Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2012, Qupperneq 22
Sandkorn
H
æstiréttur Íslands hefur á
undanförnum árum misst
fótanna í mörgum málum.
Dómstólinn hefur hvað eft
ir annað hlotið ákúrur frá
Mannréttindadómstóli Evrópu fyrir
að hafa níðst á saklausu fólki. Nú síð
ast fengu tvær blaðakonur DV og Vik
unnar uppreisn æru eftir að Mann
réttindadómstóll Evrópu úrskurðaði að
Hæstiréttur hefði brotið gegn blaða
konunum. Íslenska ríkið þurfti að leggja
út stórfé í málskostnað og miskabætur.
Það undarlega er að dómararnir sem
tröðkuðu á mannréttindum kvennanna
tveggja þurfa ekki að sæta ábyrgð og
víkja. Þeir þurfa heldur ekki að greiða
það tjón sem þeir ollu samfélaginu og
sleppa skaðlaust frá málinu.
Árið 1998 þurfti ungur maður, Sigur
þór Arnarsson, að sitja í fangelsi í hálft
annað ár eftir að Hæstiréttur hafði
dæmt hann sekan um manndráp á
skemmtistaðnum Vegas. Sigurþór var
sýknaður í undirrétti en Hæstiréttur
snéri dómnum og lýsti hann sekan um
manndráp. Sá dæmdi leitaði til Mann
réttindadómstólsins sem komst að
þeirri niðurstöðu að reglur um réttláta
málsmeðferð hefðu verið brotnar. Málið
var endurupptekið og nú er komið á
daginn að um réttarmorð var að ræða.
Maðurinn sem var sekur fundinn sat í
fangelsi vegna dómara sem ekki unnu
sína vinnu af heilindum. Engin leið er
að átta sig á þeim skaða sem ungi mað
urinn varð fyrir. Hann hefur í 14 ár setið
uppi með þann stimpil að hafa banað
manni. Ranglátir dómarar eyðilögðu líf
hans. Viðbúið er að ríkið þurfi að greiða
tugi milljóna vegna klámhöggs dómar
anna sem sendu saklausan mann í fang
elsi. Og sem fyrr virðist samfélagið ætla
að sleppa dómurunum við þá refsingu
sem ætti að vera sjálfsögð þegar menn
klúðra í störfum sínum með stórfelldum
hætti og valda óbætanlegu tjóni. Þetta
er óboðlegt. Réttarríkið verður að refsa
þeim dómurum sem slá klámhögg.
Krafan um ábyrgð ætti líka að ná til
dóma í undirrétti sem gerðir eru aftur
reka með dóma sína. Fjölmörg dæmi
eru um fáránlega dóma þar sem Hæsti
réttur hefur með rökum snúið niður
stöðunni gjörsamlega við. Þarna gildir
það sama og fyrr. Dómararnir eru hafn
ir yfir ábyrgð. Krafan um að dómar
ar taki ábyrgð á gjörðum sínum ætti að
vera hávær. Þessir þjónar réttvísinnar
þurfa að sæta aðhaldi eins og flestir
aðrir þegnar landsins. Annars hverfur
virðingin fyrir dómstólunum með
ófyrir sjáanlegum afleiðingum. Til þess
að réttarríkið sé sanngjarnt verða dóm
arar þess að finna til ábyrgðar sinnar.
Þeir mega ekki komast upp með að
berja hausnum í steininn. Hjálpum
þeim að axla ábyrgð með því að refsa
hinum vanhæfu.
Hannes sár
n Hannes Hólmsteinn Gissurar
son, prófessor við Háskóla Ís
lands, er ekki ánægður með
Ríkisútvarpið og sakar menn
þar um að vera hlutdrægir.
Þessu mótmælti Jóhanna Vig
dís Hjaltadóttir fréttamaður í
tímaritsviðtali. Hannes skrif
aði þá pistil á Pressublogg
sitt þar sem hann sýndi fram
á að hann væri sjálfur snið
genginn sem álitsgjafi. „Ég
skal nefna eitt skýrt dæmi.
Það er ekki, að í Speglinum
hefur síðustu árin verið rætt
margsinnis við alla prófessor
ana í stjórnmálafræði nema
einn,“ bloggaði Hannes.
Bakland læknis
n Mikið var um dýrð
ir í fimmtugsafmæli Lýðs
Árnasonar, læknis og lista
manns, um
liðna helgi.
Lýður stefn
ir í framboð
fyrir Dögun
og mátti sjá
bakland hans
og samherja
í hópi afmælisgesta. Mikið
bar þar á stjórnlagaráðsfólki
sem virðist ætla að fylkja
sér inn í Dögun og taka þar
slaginn. Meðal þeirra sem
mættu í afmælið var Þor
valdur Gylfason, atkvæða
mesti stjórnlagaráðsmað
urinn. Þorvaldur hefur ekki
ennþá gert uppskátt um
áform sín varðandi þing
framboð.
Fór í fússi
n Innan Heimssýnar er
ólga eftir að samtökin sögðu
Vinstrigrænum stríð á hend
ur. Stríðsyfirlýsingin gegn
Steingrími J. Sigfússyni og fé
lögum var sett fram á bloggi
Páls Vilhjálmssonar, fram
kvæmdastjóra samtakanna.
Þetta varð til þess að Einar
Ólafsson, sannfærður and
stæðingur ESB aðildar, sagði
sig úr Heimssýn. „Þegar fastur
pistlahöfundur á blogg
síðu samtakanna, sem mér
skilst að sé að auki fram
kvæmdastjóri samtakanna,
lýsir því yfir að megin
verkefnið sé að þurrka
Vinstrihreyfinguna – grænt
framboð út af þingi get ég ekki
dregið úrsögn mína lengur,“
sagði í yfirlýsingu Einars.
Kveinstafir Lýðs
n Lýður Guðmundsson, eig
andi Exista, kvartar sáran
undan lögreglurannsókn á
hendur honum sem fram fór
vegna gruns um stórfelld brot
gegn hlutafélagalögum. Sér
staklega fór fyrir brjóst hans
að sími hans var hleraður um
skeið án þess að hann fengi
að vita það fyrr en nýverið.
Það kemur ekki sérstaklega
á óvart að það er Fréttablað
ið sem breiðir út kveinstafi
útrásarvíkingsins. Tekið skal
fram að Lýður er saklaus uns
annað kemur í ljós.
„Það er bara
sjálfsagður hlutur“
„Við erum yfir
okkur ástfangin“
Ingvar Georgsson, aðstoðarvarðstjóri Brunavarna Suðurnesja sem hafa gefið út eldheitt dagatal. – DV Ósk Norðfjörð gekk í það heilaga á dögunum. – DV
Réttarmorð Hæstaréttar„Ranglátir
dómarar
eyðilögðu líf hans
Leiðari
Reynir Traustason
rt@dv.is
Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður: Ólafur M. Magnússon Ritstjóri: Reynir Traustason (rt@dv.is) Fréttastjóri: Ingi Freyr Vilhjálmsson (ingi@dv.is) Umsjón helgarblaðs: Ingibjörg
Dögg Kjartansdóttir (ingibjorg@dv.is) Umsjón innblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir (kristjana@dv.is) Framkvæmdastjóri og vefstjóri DV.is: Jón Trausti Reynisson (jontrausti@dv.is)
Sölu og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir (heida@dv.is) Umbrot: DV Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur DV á netinu: www.dv.is
F R J Á L S T, Ó H Á Ð D A G B L A Ð
Heimilisfang
Tryggvagötu 11
Hafnarhvoli, 2. hæð
101 Reykjavík
FRéTTASkoT
512 70 70 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7080
512 7050
AÐALnúmeR
RiTSTJÓRn
ÁSkRiFTARSími
AuGLýSinGAR
14 12. desember 2012 Miðvikudagur
Það er dómgreindin, idjót!
H
vað með það þó yfirmaður CIA
hafi haldið framhjá? Ekki að
það hafi farið framhjá neinum,
en David Petraeus, sem sagði af
sér þeirri stöðu eftir að upp komst um
framhjáhald hans eftir að hjákonan
sendi nafnlausa tölvupósta til læknisfrú
ar sem var „náin vinkona“ yfirmannsins,
tölvupósta sem læknisfrúin sendi svo til
alríkislögreglumanns, sem sendi henni
berbringumyndir af sjálfum sér sem
komu á daginn í rannsókn „óviðeigandi
samskipta“ sjóliðsforingja og læknis
frúarinnar, hverrar tvíburasystir notaði
meðmælabréf frá yfirmanni leyniþjón
ustunnar og sjóðliðsforingjanum til að
„imponera“ dómara í forræðisdeilum.
Glóruleysi og gjöreyðingarvopn
Að Petraeus er hrokafullur „framhjá
haldari“ er ekki áhyggjuefni utan fjöl
skyldu hans, en hegðun hans er hins
vegar vitnisburður um vandamál sem
ekki er hægt að líta framhjá – óafsak
anlegan dómgreindarskort. Að menn,
sem gerst hafa sekir um jafn glórulaus
ar ákvarðanir og ljóst er af þessu máli,
skuli hafa með höndum stjórnun gjör
eyðingarvopna og tugþúsunda vopn
aðra manna er hrollvekjandi tilhugsun.
Hvers vegna hegðar gáfað, vel
menntað og vel þjálfað fólk sér svona
heimskulega? Hvað veldur dóm
greindarskortinum – ekki í eitt skipti,
heldur margoft?
Kaffi og kavíar?
Fjölmiðlar hafa mikið smjattað á kavíar
og kampavínspartíunum sem grúppíu
læknisfrúin hélt fyrir hershöfðingja
elítuna í Tampa, en enginn hefur bent
á að þessi tíðu teiti báru vitni um ann
að og meira en kavíar og krabbaköku
kjams: Áfengisneyslu. Já. Ég skal ekki
fullyrða um drykkjuvenjur Petraeus, en
ég þori að hengja mig upp á að partíin
hjá grúppíunni hefðu ekki verið sérstak
lega vinsæl ef á boðstólum hefði verið
kaffi og kavíar.
Áfengisneysla í bandaríska hernum
hefur „aldrei verið alvarlegra vandamál
en nú“, sagði formaður þjónustusam
taka fyrir hermenn í viðtali við New York
Times og mjög algengt er að hermenn
drekki „daglega, um miðjan dag, meðan
þeir eru á vakt.“ Í nýrri skýrslu Institute
of Medicine segir að ofdrykkja sé „við
tekin venja“ innan hersins, og alkóhól
ismi mikið vandamál sem þurfi að taka
á.
Það þarf mikla afneitun til að halda
því fram að áfengisneysla af þessari
stærðargráðu hafi engin áhrif á stofnun
eins og bandaríska herinn. Því miður
er afneitun ein helsta afleiðing og ein
kenni óhóflegrar áfengisneyslu, bæði
meðal neytendanna og þeirra sem um
gangast þá. Vestrænt samfélag sýnir
líka mikla þolinmæði gagnvart drykkju,
enda tengist áfengisneysla „hefðum og
siðvenjum sem gera hana hættulausa …
falleg kristalsglös, virðulegar áfengis
flöskur, árgangsvín“, eins og Óttar Guð
mundsson, læknir og rithöfundur, segir
í bók sinni Tíminn og tárið: Íslendingar
og áfengi í 1100 ár.
Áfengi og krónískur
dómgreindarskortur
Mörgum valdamiklum einstakling
um er ómögulegt að tengja einstaka
klandur og dómgreindarskort (sem þeir
eru ekki sjálfir meðvitaðir um) við þá
„glæsimynd sem þeir hafa í huga sér af
áfengis neyslu“, segir Óttar. „Drykkja[n
er] þýðingarmikill hluti af eigin sjálfs
mynd, viskí og koníak … stöðutákn …“
Áfengisneysla veldur fyrst og fremst
dómgreindarskorti. Afleiðingarnar eru
misalvarlegar, allt frá því að drepa eða
slasa sig og/eða aðra með slysum eða
ofbeldi til neyðarlegra uppákoma í
veislum.
En afleiðingarnar eru ekki alltaf
augsýnilegar, enda er sálarlíf drykkju
mannsins, eins og Óttar segir, marg
slungið. Tíð áfengisneysla veldur
krónískum, langtímadómgreindarskorti,
sem lýsir sér gjarna í slæmum ákvarð
anatökum – eins og framhjáhaldi og
samböndum við ófyrirleitna einstak
linga, sem ætlast til að maður sýni af
sér valdníðslu í vinnunni og tilnefni þá
í utanríkisþjónustuna, svo vitnað sé í
heimskupör hershöfðingjanna í Tampa,
eða gefi þeim banka, svo vitnað sé í ís
lensk asnastrik. Ákvarðanatökum sem
einkennast af skorti á dómgreind og
siðgæði.
Siðferðisþrek mikilvægast
Siðferðisþrek er einn mikilvægasti
kostur góðs leiðtoga, eins og Petraeus
veit best sjálfur: „Ég sýndi óhemju
slæma dómgreind, sem eiginmaður og
leiðtogi, með þessari hegðun …“ Þessari
siðlausu hegðun.
Leiðtogar geta ekki lofsungið dyggð
ir sem þeir búa ekki yfir sjálfir. Þeir geta
ekki skipað öðrum að hlýða reglum sem
þeir brjóta sjálfir. Þeir geta ekki notið
trausts ef þeir sýna – t.d. með framhjá
haldi – að þeir séu reiðubúnir að svíkja
þá sem þeir hafa lofað og svarið að sýna
tryggð.
Fyrst rotnar fiskhausinn.
Þegar leiðtogi brýtur reglurnar, sama
hvers efnis þær eru, sendir hann skila
boð: „Það er allt í lagi að brjóta reglurn
ar. Allt í lagi að ljúga. Heiðarleiki skiptir
ekki máli.“ Þegar þessi skilaboð verða
normið innan stofnunarinnar verður
stofnunin vanvirkni, vantrausti og spill
ingu að bráð.
Er dómgreindarleysi afleiðing lífs
stíls stjórnendanna eða öfugt? Svarið,
hvert sem það er, breytir ekki þessari
staðreynd: Leiðtogar geta ekki stjórnað
öðrum ef þeir eru ófærir um að stjórna
sjálfum sér. Leiðtogar verða að ganga
á undan, ekki bara með góðu fordæmi
heldur besta fyrirmyndarfordæminu.
Að halda öðru fram er að rotna með
restinni.
Kjallari
Íris Erlingsdóttir
„Leiðtogar
geta ekki
stjórnað öðrum
ef þeir eru ófær-
ir um að stjórna
sjálfum sér