Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2012, Síða 8
8 Fréttir 12. desember 2012 Miðvikudagur
n United Reykjavík stofnar áfangaheimili n Úrræði skortir eftir meðferð
Á
Íslandi er að finna eina bestu
meðferð í heimi við áfengis-
og vímuefnafíkn en hún er
lítils virði fyrir marga því
það er svo margt fólk sem
er heimilislaust þegar það kemur
út og fer þá aftur í sama farið. Það
vantar úrræði fyrir þetta fólk og við
ákváðum að stíga skrefið, segir Ólaf-
ur Ólafsson sem ásamt Elínu Örnu
Arnardóttur Hannam, undir merkj-
um hópsins United Reykjavík, vinna
nú hörðum höndum að því að koma
í stand húsi að Héðinsgötu 10. Ætl-
unin er að reka þar áfangaheimili
þar sem þau koma til með að hjálpa
fíklum að komast aftur út í lífið.
Mannlegi þátturinn
Þau þekkja áfengisfíkn af eigin raun
og segja tilgang þess að opna áfanga-
heimilið vera að veita öðrum hjálp
til að öðlast líf líkt og þau fengu sjálf.
Fyrir þremur árum fékk Ólafur hjálp
eftir að hafa verið í mikilli og harðri
neyslu í 10 ár í Svíþjóð. „Þetta hefur
síðan þá verið mitt hjartans mál. Við
vitum hversu erfitt það var að reisa
okkur sjálf við og eftir að það tókst
höfum við reynt að hjálpa öðrum að
öðlast það sama og við fengum. Við
teljum okkur vita hvernig hægt sé
að grípa inn í og teljum við fyrst og
fremst mannlega og andlega þáttinn
mikilvægan ásamt virðingu, kær-
leika og að elska.“
Þau Elín Arna og Ólafur hafa
starfað undanfarið ár undir merkj-
um United Reykjavík sem hefur
meðal annars verið með súpugjöf í
miðbænum einu sinni í viku og þau
segjast hafa hjálpað fólki á ýmsa
vegu að komast út í lífið á ný. Ólafur
segir þau hafa séð hversu viðamik-
ið vandamál það var að fólk kæmi úr
meðferð og leitaði beint aftur í sama
far vegna þess hversu fá úrræði væru
í boði.
Aðstoða fólk
„Við erum búin að aðstoða fólk í eitt
ár og höfum hjálpað því að finna hús-
næði þegar það kemur úr meðferð.
Við höfum verið með fólk á heimilinu
hjá okkur og verið með fólk í niður-
tröppun því það er bara að deyja. Það
kemst ekki í meðferð því það er svo
löng bið. Svo hrynur fólk bara niður
og við getum ekki horft á þetta leng-
ur. Fyrst og fremst þráum við að sjá
þetta fólk vakna til lífsins. Þetta er al-
veg hrikalegt ástand og í raun miklu
verra en nokkur vill gera sér grein
fyrir. Við horfum upp á okkar vini og
kunningja falla fyrir þessu í hverri ein-
ustu viku. Þetta er bara ömurlegt. Og
það þarf oft ekki einu sinni áfengi eða
fíkniefni til enda er kvíði og ótti svo al-
gengur í íslensku samfélagi. Við erum
með samverustundir alla mánudaga
að Háteigsvegi 7 í Reykjavík og þar
koma milli 170–200 manns, alls staðar
að og á öllum aldri sem sýnir vel þörf-
ina. Það kostar hundruð þúsunda að
senda mann eða konu inn á Vog eða
í aðra meðferð. Síðan kemur fyrir að
sú manneskja kemur út og er dottin
í það eftir 2–3 daga. Þetta er eitthvað
sem má ekki tala um. Við erum með
árangur í þessum málum sem er al-
gjörlega í lágmarki miðað við fyrri
tíð og þar er ekki meðferðinni um að
kenna heldur því sem tekur við þegar
fólk kemur út. Við vorum með einn
besta árangur sem þekktist í heimin-
um fyrir nokkrum árum. Það vantar
þessa eftirfylgni, að hjálpa fólki út í líf-
ið á ný. Í dag eru mörg frábær úrræði
í gangi eins og Neyðarskýlið, Smáhýs-
in í Ör fisey og áfangaheimili sem eru
rekin af Samhjálp og SÁÁ en hópurinn
er stór og ólíkur, biðlistar eru langir en
málefnið er dauðans alvara. Betur má
ef duga skal,“ segir Ólafur.
Húsið keypt fyrir starfið
Þessa dagana vinna þau hörðum
höndum að því ásamt hópi sjálfboða-
liða að koma húsinu í lag en það er
um 1.100 fermetrar og stendur eins
og áður sagði við Héðinsgötu í Reykja-
vík. „Það var hjartahlýr maður sem
lætur sig þessi málefni varða sem
keypti húsið. Það er líknarfélag sem
heitir Spörvar sem síðan mun sjá um
reksturinn. Við þiggjum málningu og
bara allt sem við getum fengið enda
nóg sem þarf að gera. Hér kemur
fjöldi fólks að vinna án þess að þiggja
greiðslu fyrir. Við höfum gaman af því
að gera þetta alveg frá grunni, en þurf-
um hjálp og stuðning bæði í vinnu og
fjármagni. Við höfum ekki farið fram
á neina styrki frá ríki eða borg hingað
til og höfum algjörlega verið að gera
þetta af hugsjón,“ segir Ólafur.
Ekki geymslustaður
Þau segja vera pláss fyrir um 45 manns
í húsinu þegar það verður tilbúið.
Einnig verður rekið kaffihús í kjallara
hússins. „Þegar við fáum leyfi verðum
við með 20 manns til að byrja með
sem fjölgar svo í 41 en við erum með
pláss fyrir 45. Staðsetningin er frá-
bær, við erum beint á móti AA-húsinu.
Síðan eigum við leirkeraverksmiðju
líka. Þetta er ekki áfangaheimili sem er
einhver geymslustaður heldur kemur
fólk til með að vinna eftir prógrammi
hérna. Og við hjálpum því að komast
út á vinnumarkaðinn. Margir eru á ör-
orku og viljum við hjálpa fólki skref
fyrir skref. Við erum að hjálpa fólki að
komast út á vinnumarkað eða í skóla
og er leirkeraverksmiðjan einn hluti
þess að virkja fólk. Síðan munum við
vera í samstarfi við Vinnumálastofnun
og Félagsmálastofnun og aðrar stofn-
anir og félagasamtök,“ segir Ólafur en
þessa dagana bíða þau eftir heimild til
starfseminnar.
Horfa lengra
Þau segjast gera þetta af hugsjón og að
það sé þeim mikilvægt að hjálpa fólki.
Ráðgjafar muni starfa í húsinu og
hjálpa þeim sem þar búa. „Þú verður
að hafa þetta í hjarta þínu að vilja sjá
einstaklinginn ná bata. Við verðum
með ráðgjafa líka inni í húsinu, bæði
lærða og aðra. Þetta heitir bara að
styðja annan alkóhólista. Þegar ég sé
útigangsmann niðri í bæ þá sé ég ekki
skítugu fötin, slagsmálin og allt það.
Maður verður að horfa lengra. Þetta er
manneskja eins og ég og þú; af holdi
og blóði, með tilfinningar, væntingar,
vonir og þrár en hún er komin á þenn-
an stað. Það er hægt að snúa þessu við
og það þekkjum við sjálf.“ n
Magnús enn
ákærður
Hæstiréttur ákvað á mánudag að
ákæra gegn Magnúsi Guðmunds-
syni, fyrrverandi forstjóra Kaup-
þings í Lúxemborg, í Al Thani-
málinu sé gild. Ákæran verður því
tekin til efnislegrar meðferðar í
Héraðsdómi Reykjavíkur ásamt
öðrum kærum í málinu. Héraðs-
dómur hafði áður vísað ákærunni
frá. Héraðsdómur taldi ákæru sér-
staks saksóknara óskýra og van-
reifaða og því ekki annað hægt
að mati dómsins en vísa henni
frá. Ríkinu var auk þess gert að
greiða honum níu milljónir króna
í málskostnað. Magnús er ásamt
Hreiðari Má Sigurðssyni, Sigurði
Einarssyni og Ólafi Ólafssyni
ákærður í Al Thani-málinu svo-
kallaða sem snýr að markaðs-
misnotkun og umboðssvikum.
Ásmundur og
Páll ósammála
um VG
„Þá vitum við það: Heimssýn
styður alla stjórnmálaflokka jafnt
og gerir ekki upp á milli þeirra.
Ætli Heimssýn komi til greina til
friðarverðlauna Nóbels á næsta
ári?“ skrifaði Páll Vilhjálmsson,
framkvæmdastjóri Heimssýnar á
bloggsíðu samtakanna á mánu-
dag. Ljóst er að sjónarmið for-
manns Heimssýnar og fram-
kvæmdastjóra hennar fara ekki
saman, en í dag sagði Ásmundur
Einar Daðason, formaður Heims-
sýnar: „Heimssýn hefur og mun
aldrei hafa það að markmiði að
berjast gegn ákveðnum stjórn-
málaflokkum.“ Þar með svaraði
Ásmundur fyrir stutt blogg sem
Páll birti á heimasíðu Heimssýn-
ar á laugardag þar sem Páll sagði
að markmið Heimssýnar væri að
koma fylgi Vinstri-grænna niður
fyrir fimm prósent.
Á hálfan millj-
arð í Vodafone
Félagið Úrsus ehf., sem er í eigu
Heiðars Más Guðjónssonar fjár-
festis, á tæplega 15,9 milljónir
hluta í Fjarskiptum, rekstraraðila
Vodafone á Íslandi. Þetta jafn-
gildir 4,7 prósenta hlut í félaginu.
Þetta er þriðji stærsti hluturinn í
Fjarskiptum, en listi yfir 20 helstu
hluthafana var birtur var á mánu-
dag í kjölfar hlutafjárútboðs fyr-
ir skráningu þess á hlutabréfa-
markað. Úrsus er eina félagið sem
er í eigu einstaklings á téðum lista
en stærsti hluthafi Fjarskipta er
Framtakssjóður Íslands með 19,7
prósenta hlut og svo Lífeyrissjóður
verslunarmanna sem á rúmlega
12 prósenta hlut. Félagið Arctica
Finance hf. á litlu minna en félag
Heiðars Más eða 15,6 milljónir
hluta, jafnvirði um 4,7 prósenta.
„Þetta er alveg
hrikalegt ástand“
Unnið hörðum höndum Þau Ólafur og
Elín Arna vinna hörðum höndum að því að
breyta húsnæði í áfangaheimili. Þau þekkja
bæði baráttuna við fíknina og vilja hjálpa
öðrum fíklum að öðlast betra líf.
Viktoría Hermannsdóttir
blaðamaður skrifar viktoria@dv.is
Fengu synjun
Áður hefur verið reynt að reisa áfangaheimili í húsinu. DV
sagði frá því í október í fyrra að Þór Ölversson, sem áður hét
Þórhallur Ölver Gunnlaugsson stundum kallaður Vatnsber-
inn, ræki eins konar gistiheimili eða áfangaheimili fyrir fyrr-
verandi fanga í húsinu undir merkjum líknarfélagsins Stoða,
og væri þar að leigja út herbergi. Sjálfur afplánaði hann dóm
á Litla-Hrauni. Félagið fékk ekki leyfi til að halda þar úti gisti-
eða meðferðarheimili og var ástæða synjunarinnar sögð vera
sú að svæðið væri skilgreint sem athafnasvæði.
„Þegar ég sé útigangsmann
niðri í bæ þá sé ég ekki skítugu
fötin, slagsmálin og allt það
Draumasetrið Stefnt er
að því að breyta þessu húsi í
áfangaheimili sem á að bera
nafnið Draumasetrið.