
á markvissan hátt er hægt að sýna þeim með bein
um dæmum á hversu fjölbreytilegan máta hægt er
að nýta þýskukunnáttu þegar út á vinnumarkaðinn
er komið. Algengt er að nytsemi þýskukunnáttu
í atvinnulífinu sé helst tengd við ferðamálaiðn
aðinn, störf túlka, þýðenda eða störf þýskukennara.
Tækifærin eru hins vegar svo miklu fleiri hvað góða
þýskukunnáttu varðar. Kynning þeirra starfa sem
í boði eru fyrir utan hin „hefðbundnu“ störf, hvort
sem það er í innflutnings eða útflutningsgreinum,
tæknigeiranum eða í fjármálageiranum ætti að virka
mjög hvetjandi á nemendur og auka áhuga þeirra
á tungumálinu. Önnur störf sem til greina koma
eru t.d. í tryggingageiranum, í lyfjaiðnaðinum og
einnig í heimi listanna. Þýskukennarar eru líklega
best í stakk búnir til þess að kynna þessi tækifæri
fyrir nemendum sínum og geta þannig aukið áhuga
þeirra á þýskunáminu. Með því að gera nemendur
meðvitaðri um fjölbreyttari atvinnumöguleika búi
þeir yfir góðri þýskukunnáttu aukast að sama skapi
líkurnar á því að fjöldi þýskunemenda fari vax
andi. Með því að gera tilgang þess að læra þýsku
sýnilegri verður því ávinningurinn bæði fleiri og
áhugasamari nemendur.