Þjóðlíf - 01.11.1986, Page 51
„rökfesta" samkvæmt sálfræðipróf-
inu vill taka ákvarðanir eins tíman-
lega og unnt er. Þessi aðferð er tví-
mælalaust virðingarverð, en sérfræð-
ingarnir, sem „mældu“ skákmenn
Bandaríkjanna, vilja þó meina, að
hún geti leitt til ofskipulagningar og
lítils sveigjanleika. Maður, sem
myndi falla í „næmishópinn“, vill
helst ekkert skipuleggja fram í tím-
ann og heldur öllum möguleikum
opnum eins lengi og unnt er. Stund-
um lendir þá allt í vitleysu, en stund-
um tekst slíkri manneskju einnig að
finna bráðsnjallar lausnir á síðustu
stundu og lagar sig undrafljótt að
breyttum aðstæðum.
Bæði almenningur og bestu skák-
menn Bandaríkjanna skiptast nokk-
uð jafnt á báða hópana, segja sér-
fræðingarnir. Það vekur hins vegar
athygli, að leikstíll skákmanna mark-
ast mjög af því í hvorn hópinn þeir
falla. Skákmenn, sem falla í „rök-
festuhópinn“, leggja gífurlega
áherslu á heimavinnu sína fyrir leiki,
skipuleggja skákmót út í ystu æsar og
forðast yfirleitt að taka áhættu. Hinir
taka hins vegar gjarnan mikla áhættu
og þeim líður greinilega best þegar
sem mest getur farið úrskeiðis, segja
sérfræðingarnir. Þeir eru einnig
sveigjanlegri en hinir og fljótari að
ráða fram úr óvæntum atvikum. Ein
helsti veikleiki þeirra er hins vegar
sá, að þeir leggja ekki mikið í undir-
búning og treysta frekar á hæfileika
sína og reynslu. Þeim finnst gaman
að fara yfir leiki og greina þá, en þeir
snúa fljótt baki við kennslubókum.
Fischer og Spassky,
Karpov og Kasparoff
Nú kann einhver að spyrja: Hver
er svo tilgangurinn með þessari
heilaleikfimi sálfræðinganna? Er
nokkur bættari með því að vita allt
þetta? Verða skákmenn betri þótt
þeir viti þetta?
Svarið er: Auðvitað verða menn
ekki betri skákmenn fyrir vikið. En
þeir sem skara fram úr vekja alltaf
athygli hinna og koma af stað vanga-
veltum. Því ber kannski fyrst og
fremst að líta á þetta sem glens og
gaman! En lítum að lokum á það,
sem sérfræðingarnir hafa að segja um
fjóra heimsmeistara í skák, þá Bobby
Fischer, Boris Spassky, Anatoly
Karpov og Gary Kasparoff.
Sérfræðingarnir benda á, að þeir
Boris Spassky og Bobby Fischer séu
dæmigerðar andstæður í skákinni.
Fischer vildi finna „sannleikann" í
öllu, sem hann tók sér fyrir hendur.
Þegar hann taldi sig hafa fundið
„réttu“ byrjunina, vék hann vart frá
henni það sem eftir var. Leikir hans
þóttu einnig óhugnanlega nákvæmir.
Leikaðferð hans jaðraði við ofstæki,
segja sérfræðingarnir.
Rússar gerðu óspart grín að Fisch-
er í heimsmeistaraeinvíginu í Reykja-
vík 1972. Þeir sögðu hann engan snef-
il hafa af ímyndunarafli og enga
sköpunarhæfni sýna — auðvitað ólíkt
Spassky þeirra. Ekki taka sérfræðing-
arnir undir þetta, þótt Spassky hafi
þótt sýna öllu meiri tilþrif í leikjum
sínum.
Sérfræðingarnir létu sig heldur
ekki muna um að spá fyrir um úrslit
síðasta heimsmeistaraeinvígis milli
þeirra Anatoly Karpov og Gary
Kasparoffs. Einkunn þeirra var sú,
að þarna yrði um að ræða einvígi
gjörólíkra persónuleika. Margir
skákunnendur sögðu fyrir einvígið,
að Kasparoff vantaði drápsviljann til
að gera út af við Karpov. En sérfræð-
ingarnir bentu á, að skákskýrendum
kynni að sjást yfir sköpunarhæfni
Kasparoffs, sem sé einstaklega mikil.
Og þetta reyndust orð að sönnu,
eins og kunnuet er.
W CERAMCHE
fMARAZZI
Flísar
*ALFABORG í
SKÚTUVOGI4
Flísar
Marmari
Baðinnréttingar
Þakrennur
Byggingadeild með MÝTT MAFM
_______áður Mýborg - nú Álfaborg...__________
Á sama stad: SKÚTUVOGI4 Heð sama símanúmen 68 67 55
ÞJÓÐLÍF 51