Málfríður - 15.10.2007, Síða 21
MÁLFRÍÐUR 1
lampen mellem drengen og måtten, en mellem virðist
vera eitt af þeim orðum sem nemendur hnjóta um,
tæp 50 % heyra ekki þegar sagt er nu skal du sætte
klokken ved siden af hunden og enn færri merkja rétt
við sæt sokken under stolen. Athygli vekur að hér eru í
lykilorðunum, um að ræða samstöfur sem eru hljóð
lausar í dönsku en bornar fram skýrt og greinilega
í íslensku eins og under [’ån’ə], mund [’mån’], hund
[’hun’], eða bord [’bo’r] og þar sem sérhljóðið er ekki
til í íslensku.
Viðfangsefni lestrar
Prófgögn í lestrarþætti áttu eins og í hlustunarþætt
inum rætur í námskrá og byggjast að hluta til á
Evrópurammanum og þeim marklýsingum sem
liggja til grundvallar Evrópsku tungumálamöpp
unni á þrepi A1. Prófgögnin voru hefti með texta,
verkefnum og myndum í lit. Öll verkefni kröfðust
þess eins af nemendum að þeir settu kross við það
svar sem þeir töldu réttast. Nemendur fengu góðan
tíma til að leysa prófið. Sami háttur var hafður á
og í hlustunarþættinum. Byrjað var á forkönnun
og könnun lögð til grundvallar úrvinnslu gagna.
Forkönnun og könnunin sjálf voru byggðar upp á
sama hátt.
Í lestrarprófinu voru eins og í hlustunarhlutanum
15 spurningar af vaxandi þyngdarstigi. Ekkert verk
efnanna krafðist þess að nemendur skrifuðu texta
þar sem við vildum tryggja að einungis væri verið
að mæla lesskilning. Nemendur merktu við það svar
sem þeir töldu rétt miðað við þær upplýsingar sem
þeir höfðu fengið í stuttri sögu og mynd. Verkefnin
voru einnig stigvaxandi að þyngd: Para saman setn
ingu og mynd, götumynd af fjölleikahúsi þar sem
nokkrar myndir passa við myndina og aðrar ekki og
að lokum heildstæð frásögn á rituðu máli þar sem
nemendur áttu að para saman staðhæfingar og upp
lýsingar í textanum.
Það sem kannað var í lestrarhluta
Viðfangsefni
Velja saman setningu og eina mynd
af þremur
Velja rétta/ranga staðhæfingu
miðað við mynd.
Velja rétta/ranga staðhæfingu
miðað við stuttan lestexta.
Orðaforði
Athafnir, persónutengd orð, fólk og
staðsetningar í tíma og rúmi.
Athafnir, staðsetning, lýsingar,
nytjahlutir, litir og fólk.
Athafnir, hreyfing, lýsingar
nytjahlutir tilfinningar fólk og tími.
Skilningur
Greina myndir út frá staðsetningu
hluta eða fólks, fjölda, tíma
Greina hluti á götumynd og velja
rétta setningu út frá myndinni
Lesa texta á dönsku, túlka hann
út frá eigin bakgrunnsþekkingu,
greina mun á t.d. tíð, beygingu
sagna, ákv./óákv. hætti, tölu og
orðstofnum
Niðurstöður úr lestrarhluta
Hlutfall réttra svara var lægra en í hlustunarþætt
inum. Meðaltal af meðaltali var 74,4 %. Erfitt er að
segja til um hvort það orsakast af því að nemendur
eiga erfitt með að lesa dönsku eða hvort nemendur
eiga erfitt með lestur að öllu jöfnu.
• Meðaltal af meðaltali á landsbyggðinni var
73,6 %
• Meðaltal af meðaltali í Reykjavík var 75,5 %
• Meðaltal af meðaltali meðal drengja var 73,7 %
• Meðaltal af meðaltali meðal stúlkna var 75,2 %
• Meðaltal af meðaltali meðal drengja í Reykjavík
var 75,8 %
• Meðaltal af meðaltali meðal stúlkna í Reykjavík
var 73,9 %
• Meðaltal af meðaltali meðal drengja á landsbyggð
inni var 72,1 %
• Meðaltal af meðaltali meðal stúlkna á landsbyggð
inni var 75,1 %
Andstætt því sem búist var við kemur í ljós að
merkjanlegur munur er á lesskilningi og hlustunar
skilningi. Þegar skoðað er meðaltal af meðaltali