Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2012, Qupperneq 27
Fólk 19Miðvikudagur 12. desember 2012
Shandi flytur til Íslands
n Fyrirsætan Shandi og Margrét Erla Maack eru vinkonur
S
handi Sullivan, sem gerði
garðinn frægan í annarri þátta-
röðinni af America‘s Next Top
Model, hyggst flytja til Íslands á
næstunni. Eftir að hún sló í gegn í þátt-
unum hefur hún meðal annars unnið
sem fyrirsæta og getið sér gott orð
sem plötusnúður og karókídrottning.
Shandi hefur tengingu við Ísland því
hún og Margrét Erla Maack í Kastljósi
eru góðar vinkonur. Margrét birti
einmitt stöðuuppfærslu á Facebook-
síðu sinni nýverið þar sem hún sagð-
ist vera virkilega spennt að fá Shandi
hingað til lands. Spennan virðist vera
gagnkvæm ef marka má Facebook-
síðu Shandi sjálfrar, en hún kom fyrst
til Íslands árið 2006 og spilaði þá sem
plötusnúður á skemmtistaðnum
Gauki á Stöng.
Shandi lenti í þriðja sæti í
America‘s Next Top Model-þáttaröð-
inni á sínum tíma en var í uppáhaldi
hjá mörgum sem fylgdust með þátt-
unum. Hún hafði ekki beint fyrir-
sætuútlitið með sér í upphafi þátta-
raðarinnar og þótti hafa klaufalegt
göngulag. Dómarar þáttanna, þar
á meðal stjórnandinn Tyra Banks,
höfðu þó tröllatrú á stúlkunni. Enda
kom hún til með að blómstra þegar
leið á og sýndi það og sannaði að hún
átti svo sannarlega heima á sýning-
arpöllum og forsíðum tískutímarita.
Á lokametrunum kom upp klaufalegt
atvik þegar stúlkurnar fóru í ferð til
Ítalíu en þar hélt Shandi framhjá þá-
verandi kærasta sínum með ítalskri
karlfyrirsætu. Hún sá mikið eftir at-
vikinu og í kjölfarið virtist hún missa
löngunina til að vera með í keppn-
inni og það kom niður á áskorunun-
um sem hún þurfti að takast á við til
að eiga möguleika á sigri. n
Litaði lokk-
ana dökka
Linda Pétursdóttir lét lita lokkana
dökka fyrir myndatöku næstu
auglýsingaherferðar Baðhússins.
Linda var mynduð af vinkonu
sinni, Ástu Kristjánsdóttur ljós-
myndara. Myndir úr tökunni
voru birtar á heimasíðu Bað-
hússins í vikunni en herferðin
hefst í janúar á nýju ári. Eins og
sjá má á myndinni tengist þemað
Austurlöndum fjær.
Gifting á
næsta ári
Tónlistarkonan Svala Björgvins
og Egill kærasti hennar, sem er
eins og hún í hljómsveitinni og
listahópnum Steed Lord, ætla að
ganga í það heilaga á næsta ári.
Þetta kom fram í viðtali við Svölu
í Virkum morgnum, en Svala er
komin til Íslands og mun dvelja
hér á landi yfir jólin. Svala og Egill
hafa verið saman í 18 ár, eða frá ár-
inu 1994, og stefna á að láta pússa
sig saman næsta sumar. „Við erum
búin að vera svo lengi saman svo
þetta verður ekkert mál. Við erum
aðallega að þessu til að halda
partí, hitta alla og fagna ástinni,“
sagði Svala í viðtalinu.
Umbreyting Shandi þótti ekki hafa fyrirsætuútlitið með sér í fyrstu. Það breyttist svo
sannarlega.
Grét af gleði
Sigurvegarar danskeppninnar
Dans dans dans voru krýndir í
beinni útsendingu um helgina
en það var dansparið unga Helga
Kristín Ingólfsdóttir og Birkir Örn
Karlsson sem stóðu uppi sem sig-
urvegarar. Glöggir áhorfendur
tóku ef til vill eftir því að afreks-
íþróttakonan og sterkasta kona
veraldar, Annie Mist, var á með-
al áhorfenda í salnum. Annie er
frænka Birkis Arnar og Berglindar
Ýrar systur hans, sem sigraði í
fyrra. Íþróttakonan átti greinilega
erfitt með að hemja tilfinningar
sínar þegar úrslitin voru ljós og
grét af gleði fyrir hönd frænda síns.
n Útvarpsmaðurinn Óli Palli syngur jólalag á nýrri safnplötu
n Annar hver tæknimaður hjá RÚV er rokkstjarna
F
yrsta orðið sem ég sagði var
músík og það eru til myndir af
mér innan við tveggja ára með
stóru Pioneer-heyrnartólin á
eyrunum,“ segir útvarpsmað-
urinn Ólafur Páll Gunnarsson sem
hefur gefið út jólasafnplötuna Rokk
og jól – Jól í Rokklandi en þetta er
önnur jólasafnplatan sem hann setur
saman. Á plötunni er meðal annars
að finna lagið Leppalúða eftir Ladda
sem Óli Palli syngur sjálfur.
Þrátt fyrir að vinna við að spila
tónlist í útvarpinu hefur hann lítið
spilað sjálfur, fyrir utan að vera með-
limur rokkkórsins Fjallabræðra. „Ég
var í hljómsveitum sem unglingur
en þegar ég fór að vinna hjá RÚV,
innan um þessar stjörnur sem koma
reglulega í heimsókn, fannst mér
ekki passa að tæknimaðurinn ég
væri eitthvað að vesenast í tónlist. Ég
henti þessu því öllu til hliðar. Svona
er maður mikill api. Í dag er svo ann-
ar hver tæknimaður hjá RÚV rokk-
stjarna. Hér er einn úr Valdimar,
annar úr Kiriyama Family og hér hafa
unnið sem hljóðmenn strákar sem
hafa spilað stór hlutverk hjá sveitum
eins og Of Monsters and Men og Sig-
ur Rós. Þetta eru allt meira og minna
einhvers konar stjörnur, og sjálfur
Berndsen var hljóðmaður á Rás 2 þar
til í fyrra.“
Óli Palli segist alltaf hafa verið
hrifinn af þessu gamla lagi hans
Ladda. „Ég hugsaði þetta fyrst fyr-
ir Fjallabræður. Það hefði hentað
þeim ótrúlega vel en það gekk ekki
upp. Við syngjum þetta kannski
saman seinna. Í staðinn ákvað ég
að gera þetta bara sjálfur og hr-
ingdi í Edda vin minn og gamla gít-
arkennara og við höfðum með okk-
ur tvo mikla meistara. Annars vegar
trommarann Karl Pétur Smith, sem
er nýfluttur heim frá Kaliforníu eftir
að hafa búið þar frá barnsaldri eða í
rúm 30 ár, og svo vin hans, bassaleik-
arann Todd O‘Keefe, en þeir eru báð-
ir vinir og spilafélagar Rusty Ander-
son, gítarleikara hljómsveitar Pauls
McCartney. Todd kom með Rusty til
Íslands núna í október og allir spil-
uðu þeir þrír, Eddi, Todd og Kalli
með honum í Austurbæ, Á Græna
hattinum og á Rósenberg. Við vorum
rúman klukkutíma að spila lagið inn
og þetta var auðvitað bara gaman,“
segir Óli Palli sem vill þó ekkert endi-
lega meina að von sé á fleiri lögum
frá honum. „En það er aldrei að vita.
Það er bara svo gaman að fá svona
flugu í hausinn og framkvæma; að fá
að vera örlítið með.“
Óli Palli segist ekki skilja þá sem
halda því fram að þeir þoli ekki jóla-
lög. „Maður heyrir þetta oft, að þessi
eða hinn þoli ekki jólalög. Það er
nú bara eins og maður sem segist
hafa gaman af músík en hati Bítl-
ana; það er bara eitthvað að honum.
Hann hefur ekkert gaman af músík,
hann heldur það bara. Af hverju ætti
maður ekki að hafa gaman af jóla-
lögum? Það er eins og að þola ekki
lög sem fjalla um heyvagna eða lög
þar sem er minnst á bláan lit. Jólalög
eru alls konar. Sum eru sálmar sem
er búið að setja í nútímajólabúning,
svo er það allt poppið, rokkið, kántrí,
blús, djass og þungarokk. Jólalaga-
haugurinn er orðinn svo rosalega
stór. Það er ekkert alltaf verið að
syngja um hvað það verður gaman
á jólunum þegar við verðum saman
og allir fá rosalega stóra jólapakka.
Sumir syngja um hvernig er að vera í
fangelsi á jólunum, sumir um dauð-
ann, svo eru til heiðin jólalög og alls
konar“.
Óli Palli viðurkennir að vera
mikið jólabarn. „Hver er það ekki? Ég
fíla þetta allt saman. Ég er svo mikill
Íslendingur og finnst svo gott að búa
hérna. Ég elska öll tilbrigðin í veðr-
inu, finnst frábært þegar það er sól og
elska rigninguna. Þetta fer allt í hring
eftir hring og við þurfum á jólunum
að halda. Þau eru ákveðinn hápunkt-
ur ársins og svo fylgir strax í kjölfarið
nýtt upphaf með nýjum ævin týrum
og tækifærum. Ég er alveg afskaplega
ánægður með þetta fyrirkomulag til-
verunnar.“ n indiana@dv.is
Gaman
að fá
að vera
með
Jólabarn
Óli Palli skilur
ekki þá sem
segjast ekki
þola jólatónlist.
Mynd: Eyþór ÁrnaSon